blaðið - 12.09.2006, Page 30
vilborga@centrum.is
38 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006
blaöið
ferðalög
ferdalog@bladid.net
Útrunnið vegabréf
Þaö er leiöinlegt aö uppgötva aö morgni brottfarardags aö vegabréf-
ið sé útrunniö. Því er alltaf best aö kanna hvort allt sé í lagi meö
vegabréfiö tímanlega, jafnvel tveimur mánuöum fyrir brottför. Eins er
nauðsynlegt aö setja þaö á góöan staö svo þaö finnist auðveldlega.
Höfuðborg Skotlands heillar landann
Afþreying
fyrir börnin
Það getur verið erfitt að ferðast
með börn. Því er mikilvægt að
þau hafi eitthvað fyrir stafni á
ferðalaginu. Það þarf ekki að
vera flókið eða dýrt en þarfnast
samt oftast smá skipulagningar.
Til að mynda er nauðsynlegt að
börnin hafi eitthvert hollt nasl
að narta. Öll börn þurfa líka ein-
hverja afþreyingu og það getur
verið einfalt. Farsími er til dæmis
leikfang sem börnin geta gleymt
sér í tímunum saman.
Enginn söluskattur á
barnafötum í Glasgow
Flestir íslendingar kannast
við Glasgow, stærstu borg
Skotlands, enda hefur hún
verið vinsæll áfangastaður í
gegnum tíðina, ekki síst til að versla
í. Fyrir um fimmtán árum voru versl-
unarferðir til Glasgow mjög tíðar og
hjá mörgum var það hefð að fara
árlega þangað. Húsmæður og feð-
ur þyrptust til borgarinnar líflegu
enda var verðið þar töluvert lægra
en hér á landi. Það var einna vinsæl-
ast að skella sér til Glasgow tíman-
lega fyrir jólin til að hægt væri að
kaupa almennilegar jólagjafir og
það var til Argos-listi á hverju ís-
lensku heimili. Glasgow er ennþá
vinsæll áfangastaður þrátt fyrir að
fólk fari kannski ekki þangað gagn-
gert til að versla.
Gott verðlag
Samkvæmt Þorvarði Guðlaugs-
syni, svæðisstjóra íslenska sölu-
svæðisins hjá Icelandair, er alltaf
stöðugur straumur af fólki sem fer
VENDU ÞIG VIÐ GÆÐI - VENDU ÞIG VIÐ EIRVÍK
m
&
til Glasgow.
„Fyrstu sjö mánuðiþessa árs ferðuð-
ust 14 prósentum fleiri til Glasgow á
okkar vegum en á sama tíma í fyrra.
Borgin er líka orðin mjög skemmti-
leg og hefur verið byggð mikið upp
undanfarið.11
Alltaf hefur verið gott að versla í
Glasgow og miðbærinn er þannig
uppbyggður að auðvelt er að rata um
hann. Þorvarður segir að íslending-
ar í Glasgow geri þó margt annað en
einungis að versla.
„Það er sífellt að aukast að fólk fari
í golfferðir til Glasgow. Auk þess er-
um við stundum með tónleikaferðir
þangað, kvennaferðir og fleira. Verð-
lagið í Glasgow hefur líka alltaf verið
talið hagstætt. Það spillir heldur ekki
fyrir að það er ekki söluskattur á
barnafötum í Glasgow. Flestir versla
því eitthvað en það er meira um að
fólk fari þangað til að skemmta sér,
fara í leikhús, á tónleika og hafa það
huggulegt," segir Þorvarður og bæt-
ir við að hótel í Glasgow séu á mun
betra verði en í öðrum borgum Evr-
ópu, eins og London og París.
Borg arkitektsins
Margir fara líka til Glasgow til að
skoða borgina enda eru þar margar
fallegar byggingar. Sumir kalla borg-
ina draum arkitektsins því þar má
sjá alls kyns stefnur og strauma í
arkitektúr. Þar er líka mikið um alls
kyns söfn og gallerí og mörg þeirra
bjóða upp á ókeypis aðgang. Að
sögn Þorvarðar eru ótal ástæður fyr-
Góðir tenglar
www.glasgowguide.co.uk/
maps-full.html
www.glasgowguide.co.uk/
www.seeglasgow.com/
ir því að Glasgow hefur verið vinsæl
hjá landanum um árabil. „Skotar
eru skemmtileg þjóð og líkari okkur
en margar aðrar. Þess utan fer fólk
til að skoða byggingarnar, upplifa
mannlifið og vegna þess anda sem
lifir í Glasgow.“
svanhvit@bladid.net
Míele
VUeie S -ttíi Tango Plus rvksuga
rreö 1800W motoi
\Zerd aóui Wr 24.600
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
• Hebafilter sem hreinsar loftið af
ofnæmisvaldandi efnum.
• Kolafilter sem hreinsaróæskilega lykt.
Hentar vel fyrri þá sem eru með gæludýr.
• Parketbursti úr hrosshárum sem skilar
parketinu glansandi.
• Fæst í rauðu og dökkbláu.
35%
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er innbyggt í vélina.
Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur Miele heimilistækin
li glæsilegustu heimilistækjaverslun landsins.
1 einni 1
EIRVIK -hágæðaheimiHstæki
Ódýrt og fallegt islendingar hafa verið duglegir að sækja Glasgow heim í
Suðurlandsbraut 20 -108 Reykjavík - Sími 588 0200 - www.eirvik.is
gegnum tíðina enda er verðlagið þar einkar hagstætt og ekki spillir fyrir að
þar er ekki söluskattur á þarnafötum.
Tvískiptir Jersey kjólar. Þýskar síðbuxur frá Robell. Ný sending.
—VEpálisH/ui
við Laugalæk * sími 553 3755