blaðið - 03.10.2006, Page 2

blaðið - 03.10.2006, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 blaðið VEÐRIÐ í DAG Hvasst Sunnan og suðaustan þrír til þrettán metrar á sekúndu, hvassast vestantil. Súld eða lítilsháttar rigning á Suður- og Vesturlandi, en áfram bjartviðri norðaust- antil. Hiti 3 til 10 stig. Á MORGUN Lægir Suðaustan þrír til átta metrar á sekúndu og súld eða dálitil rigning, en þurrt og bjart veður norðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig. VÍÐAUMHEIM | Algarve 21 Amsterdam 17 Barcelona 26 Berlín 17 Chicago 16 Dublin 14 Frankfurt 14 Glasgow 15 Hamborg 16 Helsinki 13 Kaupmannahöfn 16 London 15 Madrid 20 Montreal 12 New York 15 Orlando 24 Osló 12 Palma 27 París 16 Stokkhólmur 15 Þórshötn 8 'úmsTunofíHúsiQ Björgunarsveit mætti vélhjólamönnum: Lögregla: Rifist um naggrís Tveimur einstaklingum var svo heitt í hamsi vegna deilna um eignarhald á naggrís að þeir leituðu til lögreglunnar í Reykja- vík um helgina. Þeir ætluðust til þess að lögreglan kvæði upp Salómonsdóm. Lögreglan brást hin besta við en benti þeim á að málið yrðu þeir að leysa sjálfir enda um einkamál að ræða. Hvalfjarðargöng: Skemmdi og stakk af Ökumaður fór utan í vegg í Hvalfjarðargöngunum aðfaranótt laugardagsins og stórskemmdi dúkinn á allt að fimmtán metra löngum kafla. Samkvæmt frétt frá Speli skemmdist bíllinn einnig veru- lega en maðurinn lét sig hverfa af vettvangi án þess að tilkynna um áreksturinn. Bílstjórinn var á leið norður, einn á ferð og slasaðist ekki. Hann gaf sig fram síðdegis á laugardaginn og tók lögreglan hann tali. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Vélhjólamaðurinn Hjörtur L. Jónsson sakar ökumann jeppa frá björgunar- sveitinni Ársæli um að hafa vísvitandi ekið í veg fyrir sig þegar þeir mættust á vegarslóða á laugardaginn fyrir viku. Hjörtur kallar atvikið morðtil- raun og prísar sig sælan að hafa náð að víkja úr vegi jeppans. Formaður björgunarsveitarinnar, Gylfi Sævarsson, segir málið byggja á miskilningi. Aldrei hafi vakað fyrir ökumanninum að þvinga vélhjólið út afveginum. Þvingaður til utanvegaaksturs Hjörtur fór fremstur í flokki sjö vélhjólamanna sem voru á leið frá Krakatindi í átt að Dalakofa þegar þeir mættu tveimur jeppum og var sá fremri merktur björgunarsveitinni Ár- sæli. Hann segir að í stað þess að víkja til hægri eins og venja sé hafi jeppinn beygt í veg fyrir mótorhjólið. „1 allri umræðunni um öryggi og slys í umferðinni undanfarið finnst mér þessi hegðun furðuleg," segir Hjörtur L. Jónsson vélhjólamaður. Hann segist hafa fregnað að fyrir öku- manni jeppans hafi vakað að hægja á mótorhjólamönnunum. Hópurinn hafi alls ekki verið á mikilli ferð. Með- alhraðinn í ferðum þeirra sé yfirleitt undir 50 kílómetrum á klukkustund. „Það eru tvö hjólför áþessum slóðum. Bílstjórinn var kominn til hægri eins og hann á að gera og ég gerði slíkt hið sama og hélt mig utarlega í hjólfarinu. Hann var greinilega eitthvað ósáttur við að ég færi ekki alveg upp úr því og beygði einfaldlega í veg fyrir mig.“ Hjörtur segist hafa neyðst til að slá af og beygja út af slóðanum. „Þar með var ég kominn í utanvegaakstur sem var alls ekki ætlunin.“ Hjörtur segir að bílstjórinn hafi haft sama háttinn á við þá sem á eftir komu. Aldrei lent í þessu áður „Mér dettur helst í hug að umræðan um þessa fáu vitleysinga sem keyri utan vegar og spilli náttúrunni hafi orðið til þess að við hin, þrjú þúsund talsins, höfum verið stimpluð sem villimenn og glæpamenn sem séu réttdræpir þar sem til þeirra næst.