blaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 18
blaðið
blaöið
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Janus Sigurjónsson
Eitt ár
Eitt ár er slðan Fréttablaðið hóf að birta fréttir, sem að mestu voru byggðar á
tölvupóstum sem höfðu gengið milli fólks sem kom að aðdraganda Baugsmálsins,
og þær fréttir höfðu veruleg áhrif á samfélagið. í þeim fréttum kom fram að fólk
sem ekki var beinn þátttakandi í málinu eða hafði beinna eða sérstakra hagsmuna
að gæta hafði setið á fundum og undirbúið kæru til lögreglu. Það er rétt um eitt ár
síðan þetta mál skók samfélagið. Flestum er enn í minni allt það sem fylgdi á eftir,
svo sem lögbann sýslumanns á gögn blaðamanna, málarekstur Jónínu Benedikts-
dóttur gegn Fréttablaðinu og ótvíræður sigur vandaðrar blaðamennsku á tveimur
dómstigum. Reyndar er ekki að sjá að Fréttablaðið muni þessi tímamót, allavega
er þeirra ekki getið í blaðinu.
Fjölmiðlum er mikils virði að geta unnið í friði fyrir ofbeldi hins opinbera, sama
hver fær valdið í lið með sér, og þess vegna er tölvupóstsmálið og eftirmál þess mik-
ilsvert í sögu nútímafjölmiðlunar. Lögbanni sýslumannsins var hafnað á tveimur
dómstigum. Þó Fréttablaðið kjósi að láta sig þessi tímamót engu skipta er ekki
sjálfgefið að aðrir geri það. Oft hefur verið sótt að fjölmiðlum og þeim sem þar
starfa. I þessu máli var það gert og upp risu allskyns málsverjendur þeirra sem
við sögu komu. Það gáfu sig líka fram málsverjendur sem sögðu ekkert að því að
helstu trúnaðarmenn þáverandi forsætisráðherra hafi átt fundi um Baugsmálið
nokkru áður en það var kært til lögreglu og það risu upp verjendur sem fannst
ekkert merkilegt þótt þáverandi forsætisráðherra hafi verið nefndur sérstaklega
og ekki heldur þó núverandi forsætisráðherra og þáverandi fjármálaráðherra hafi
einnig komið til tals hjá þeim sem mest og best unnu að því að gera Baugsmálið að
opinberu refsimáli.
Þrátt fyrir að vönduð og góð blaðamennska hafi farið með sigur af hólmi fyrir
dómstólum eimir enn eftir af hinni sérstöku vörn þeirra sem stýrðu aðdraganda
kærumálsins, að í tölvupóstsmálunum hafi ekkert sérstakt komið fram. Það er
rangt að halda því fram. Einkum og sér f lagi þegar skoðað er hvaða útreið þetta
sérstaka mál, það er Baugsmálið sjálft, hefur fengið hjá dómstólum. Málið hefur
nánast verið berstrípað fyrir dómstólum og tölvupóstsmálið reyndist þegar upp er
staðið vera minnisvarði um getu, kjark og festu fjölmiðils til að halda áfram með
gott fréttamál, þrátt fyrir ótrúlegan andbyr og ónot.
í fyllingu tímans mun Baugsmálið verða rannsakað með öðrum hætti en gert
hefur verið, það verður gert af opinberum yfirvöldum eða öðrum, og þá mun skýr-
ast betur hvernig var staðið að kærunni sem varð að þessu stóra og sérstaka máli,
þá mun skýrast hver aðdragandi Baugsmálsins var og þá munu fleiri staðreyndir
um undirbúning málsins verða staðfestar og þær munu hafa áhrif. Þá verður gott
að hafa fjölmiðla sem hafa kjark.
Sigurjón M. Egilsson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hédegismóum 2,110 Reykjavík
Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Opnunartimi:
Virka daga 16-22
Um helgar 12 - 22
Hækkaðu þig
upp um einn
PfiPINOS
Núpalind 1 Hverafold 1-5 Reykjavikurvegi 62
Kópavogi Grafarvogi Hafnarfirði
SMÁAUGLÝSINGAR
18 ÞRIÐJDAGUR 3. OKTÓBER 2006
'ÍÍSL'eWSka teiMAÝARMlj-QiP
UzGCbfc toKS TtX Atlv&v
vh? öVlTs/iM|s|
1 * Ö K'T'. 7° ° (>
i-4 A LL-p'oXI ~ T T V
Að mála
bæinn grænan
Dofri Hermannsson, varaborg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar,
sendi mér kveðju hér í Blaðinu á
föstudaginn. Kveðjan sýnist mér
hugsuð sem einhvers konar svar
við grein minni um umhverfismál
sem einnig birtist hér í Blaðinu í
síðustu viku þótt efnislega sé fátt
um svör er varða umhverfismálin.
Dofri er til að mynda nokkuð upp-
tekinn af þeim orðum mínum að
eftir að vinstri flokkarnir hafi gef-
ist upp á að kenna sig við alþýð-
una hafi þeir ákveðið að marka
sig með grænu. Þetta hélt ég að
væru almælt tíðindi og þykir leitt
ef Dofra hefur brugðið svona við
þau.
