blaðið - 09.09.2006, Síða 40
4 0 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006
blaðiö
helgin
heigin@bladid.net^^
Hagamelshátíð
í dag verður haldin Hagamelshátíð í Vesturbæ
Reykjavikur i tilefni af stórafmæli götunnar, Mela-
skóla og Melabúðarinnar. íbúar Hagamels, vinir og
velunnarar eru velkomnir í grill, tónlist, leiki og
skemmtun. Hátiðin hefst klukkan 17.
Sunnudagur:
15:00
Listamannaspjall í Listasafni
Reykjavíkur-Hafnarhúsi á sýn-
ingunni Pakkhús postulanna.
Sigríður Björg Sigurðardóttir og
Davíð Arnar Halldórsson taka
þátt.
Spila á hátíð í Þýskalandi
Sólstafir halda í víking
Laugardagur:
13:00
Dagskrá í Snorrastofu í Reyk-
holti til minningar um Björn
J. Blöndal, laxveiðimann og
rithöfund.
16:00
Listamaðurinn Magnús Árnason
fremur gjörning í Listasafni
Reykjavíkur-Hafnarhúsi.
23:00
Skítamórall spilar á Nasa við
Austurvöll. Aðgangur 1.000 kr.
23:00
Gleðisveitin Boðsmiði spilar á
Arnarhóli, sem áður var Blúsbar-
inn, Laugavegi 73.
00:00
Dj. Dóri snýr skífum á Vega-
mótum.
Þungarokkshljómsveitin Sólstafir
heldur senn í víking og verður eitt
af aðalnúmerunum á Nebelmond-
þungarokkshátíðinni í Þýskalandi
dagana 15. og 16. september. í tilefni
utanfararinnar halda Sólstafir tón-
leika á Dillon i kvöld sem hefjast kl.
22 og er aðgangur ókeypis.
Aðalbjörn Tryggvason (Addi),
söngvari og gítarleikari Sólstafa, seg-
ir að þeim hafi verið boðið að koma
fram á hátíðinni en að öðru leyti viti
hann ekki mikið um hana eða þær
hljómsveitir sem komi fram með
þeim.
„Ég held að þetta sé um 2000
manna festival. Við spiluðum á svip-
uðu festivali í Finnlandi í nóvember
sem stóð í þrjá daga. Ég get ímyndað
mér að þetta sé eitthvað álíka,“ segir
Addi og bætir við að það verði gaman
að vera eitt af aðalnúmerunum af 20-
30 sveitum.
Konungsríki þungarokksins
Frekari ferðalög eru í bígerð hjá Sól-
stöfum á næstu misserum og mun
hljómsveitin meðal annars halda
tónleika í Þýskalandi með þarlendri
hljómsveit í október og nóvember.
„Svo er annað band sem heitir Moon
Sorrow að gefa út plötu í janúar hjá
sama útgáfufyrirtæki og við gefum
út hjá. Við munum þá jafnvel hita
Sólstafir í víking Þungarokkshljómsveitin Sólstafir kemur fram á hátíð í
Þýskaiandi um næstu helgi og heldur af því tilefni tónleika á Dillon í kvöld.
upp fyrir þá á þriggja vikna túr um Verði af túrnum munu þeir koma
Evrópu,“ segir Addi en slær þó þann fram víða í Evrópu, meðal annars
varnagla að ekki sé búið að staðfesta Hollandi, Þýskalandi og í nokkrum
það enn. löndum í austurhluta álfunnar.
„Austur Evrópulöndin eru mjög
blóðþyrst þungarokkslönd og svo er
Þýskaland náttúrlega konungsríki
þungarokksins," segir Addi.