“ Hjörtur sendi kvörtunarbréf til björg- unarsveitarinnar og í svari við því frá björgunarsveitinni segir að jepparnir hafi verið stopp þegar hóparnir mætt- ust. Þetta segir Hjörtur vera af og frá. ,Ég er bara að biðja um afsökun. Hún hefur ekki borist og ég er bara fúll og reiður." Hann segist ekki bjóða í hvað hefði gerst hefði óreyndari mótorhjóla- maður lent í þessu. „Ég er með þrátíu ára reynslu og átti (erfiðleikum með að forða mér. Fyrir mér var þetta ekk- ert annað en morðtilraun." Misskilningur Gylfi Sævarsson, formaður björgun- arsveitarinnar, segir að í þessu atviki standi einfaldlega orð gegn orði. „Ég hef talað við alla sem voru í þessari ferð okkar," segir hann. „Þeim ber saman um að enginn hafi verið þving- aður út af veginum." Gylfi segir að í bréfinu sem hann fékk frá Hirti hafi komið fram að mótorhjólamennirnir hafi komið rólega á móti bílunum á 50 til 60 kílómetra hraða. „Það túlka ég reyndar ekki sem rólegan hraða á svona vegi.“ Að sögn Gylfa getur það gerst þegar stórir jeppar eru að beygja upp úr hjólförum að framendinn kastast til. „Hann hefur kannski séð svoleiðis hreyfingu. Þetta er ofboðs- lega leiðinlegt atvik og ég veit að það var ekki meining neins að svína í veg fyrir hjólið. Og það var ekki gert.“ Eldur í íbúð í fjölbýli á Akureyri: Reykjavík: 93 teknir fyrir hraöakstur Alls voru 93 teknir fyrir hrað- akstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Tveir piltar um tvítugt voru teknir í kappakstri á sunnudag á Sæbrautinni en þeir mældust á rúmlega 130 kílómetra hraða. Nóttina áður stöðvaði lögreglan 19 ára gamlan pilt á 137 kíló- metra hraða þar sem leyfilegur hraði var 60 kílómetrar á klukku- stund. 21 árs piltur ók hraðast. Hann mældist á 139 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut- inni. Flestir eiga yfir höfði sér sviptingu ökuleyfis en ljóst er að margir þurfa að borga ansi háar sektir fyrir að flýta sér fullmikið. Fangar í Brasilíu: Ræðismaður hitti Ingólf Ræðismaður íslendinga í Bras- ilíu, Arne Spjaer Arnesen yngri, fékk í fyrsta sinn að hitta Ingólf Rúnar Sigurz, sem var hand- tekinn í Sao Paulo í ágúst fyrir fíkniefnamisferli. Heimildir herma að hann hafi hitt hann í síðustu viku. Ingólfur var handtekinn í ágúst með tólf kíló af hassi í hátalaraboxi. Hann er ekki eini fslendingurinn í gæsluvarðhaldi í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls, því Hlynur Sigurðsson situr einnig í fangelsi, tekinn með tvö kíló afkókaíni. Þrír voru fluttir á slysadeild vegna reykeitrunar eftir bruna á neðri hæð í Hamragerði 25 á Akur- eyri stuttu eftir miðnætti aðfara- nótt gærdagsins. Allir útskrifuðust eftir skoðun á Fjórðungssjúkrahús- inu og munu ná sér að fullu. Fimm voru í húsinu þegar eldur- inn braust út. íbúar á neðri hæð hússins voru vakandi þegar þeir urðu eldsins varir. Hann var þá orð- inn svo mikill að þeir fengu ekki við neitt ráðið. Þeir vöktu íbúa efri hæðarinnar og komu þau sér öll út úr húsinu af sjálfsdáðum Um 20 mínútur tók að slökkva eld- inn en eignatjón varð mikið í íbúð- inni sem brann. Einhverjar reyk- skemmdir urðu í hinum tveimur íbúðum. Talið er að kviknað hafi í út frá logandi kerti í svefnherbergi. Mikill eldur braust út Fimm íbúar voru íhúsinu þegar eldsins varð vart. HPI SAVAGE 3,5 , STERKUR OG ÖFLUGUR 4X4 FJARSTÝRÐUR TOR- FÆRUTRUKKUR Á HAGSTÆÖU VERÐl.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.