blaðið


blaðið - 12.09.2006, Qupperneq 23

blaðið - 12.09.2006, Qupperneq 23
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 31 ' Fjölmenni við réttir í Fljótstungurétt Réttir og leitir hafa um árabil sem myndast við réttir að minnsta verið eitt af þeim haustverkum sem kosti einu sinni um ævina og helst gegna hvað þýðingarmestu félags- að gera það að árvissum viðburði. legu hlutverki í sveitum landsins. Fátt er þjóðlegra en réttir Þeim tíma þegar kindur geta gengið og hafa þær orðið skáldum og frjálsar er að ljúka og eru réttir af- textahöfundum að yrkisefni staðnar víða á landinu. öldum saman. Þeirra á meðal má Fjárréttir í Fljótstungurétt í Hvít- nefna Spilverk þjóðanna sem söng. ársíðu fóru fram á laugardaginn. “Rákum fé í réttirnar, í fyrsta og Þrátt fyrir að þungt hafi verið í veðri annan flokk”. Ekki skal fullyrt um mætti fjöldi fólks, en margir telja að hvaða flokk þessar kindur fóru í en allir ættu að upplifa þá stemningu fjörmiklarvoruþæróneitanlega. Pétur Gunnarsson: Er Elín karlremba? Ég var að horfa á stórfrétt dags- ins í beinni útsendingu þegar klukkan varð sjö. Staðan var 3-3 í framlengdum bikarúrslitaleik kvenna, dómarinn flautaði til leiksloka og framundan var víta- keppni til að skera úr um hvort stelpurnar í Val eða Breiðabliki yrðu bikarmeistarar. Þá var útsendingin rofin og tilkynnt að nú væri komið að fréttum! Ég setti mig í stellingar og bjó mig undir að verða fyrir sjokki, minnugur þess að RUV taldi ekki nauðsynlegt að hætta út- sendingu á landsleik Englands og Þýskalands 17. júní árið 2000 þegar Suðurlandsskjálftinn reið yfir. Það hlaut eitthvað rosalegt að hafa gerst. Elín Hirst birtist á skjánum og ég hélt niðri í mér andanum. En viti menn, þrjár helstu fréttir laugardagsins - að hennar mati - voru þessar: 1. Óhapp í norsku kjarnorkuveri - enginn slasaðist; 2. Sumir krakkar í grunnskól- anum eru svo duglegir að læra að þeir eru búnir með námsefnið áður en þeir koma í 10. bekk; 3. Tony Blair vill ekki viðurkenna að hann er pólitískt dauður og hélt ræðu í dag. Eftir að þessar þrjár fréttir voru farnar í ioftið skipti Elín yfir á Laugardalsvöllinn. Fyrir tilviljun voru Valsstúlkur á því augnabliki að tryggja sér sigur- inn með siðustu vítaspyrnunni. Blikar höfðu brennt af tveimur spyrnum. Auðvitað hafði þetta allt verið ótrúlega dramatískt og spennandi en ég fékk ekki að sjá það. Ég vissi ekki hvort ég átti að gráta eða hlæja. Það var hreinlega engin stærri frétt í gangi í íslensku þjóðfélagi í dag en bikarúrslitaleikur kvenna í knattspyrnu. Konurnar á heimilinu voru ekki lengi að saka Elínu um karlrembu og fúllyrtu að þetta hefði aldrei verið gert ef þetta hefði verið bikarúrslitaleikur Vals og Blika í karlaflokki. Dóttir mín manaði litla bróður sinn til þess að hringja í RÚV og kvarta en hann náði ekki sambandi; það voru allar línur uppteknar. http://petrum.blogspot.com/ 50 -to* coflenonð BELLINI BELLINI coiiezione S/vm D strellson eterna CANALI Marmam JRANS collezione Benvenuto. ILOYII REDGREEN BELLINI FRÁ KL. 11

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.