blaðið - 12.09.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006
blaAiö
VEÐRIÐ í DAG
Skýjað
Suðvestan fimm til tíu metrar á sekúndu.
Skúrir sunnan- og vestanlands, en
annars skýjað með köflum eða létt-
skýjað. Hiti átta til sautján stig, hlýjast á
Austurlandi.
ÁMORGUN
Strekkingur
Austan strekkingur á morgun og
fimmtudag en hægari á föstudag.
Samfelld rigning suðaustantil en
annars úrkomuminna. Hiti tíu til
fimmtán stig.
VÍÐA UM HEIM
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
25
26
25
23
16
17
25
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
17 New York
23 Orlando
16 Osló
19 Palma
24 París
21 Stokkhólmur
09 Þórshöfn
14
25
22
26
27
16
11
Landsmenn 304.000:
Mesta fjölgun
í hálfa öld
Ef fram fer sem horfir fjölgar
landsmönnum meira í ár en
þeim hefur fjölgað á einu ári
næstu hálfu öld á undan.
Samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár
voru landsmenn 304.334 hinn
1. júlí síðastliðinn. f frétt frá
Hagstofunni segir að um síðustu
áramót voru íbúar 299.891 og
hefur íbúum því fjölgað um eitt
og hálft prósent sem af er þessu
ári. Ef fram fer sem horfir verður
fólksfjölgun á árinu 2006 nálægt
þremur af hundraði. Á árinu
2005 fjölgaði landsmönnum
um 2,2 prósent og var það meiri
fólksfjölgun en verið hafði um
áratuga skeið. Árleg fólksfjölgun
hafði þá aldrei verið meiri en tvö
prósent frá því um 1960.
f - %
Afganistan:
Blóðbað í
jarðarför
Sjálfsmorðssprengjumaður
myrti sex, þar á meðal tólf ára
dreng, þegar hann sprengdi sig
upp í jarðarför Abdul Hakim
Taniwal, héraðsstjóra í Paktía
í Afganistan, í gær. Þúsundir
manna voru samankomnar í
jarðarför Taniwal sem hafði lát-
ist í sjálfsmorðssprengjuárás deg-
inum áður, þar á meðal nokkrir
ráðherrar í ríkisstjórn landsins.
Hamid Karzai, forseti Afganist-
ans, fordæmdi árásina og sagði.
þá sem að henni stóðu vera bæði
óvini afgönsku þjóðarinnar og
óvini íslams.
Öryrkjabandalagið mótmælir skerðingu:
Öryrkjar í mál við
fjórtán lífeyrissjóði
■ Hafa sent sjóðunum 400 bréf ■ Stærstu málaferli í sögu íslands
Eftir Höskuld Kára Schram
______________hoskuldur@bladid.net
Öryrkjabandalag íslands undirbýr
nú málssókn á hendur 14 lífeyris-
sjóðum vegna ákvörðunar þeirra um
að skerða lífeyrisgreiðslur til öryrkja.
Lögfræðingur bandalagsins sendi í
gær út bréf þar sem þess er krafist að
sjóðirnir hverfi frá áætlunum sínum
ellegar verði höfðað mál. Samkvæmt
formanni Öryrkjabandalagsins hafa
verið send út um 400 bréf til lífeyris-
sjóðanna þar sem óskað hefur verið
eftir upplýsingum vegna málsins en
illa hefur gengið að fá svör.
Málið í uppnámi
„Við höfum örfáa daga til stefnu til
þess að lenda þessu. Að öðrum kosti
hefjast hér mjög umsvifamikil mála-
ferli og sennilega ein þau stærstu í
sögu íslandssegir Sigursteinn Más-
son, formaður Öryrkjabandalags
íslands. Lögfræðingur bandalagsins
sendi í gær bréf til lífeyrissjóðsins
Gildis þar sem þess er krafist að
sjóðurinn falli frá fyrirhuguðum
skerðingum á lífeyrisgreiðslum til
öryrkja. „Gildi er stærsti aðilinn
í þessum aðgerðum og því þótti
okkur rétt að senda bréfið þangað,"
segir Sigursteinn. „Við munum láta
á það reyna í þessari viku og fram í
þá næstu hvort menn sjá að sér í mál-
inu. Fyrsta krafa okkar er að þetta
verði að fullu tekið til baka. En það
myndi laga málið ef því yrði frestað
í einhvern tíma.“
Samkvæmt ákvörðun 14 lífeyr-
issjóða frá því í sumar munu líf-
eyrisgreiðslur til um 2.500 öryrkja
skerðast eða falla niður frá og með
1. nóvember næstkomandi. Sjóðirnir
hafa bent á að í mörgum tilfellum
hafi heildartekjur öryrkja í raun
hækkað eftir orkutap og því eigi þeir
ekki lengur rétt á örorkulífeyri. Er
um að ræða bætur upp á hundruð
milljóna króna.
