blaðið - 12.09.2006, Page 1
■ MENNING
Hafþór Yngvason boðar nýja sýn-
ingarstefnu Listasafns íslands sem
hefst á Pakkhúsi postulanna
I SlÐUR 32
■ ORÐLAUS
Pála Marie segir verstu eiginleika
kærasta að hafa óbilandi trú á
aksturshæfileikum sínum
I SÍÐA42
203. tölublaó 2. árgangur
þriðjudagur
12. september 2006
FRJALST, OHAÐ & 0
14 mánaöa bið eftir vist á BUGL:
Kominn í
draumastarfið
Sigurður Hrannar Hjaltason ætlaði að
verða viðskiptafræðingur en endaði
í leiklistinni. Hann fór í nám til Bret-
lands: „Námið er auðvilað dýrt og það
er erfitt að borga það, en fyrir mér er
þetta einfaldlega alltof
skemmtilegt
starf til að
láta eitthvað
svoleiðis
stoppa sig."
Enginn áhugi yfirvalda
■ Heimatilbúinn vandi ■ Móðir tíu ára drengs alveg að gefast upp ■ Skólinn kann engin ráð
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
Fjórtán mánaða bið er eftir innlögn á barna- og
unglingageðdeild Landspítala - háskólasjúkra-
húss fyrir tíu ára dreng með alvarlegan hegðun-
arvanda. Móðir hans segist alveg vera að gefast
upp því hvorki skólinn né barna- og unglingageð-
deildin hafa upp á nokkur úrræði að bjóða.
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir BUGL,
vísar ábyrgðinni á stjórnvöld og yfirstjórn Land-
spítalans sem hafi engan áhuga sýnt á að leysa
þessi mál.
„Biðtíminn er heimatilbúinn og er óþarfur,” segir
Ólafur. „Heilbrigðisyfirvöld og yfirstjórn Landspít-
alans hafa brugðist í þessu og það er margbúið að
benda á leiðir til úrbóta. Hvorki stjórnendur spital-
ans né heilbrigðisráðuneyti hafa sýnt áhuga á því
að eyða biðlistunum.”
Pilturinn sem um ræðir helst illa við í skóla og
er oft rokinn heim fyrir hádegi. Þá neyðist móðir
hans til að fara heim úr vinnu og líta eftir honum.
„Síðast í gær óskaði ég eftir innlögn hjá BUGL og
fékk þau svör að biðtíminn væri fjórtán mánuðir,”
segir móðirin. „Drengurinn fær enga aðstoð í skól-
anum sínum og hefur ekki fengið síðan hann byrj-
aði þar. Svörin sem ég fæ frá skólanum eru þau að
ekki fáist fjárveiting til þess að mæta þessu. Skiln-
ingsleysið er algjört og hefur komið mjög á óvart.”
Sjá einnig síðu 4
Fæði fyrir fuglana Þó farið sé að hausta er enn mikið um fugla á Tjörninni. Þessi maður gaukaði brauði að fuglunum og eins og sjá má sóttu þeir hart í fæðið eins og þeirra er venja.
» síða 30
Ástríðan mín
Sóley Tómasdóttir er mjög
ástríðufull að eðlisfari og gerir
það sem hún tekur sér fyrir
hendur af mikilli ákefð
VEÐUR
»síða 2 I HEILSA
Skúrir
Skúrir sunnan- og vestan-
lands, en annars skýjað
meö köflum eða léttskýjað.
Hiti átta til sautján stig, hlýj
ast á Austurlandi
Sérblað um
heilsu fylgir
ídag
»síður21 -28
HEILSA
-- I leimaslða um Islenskt grænmeti
WWW.SVAR.IS
svðrjtmkai
SIÐUMÚLA 37 -SÍMI 510 6000
BILALAN
Finndu bara bílinn sem þig dreymir um og við S|áum um
LÆGRI fjármögnunina. Reiknaðu lániö þitt á www.frjalsi.is
VEXTIR hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur línu á
frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!
FIARI rSTINf;.\RUANMNN