blaðið - 12.09.2006, Page 9
si«fi
Hlutafjárútboð Marel hf.
hefst á morgun
: Seldir veróa 75.000.000 nýrra hluta í Marel í útboói.
|fc Útboðió veróur þrískipt; útboó til forgangsréttarhafa,
fagfjárfesta og almennings.
Þjónustuver Landsbanka íslands hf. mun veita
upplýsingar um útboöió í síma 410 4000.
\Jafnframt munu ráógjafar Landsbankans
veita upplýsingar um útboóió í
síma 410 4040.
ll) 'Hl
* *****
«««
*««
Marel hefur gefió út lýsingu vegna
fyrirhugaðrar hlutafjárhækkunar og
útboðs. Lýsinguna er hægt aó nálgast
á vef Marel www.marel.is, Landsbank-
ans www.landsbanki.is og Kauphallar
íslands www.icex.is. Jafnframt er
hægt aö nálgast prentuö eintök af
lýsingunm hjá útgefanda og ums-
f|i jónaraóila.
Hlutafjárútboð Marel hf. 13. - 14. september 2006
£
r
Útgefandi
Marel hf., kt. 620483-0369, Austurhrauni 9, Garðabæ,
sími 563 .8000, www.marel.is
Umsjónaraðili útboðs og skráningar
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka íslands hf., kt. 540291-2259,
Hafnarstræti 5, 3. hæð, Reykjavík, fax: 410 3007, www.landsbanki.is
spe-.’
Heimild til hlutafjárhækkunar
Á fundi stjórnar Marel hf., sem haldinn var þann 24. ágúst 2006,
var tekin ákvörðun um að nýta heimild í samþykktum félagsins til að
hækka hlutafé félagsins um allt að 75.000.000 hluta og selja fjárfes-
tum í útboði. Útboðið er liður í að styðja við frekari vöxt Marel.
j
Utboðsgengi og heildarsöluvirði útboðs
ÚtboðsgeÉgið er 74,0 kr. fyrir hvern hlut og heildarsöluvirði útboð-
sins eru 5.550 milljónir króna.
Sölutímabil
Frá klukkan 9:00 miðvikudaginn 13. september 2006 til klukkan
16:00 fimmtudaginn 14. september 2006.
Sölutrygging
Landsbanki íslands hf. hefur sölutryggt útboðið að fullu á
útboðsgengi
Gjalddagi
Áskrift í útboðinu er skuldbindandi. Greiðsluseðlar verða sendir
kaupendum í kjölfar áskriftar. Gjalddagi greiðsluseðla er 22. sep-
tember 2006. Hlutir, sem kunna að vera ógreiddir, má stjórn Marel
hf. hvort heldur sem er innheimta með kostnaði eða fella úr gildi og
ráðstafa til þriðja aðila án sérstakrar tilkynningar eða fyrirvara.
Afhending og skráning nýrra hluta
Stefnt er að rafrænni útgáfu og afhendingu nýrra hluta hjá Verðbréfa-
skráningu íslands hf. eigi síðar en 29. september 2006. Hlutirnir verða
skráðir í Kauphöll (slands hf. eigi síðar en 2. október 2006.
Forgangsréttarútboð
Hluthöfum Marel verða alls boðnir 30.000.000 nýrra hluta til kaups og
er áskriftarréttur hlutfallslegur miðað við hlutafjáreign þeirra eins og hún
var skráð í hlutaskrá Marel í lok föstudagsins 25. ágúst 2006. Hluthöfum
er heimiit að skrá sig fyrir færri eða fleiri hlutum en sem nemur
forgangs-rétti þeirra og verður ónýttum forgangsréttarhlutum
útdeilt í hlutfalli við forgangsrétt þeirra sem þess óska.
Áskriftum er einungis hægt að skila rafrænt á vef Landsbankans
www.landsbanki.is. Aðeins forgangsréttarhafar geta skráð áskrift í
þessum hluta útboðsins og þá aðeins að þeir geti gert grein fyrir sér
með kennitölu og lykilorði sem þeir hafa fengið sent í pósti. Rafræn
staðfesting er skilyrði fyrir gildri áskrift. Staðfestingin er birt í lok
áskriftar og hana má prenta út.
Fagfjárfestaútboð
Alls verða 30.000.000 nýrra hluta boðnir fagfjárfestum til kaups.
Einungis þeir sem eru fagfjárfestar samkvæmt skilgreiningu í 2. gr. 1.
mgr. 7. tl. laga nr 33/2003, um verðbréfaviðskipti, hafa heimild til að
taka þátt í þessum hluta útboðsins.
Fagfjárfestar skila inn bindandi áskrift á þar til gerðum áskriftar-
eyðublöðum sem hægt er að nálgast á vef Landsbankans. Stjórn
Marel hefur heimild til að hafna áskriftum í þessum hluta útboðsins
í heild eða að hluta. Verði ekki næg eftirspurn í útboðinu til fagfjár-
festa hefur stjórn Marel heimild til að úthluta óseldum hlutum til
forgangsréttarhafa.
Þeir fagfjárfestar sem fá úthlutað hlutum í útboðinu verður send
tilkynning um samþykki stjórnar á áskrift þeirra f lok útboðsins.
Almennt útboð
Alls verða 15.000.000 nýrra hluta seldir í almennu útboði. Hámarks-
hlutur sem hver fjárfestir í þessum hluta getur skráð sig fyrir eru 10.000
hlutir eða 740.000 krónur að markaðsverði. Ef til umframáskriftar kemur
skerðist hámarks fjöldi hluta sem hverjum áskrifanda er heimilt að kaupa
þar til heildarfjöldi seldra hluta er kominn niður f þann fjölda hluta sem er
til sölu í þessum hluta útboðsins. Skerðing er því ekki hlutfallsleg. Verði
eftirspurn í almenna hluta útboðsins ekki næg hefur stjórn Marel heimild
til að úthluta óseldum hlutum til forgangsréttarhafa.
Áskriftum í almenna útboðinu er einungis hægt að skila rafrænt á vef
Landsbankans www.landsbanki.is. Til þess að skrá áskriftir sínar þurfa
áskriftendur að sækja um lykilorð með því að slá inn kennitölu sína og
netfang og fá þeir þá lykilorðið sent strax í tölvupósti. Rafræn staðfesting
er skilyrði fyrir gildri áskrift. Staðfestingin er birt í lok áskriftar og hana
má prenta út.
Forgangsréttarhafar og fagfjárfestar hafa fulla heimild til þátttöku í
almenna útboðinu án tillits til þátttöku þeirra í öðrum hlutum útboðsins.
TA Landsbankinn
iJTIareL