blaðið - 12.09.2006, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006
blaðið
Vill samstöðu með Bandaríkjunum
Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bret-
lands brýndi nauðsyn þess að Bretar stæðu með
Bandaríkjamönnum í baráttunni gegn alþjóðlegum
hryðjuverkahópum. Thatcher var við minningarathöfn
Hvíta húsinu vegna atburðanna 11. september 2001.
Geimskutla tengist geimstöð
Áhöfn bandarísku geimskutlunnar Atlantis
tókst að tengjast Alþjóðlegu geimstöðinni í
gær. I fyrsta sinn í tæp fjögur bárust nýjar ein-
ingar til uppbyggingar á geimstöðinni.
Atlantis verður við stöðina næstu ellefu daga.
Dýrt spaug
Hagtölur í Danmörku sýna að
hið svokallaða skopmyndamál
hafi bitnað verulega á útflutningi
Samkvæmttölum féll útflutningur
til Mið-Austurlanda um 15.5% frá
febrúar til júní. Múslímar víða um
heim móðguðust í kjölfar þess
að danskt blað birti skopmynd af
spámanninum Múhameð og varð
reiðin meðal annars til þess að þeir
tóku að sniðganga danskar vörur.
I R /I
Þar sem gœðagleraugu
kosta minna
565-5970
Reykjavíkurvegi 22
220 Hafnarfirði
www.sjonarholl.is
9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,- 9.900,-
Sponnnnrli nám hjá NTV
KERFISSTIÓRINN
Kerfísstjórar eru lykilmenn
í öllum fyrirtækjum sem hafa tölvukerfí!
Námið er tvískipt og undirbýr nemendur fyrir tvö alþjóðleg próf:
* A+ prófið frá Comptia
■ MCP (Microsoft Certified Professional)
Fyrri hluti - Tölvuviðgerðir (18. sept. til 14. okt.)
Nemendur læra að uppfæra, bilanagreina og gera við tölvubúnað.
Kennslan ferfram í nýrri, fullkominni tölvuviðgerðarstofu NTV.
Seinni hluti - MCP - XP netumsjón (23. okt. til 2 des.)
Nemendur öðlast færni og kunnáttu til að setja upp og hafa umsjón með
tölvum sem keyra á Windows XP stýrikerfinu, öðlast víðtækan skilning
á netkerfum og verða færir í að leysa vandamál sem að þeim snúa.
* Kvöld og helgarnámskeið
Kennt er mánudaga og miðvikudaga frá 18-22
og laugardaga frá 8:30-12:30. .
"ts
R
<3
oo
-O
<3
R
bo
a
Q
V
bo
R
3
-ii
5í
3
3
'O
:o
£
s
K.
o
I
B
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
UPPL YSINGAR OG SKRÁNING # SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hátt matarverð Guðlaugur Þór
hefur fulla trú á íslenskri fram-
leiðslu og telur brýnt að afnema
tolla og gjöld á innfluttum vörum
til að lækka verð. Jafnframt kenn-
ir hann Framsóknarflokknum um
aðgeröaleysi íþessum efnum.
Afnám tolla og gjalda á innfluttan mat:
Lækka rnatar-
verðið strax
■ Sakar Framsókn um aðgerðaleysi
■ Endurskoða þarf landbúnaðarkerfið
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
„Ég er lengi búinn að vera talsmaður
þess að lækka matarverð á íslandi og
ég vil byrja þá vinnu strax á morgun.
Hingað til hafa verið rangar áherslur
í þessum málum og of mikið hugsað
út i að vernda íslenska framleiðslu,”
segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Löngum hefur verið rætt um að
matvælaverð sé hátt hérlendis og
hvort tveggja bent á innflutningshöft
og fákeppni á markaði sem ástæður
fyrir háu verði. Guðlaugur Þór vill
eindregið afnema tolla og gjöld á
innfluttar vörur til að sporna gegn
þessari þróun og kennir Framsóknar-
flokknum um aðgerðaleysi hingað til.
„Að mínu mati er þetta hugsað
of mikið út frá
menningarlegum
forsendum og slíkt
þarf að skilgreina
mun betur. Land-
búnaðarkerfinu
þarf að breyta,”
segir Guðlaugur
Þór. „Ég vil ítreka
að þessi gjöld þurfi
að afnema almennt,
ekki bara á matvöru,
því í mörgum til-
fellum eru óeðlileg
gjöld á innfluttum
vörum sem eru
langt í frá til þess
fallin að vernda inn-
lenda framleiðslu.
Verslun í landinu
mun aukast mjög
mikið ef við verðum
með sem lægsta tolla
ogvörugjöld.”
Verslun í
landinu mun
aukast mjög
mikið.
Guðlaugur Pór
Pórðarson
þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
Endurskoða
þarf landbún-
aðarkerfið í
heild sinni.
Hjálmar Árnason
formaður þingflokks
Framsóknarflokksíns
Óttalaus samkeppni
Haldlaus rök
Guðlaugur Þór bendir á að um-
ræðan sé á villigötum því að íslenskar
vörur muni siður en svo lenda undir í
samkeppni við innfluttar.
„Verkalýðshreyfingin hefur bent á
að störf kunni að tapast á framleiðslu-
og úrvinnslustigi matvöru en ég hef
ekki trú á því. Annars vegar hef ég
fulla trú á íslenskum vörum í sam-
keppni við innfluttar og hins vegar er
ekkert því til fyrirstöðu að úrvinnsla
geti farið fram á innfluttum vörum
líka,” segir Guðlaugur Þór. „íslend-
ingar munu alltaf halda áfram að
borða islenskt lambakjöt. Ég hef þvi
engar áhyggjur af því að tollar og
gjöld séu afnumin.”
Sameiginleg ábyrgð
Hjálmar Arnason, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, segir
ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna vera
þá sömu og annarra flokka ef því er
að skipta. Hann
segir það vera
einföldun hjá
Guðlaugi Þór að
hengja þetta ein-
göngu á Framsókn-
arflokkinn.
„Enginn ágrein-
ingur er um að
lækka þurfti mat-
arverð á íslandi.
Hann er hins
vegar i þá veru
hvaða leiðir eru
skynsamlegastar
til þess að ávinn-
ingurinn skili sér
í vasa neytenda,”
segir Hjálmar. „Sí-
fellt er dregið upp
að Framsóknar-
flokkurinn sé
gamall landbún-
aðarflokkur og
hann standi vörð
■ Óeðlilegar hækkanir
Blaöið fjallaði um óeðlilegar hækk-
anir á kjötvöru síðustu ár sem eru
langt umfram meðaltalshækkanir á
matvöru almennt.
um landbúnaðinn. Það er eitthvað
sem flokkur á ekkert að skammast
sín fyrir.”
Frá haga til maga
Aðspurður segir Hjálmar vandann
vera víðtækan og íslenskar landbúnað-
arvörur vegi þar ekki þyngst.
„í matarkörfunni telja innfluttar
vörur mest og er munurinn alveg ótrú-
lega mikill i samanburði við útlönd,”
segir Hjálmar. „Ég er þeirrar skoð-
unar að allt landbúnaðarkerfið þurfi
að endurskoða. Vöruverðið er alltof
hátt til neytenda og einhverjir aðrir
en bændurnir virðast fitna á fjósbit-
anum. Það hljóta að vera milliliðirnir
á leiðinni frá haga til maga.”