Öryrkjabandalagið hefur nú sent
út um 400 bréf til lífeyrissjóðanna
fyrir hönd skjólstæðinga sinna þar
sem óskað er eftir upplýsingum um
skerðingar og forsendur þeirra. Sig-
ursteinn segir erfiðlega hafa gengið
að fá svör frá sjóðunum. „Við erum
ennþá að senda itrekanir og bréf.
Okkur hefur gengið illa að fá svör frá
þeim og það er ljóst að þetta mál er í
fullkomnu uppnámi. Það verður að
segjast eins og er að vinnubrögð sjóð-
anna eru þeim ekki til sóma.“
Þá kallar Sigursteinn eftir afstöðu
stjórnmálaflokka og segir ljóst að
um stórpólitískt mál sé að ræða.
Bendir hann á að hluti bótagreiðslna
muni einfaldlega færast frá lífeyris-
sjóðunum yfir á ríkið. „Þetta mun
hafa gríðarleg áhrif inn i samfélagið
og það liggur fyrir að ekkert samráð
var haft við stjórnvöld um þessar að-
gerðir. Það getur ekkert stjórnmálaafl
sem vill láta taka sig alvarlega sleppt
því að taka afstöðu til málsins.“
Vilja fá skýringu
Efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis mun funda um málið næsta
föstudag en að sögn Péturs H. Blön-
dal, formanns nefndarinnar, verður
þá kallað eftir útskýringum frá full-
trúum Alþýðusambands íslands og
Samtaka atvinnulifsins. „Við ætlum
að fá upplýsingar frá þessum aðilum
sem stóðu að þessum breytingum.
Ég set spurningarmerki við tekjuvið-
miðun sjóðanna og hvernig hún er
framreiknuð í tengslum við það fólk
sem hefur verið lengi á bótum.“
Pétur telur þó ólíklegt að fjallað
Alþingi
blandar sér
ekki í málið
Pótur H. Blöndal,
alþingismaður
verði um málið á Alþingi. „Alþingi
hefur ekkert forræði í þessu máli.
Við erum bara að kalla eftir upplýs-
ingum en það er ekki inni í mynd-
inni að Alþingi fari að blanda sér
inn í málefni aðila vinnumarkaðar-
ins. Það hefur ekki gefið góða raun
hingað til.“
Samkvæmt upplýsingum frá lif-
eyrissjóðnum Gildi var málið tekið
fyrir á stjórnarfundi sjóðsins fyrir
skemmstu. Komst stjórnin að þeirri
niðurstöðu að ekki væri ástæða til að
falla frá fyrirhuguðum skerðingum
að svo stöddu.
Höfum örfáa
daga til stefnu
Sigurstoinn Másson
formaður Öryrkja-
bandalags Islands
unnar kjötvörur
og álegg.
Persónuleg þjónusta,
gæði á góðu verði
KÁESS ehl . I Smiðjuvegur .36 (gul gata)
POURQUIO-PAS?:
Frakkar vilja friðlýsa flakið
Frönsk stjórnvöld hafa óskað form-
lega eftir því við íslensk stjórnvöld
að þau friði flak franska rannsókn-
arskipsins POURQUOIS-PAS? sem
fórst í Straumsfirði fyrir 70 árum.
Menntamálaráðuneytinu barst
beiðnin í síðustu viku. Mikið af
munum hefur horfið úr flakinu á síð-
astliðnum árum.
„Það er mikilvægt að vernda flakið
og koma þannig í veg fyrir að óvið-
komandi einstaklingar séu að fara
arna og taka muni úr skipinu,“ segir
sa Harðardóttir, forstöðumaður
Byggðasafns Borgarfjarðar. „Það
hefur nánast allt smálegt verið tekið
úr skipinu á undanförnum árum og
áratugum."
Franska rannsóknarskipið PO-
URQUOIS-PAS fórst í Straumsfirði
árið 1936 og liggur nú úti fyrir
Mýrum. Með skipinu fórust 38 vís-
indamenn og skipverjar og þar á
meðal heimskautafarinn Jean-Bapt-
iste Charcot.
Byggðasafnið í Borgarfirði óskaði
eftir því formlega í nýliðnum ágúst-
mánuði að skipið yrði friðlýst. Þá
sendu frönsk stjórnvöld beiðni um
það sama í síðustu viku.
Að sögn Kristínar Huldu Sigurð-
ardóttur, forstöðumanns Fornleifa-
verndar ríkisins, er málið nú form-
legu ferli. „Skipið hefur sögulega
þýðingu fyrir Frakka og íslendinga
og það stendur til að friðlýsa flakið."
Rkkl&stlórntu tyrirskipar r*nn-
sókn á HjcOtnn Valðimareson.
fmm »m?
tltl 1 tttwii.
p m
WuLm(4u«
l(pyk(«anl
Morgunblaðið 22. september
1936 Fréttir af skipskaöanum
bárust skjótt til höfuðborgarin-
nar og vöktu mikla áthygli..