Viss löstur að vera frá íslandi
Á þeim rúma áratug sem Sólstafir
hafa starfað hefur hljómsveitin not-
ið hylli þungarokksunnenda í Evr-
ópu en það er í raun ekki fyrr en á
allra síðustu árum sem menn hafa
farið að veita henni verðskuldaða at-
hygli hér á landi. „Undanfarin tvö
til þrjú ár höfum við spilað mikið
hér heima. Hin sjö árin vorum við
ekkert það þekktir. Öll tíu árin höf-
um við þó alltaf verið í útgáfu og
öðru slíku erlendis. Við höfum ver-
ið viðloðandi þennan geira lengi og
það hefur verið viss löstur að vera
frá íslandi og maður er svolítið
fjarlægur þessari senu ef maður er
ekki með stórt útgáfumerki á bak
við sig,“ segir Addi og bætir við
að sveitin eigi sér þó fastan kjarna
áhangenda.
„Fyrstu árin vorum við meira
að segja að skrifast á við fólk úti í
heimi. Það er alltaf svolítill hópur
sem þekkir nafnið. Það verður því
mjög fróðlegt að sjá viðtökurnar
vegna þess að Þýskaland hefur allt-
af verið heimavöllurinn okkar," seg-
ir Addi að lokum.
yo fií
Minningars j óður
Margrétar Björgólfsdóttur
auglýsir eftir umsóknum
Markmið sjóðsins er að auka
almannaheill og bæta mannlíf á
íslandi. Markmiðum sínum hyggst
sjóðurinn ná með því styrkja einstak-
linga, verkefni og félög til mennta,
framtaks, athafna og keppni, - ekki
hvað síst á alþjóðlegum vettvangi.
Skilafrestur er til 1. október 2006.
Frekari upplýsingar og umsóknar-
eyðublöð er aðfinna d vefsjóðsins
zvzvw. minningmargretar. is
Nóg að gera hjá Ingó Idol
Idolstjarnan Ingó, sem fullu nafni
heitir Ingólfur Þórarinsson, hefur
heldur betur náð að heilla landann
upp úr skónum á síðustu misserum.
Ingó hefur nóg að gera í tónlistinni
og hefur varla undan við að anna
eftirspurn.
Ingó og hljómsveitin hans, Veður-
guðirnir, fara mikinn þessa dagana.
Fjörið hefst hjá Ingó í dag þegar
hann spilar á uppskeruhátíð fyrir
ÍA á Skipaskaga og á sunnudaginn
spilar svo Ingó á fjölskylduhátíð
í Kópavogi með hnátunni síkátu,
Bríeti Sunnu, sem einnig garði garð-
inn frægan í Idolkeppninni. Eftir
að hafa spilað í Kópavoginum halda
þau til Grindavíkur þar sem þau
ætla að taka lagið á styrktartónleik-
um sem þar verða haldnir til styrkt-
ar Frank Bergmann Brynjarssyni.
„Þetta verður annasöm helgi en mér
finnst alltaf gaman að syngja fyrir
fólk svo ég hlakka bara til,“ segir In-
gó, hress að vanda.
Ingó segist ekkert vera leiður á
sviðsljósinu þrátt fyrir að dagarnir
séu oft langir. „Ég er að semja tón-
list sjálfur þessa dagana og vonandi
kemst eitthvað af því efni í spilun
áður en langt um líður. Það er auð-
vitað frábært að fá öll þessi tækifæri
og ég ætla að nýta þau meðan þau
gefast. Ég gæti einnig vel hugsað
mér að starfa við tónlist í framtíð-
inni en það verður bara að koma í
ljós hvernig það verður,“ segir Ingó
hógvær. Hann lauk stúdentsprófi í
vor en segist ætla að taka sér eilít-
ið frí frá námi og gefa tónlistinni
þann tíma sem hún krefst. Ingó
segir hljómsveitina vera með pró-
gramm fyrir alla aldurshópa og á
tónleikum láti sjá sig fólk á öllum
aldri. „Við spilm við mörg tækifæri
og erum oft beðnir um að spila í
einkasamkvæmum á borð við brúð-
kaup og annað. Það er alltaf mjög
skemmtilegt enda gaman að fá að
vera viðstaddur svo stóra viðburði í
lífi fólks,“ segir Ingó og brettir upp
ermar, enda viðburðarík helgi fram-
undan.