Að dæmi VG
Vinstri grænir riðu sem kunnugt
er á vaðið við stofnun flokksins fyrir
sjö árum. Samfylkingarmenn hafa
jafnan talað af nokkru yfirlæti um
vinstri græna enda gerði stofnun
VG upphaflegan tilgang Samfylking-
arinnar, að sameina vinstri menn,
að engu. Allt þetta ár hafa samfylk-
ingarmenn hins vegar verið að gera
stefnu og starfshætti vinstri grænna
að sínum. Þetta varð ekki síst áber-
andi eftir sveitarstjórnarkosning-
arnar í vor þar sem Samfylkingin
náði litlum árangri en vinstri grænir
styrktu sig verulega í sessi. Þegar
skoðanakannanir bentu svo til að
vinstri grænir væru orðnir álíka
stórir og Samfylkingin á landsvísu
þurfti Samfylkingin ekki frekari
vitna við og hóf að mála sig græna.
Og stefnir út í horn.
Eltingarleikurinn við
skoðanakannanir
Þessi eltingarleikur Samfylkingar-
innar við skoðanakannanir og tíma-
bundnar vinsældir vinstri grænna
Sigríður Ásthildur Andersen
tekur á sig ýmsar myndir. í stað
mynda af forystumönnum flokksins
má nú aðeins sjá náttúru- og útilífs-
myndir þegar farið er inn á vef Sam-
fylkingarinnar. Ef fram heldur sem
horfir verða stokkar og steinar á
næsta framboðslista flokksins. Sam-
fylkingin hljópst svo frá fyrri stefnu
sinni varðandi Norðlingaölduveitu.
Þau umskipti urðu raunar þannig að
daginn eftir ágætlega sótta tónleika
gegn virkjuninni hélt þingflokkur
Samfylkingarinnar neyðarfund og
skipti um skoðun í málinu. Sam-
fylkingin býður höfundi Drauma-
landsins gull og græna skóga í þeirri
von að lokka hann á framboðslista
sinn. Fréttir hermdu að hann fengi
jafnvel sæti á framboðslista án þess
að taka þátt í prófkjöri en fram til
þessa hefur aðeins Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir notið þeirra forrétt-
inda. Ingibjörg Sólrún býr einnig að
þeirri dásamlegu sérstöðu að hafa
verið andvíg álverum fyrir kosn-
ingar (1991) og fylgjandi þeim strax
eftir kosningar en einnig fylgjandi
álverum fyrir kosningar en andvíg
þeim eftir kosningar (2003).
Fimm ára frost
Síðast en ekki síst lagði Sam-
fylkingin nú í september fram há-
stemmdar tillögur undir nafninu
„Fagra ísland" um að setja alla nýt-
ingu náttúruauðlinda landsins á ís
næstu fimm árin. Síðan hafa forystu-
menn flokksins vítt og breitt um
landið verið að sverja tillögurnar af
sér. Dofri Hermannsson nefnir þær
heldur ekki einu orði í grein sinni.
Allt bendir því til að það eina sem
sett verður í frysti til næstu fimm
ára séu einmitt þessar nýju tillögur
Samfylkingarinnar.
Höfundur er lögfræðingur.
Klippt & skorið
Keflvíkingar urðu um
helgina bikarmeist-
arar (fótbolta gegn
andlausu liði KR-inga og fagn-
aði hið öfluga lið stuðnings-
manna sigrinum að vonum ákaflega. Stuðn-
ingsmannaliðið var þó jafnvel enn öflugra en
nokkur hafði búist við, eins og sást á því þegar
Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, gekk
í stúkuna meðal stuðningsmanna Keflavíkurl-
iðsins, en fram að þessu hafa menn yfirleitt
gengið út frá því sem vísu að hinn hafnfirski
ráðherra væri FH-ingur. Ekki minna urðu menn
þó hissa þegar Vestmannaeyjaþingmaðurinn
(og fyrrverandi leikmaður ÍBV) Lúðvík Berg-
vinsson snaraðist inn á pallana með Keflavík-
urtrefil um hálsinn. Það mætti halda að það
væru prófkjör í nánd.
Nokkur kurr er meðal sjálfstæðis-
kvenna vegna ákvörðunar Guðfinnu
J. Bjarnadóttur, rektors Háskólans
í Reykjavík, um að sækjast
eftir 3. sætinu í prófkjöri
sjálfstæðismanna í lok mán-
aðarins. Telja þær margar
háskaleik hjá henni að bjóða
sig fram gegn Ástu Möller, þingmanni og
formanni Landssambands sjálfstæðiskvenna,
því úr gæti orðið afdrifarík systrabylta. Aðrar
fagna hins vegar nýjum og óþreyttum liðs-
manni í flokkinn, því fram að þessu hefur Guð-
finna forðast pólitíkina eins og heitan eldinn
og staðið utan flokka alla tíð. Það er að segja
alveg þangað til síðasta föstudag þegar hún
loks gekk í Sjálfstæðisflokkinn en um framboð
sitt tilkynnti hún á sunnudag.
Annars má segja að próf-
kjör sjálfstæðismanna _ _
hafi hafist á sunnudag, 1’ tj
enþáopnuðuþeirGuðlaugur
Þór Þórðarson, sem sækist
eftir 2. sætinu, og lllugi Gunnarsson, sem
sækist eftir 3. sætinu, kosningamiðstöðvar
sínar. Á fimmta hundrað manns komu til opn-
ananna, en talsvert var um að gestirnir færu á
milli, þannig að sjálfsagt hafa um 6-700 sjálf-
stæðismenn verið í hátíðarskapi á þeytingi
á sunnudag. Athygli vakti að báðir frambjóð-
endurnir lögðu talsvert upp úr málefnalegri
afstöðu sinni í ræðuhöldum, þannig að máske
hillir undir hugmyndafræðilega endurnýjun
meðal sjálfstæðismannna.
andres.magnusson@bladid.net