blaðið - 11.10.2006, Side 28
EINN. TVEIROG ÞRlR 21345
Ma spara
þér sporin?
!■'. 1... ■ : . víj
I ■f ^ 1 \
W 1 1 ■
V w 1
Ný þjónusta
við flokkun og
endurvinnslu!
28 I FJÁRMÁL HEIMILANNA MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 blaöiö
Álver í mótun Rétt tæplega þriðjungur starfsmanna viö áiver Alcoa verða konur. Forsvarsmenn vilja fleiri og efndu þvi
til kvennadags síðasta sunnudag og kynntu starfsemina.
Við þurfum að
spegla samfélagið
Forstjóri Alcoa vill fleiri konur ó vinnustað.
Nú geta íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengið sérmerkta
endurvinnslutunnu hjá Gámaþjónustunni hf. sem m.a.
tekur við öllum pappír heimilisins, dagblöðum, tímaritum,
umslögum, skrifstofupappír og pappa, fernum, plast-
umbúðum og málmum.
Einfalt í framkvæmd:
Allur pappír og bylgjupappi má fara beint í tunnuna en
fernur, málmar og plast fari í aðskilda poka í sömu tunnu.
Mánaðargjald fyrir hverja tunnu er 990 kr. og tæmt verður
á fjögurra vikna fresti.
Endurvinnslutunnuna er hægt að panta
í síma 535 2510, á netfanginu gamar@gamar.is
og einnig á heimasíðu Gámaþjónustunnar hf.
www.gamar.is
Komið verður með tunnur heim til viðtakenda.
GÁMAMÚNUSTAN hf.
BÆTT UMHVERFI - BETRIFRAMTÍÐ
Sími: 535 2500 • gamar@gamar.is • www.gamar.is
Alcoa Fjarðaál efndi til sér-
staks kvennadags fyrir
konur á Austurlandi síðasta
sunnudag en markmiðið
með uppákomunni var að kynna
álver Alcoa Fjarðaáls sem góðan
vinnustað fyrir konur.
Tómas Sigurðsson, forstjóri
Fjarðaáls, segir það vera mikilvægt
að ná því jafnvægi sem er innan
samfélagsins innan fyrirtækja.
Hann segir ekkert starf vera til sem
sé ekki líka fyrir konur.
„28 prósent starfsmanna Fjarða-
áls eru nú konur og fer vaxandi,”
segir Tómas og segist ennfremur
seinþreyttur á að biðja konur um að
koma til starfa í fyrirtækinu.
Aðspurður um hvers vegna konur
vilji ekki vinna í fyrirtækinu segir
hann það vera vegna þeirrar ásýndar
sem hefur verið á stóriðju. „Stóriðja
hefur tekið miklum tæknifram-
förum á síðustu árum,” segir hann.
Það þarf ekki líkamlegan styrk, það
er bábilja sem við viljum kveða
niður. Álver er hátæknivæddur
vinnustaður og störfin þarfnast
ekki líkamlegs styrks. Við viljum
eðlilega kynjadreifingu af mörgum
ástæðum, sú helsta er að mórallinn
verður jákvæðari og heilbrigðari.”
Tómas segist enn vera að móta
stefnu fyrirtækisins í fjölskyldu-
málum. Það sé frumskilyrði þess að
geta byggt upp heilbrigðan vinnustað
til frambúðar. „Ákveðinn sveigjan-
leiki þarf að vera til staðar. Við viljum
að fólk hafi tök á að skipuleggja vaktir
sem henta einkalífi þess. 82 prósent
vinnufærs fólks er úti á vinnumark-
aðnum,” bendir hann á. „Þannig að
allir í fjölskyldunni eru að vinna. Það
er því lykilatriði, vilji fyrirtæki huga
að góðri starfsmannastefnu, að það
reyni að stuðla að því að starfsmenn
geti sinnt fjölskyldu og heimili.”
Tómasi finnst það vera sjálfsagt
hlutverk forstjóra að reyna að
jafna kynjahlutfall innan fyrir-
tækja og reyna að gæta jafnræðis.
,Við þurfum að spegla samfélagið,”
segir hann og bendir á að fjöl-
margar rannsóknirsýniframáað
einsleitt vinnuafl sé ekki vænlegt
til árangurs. „Mér finnst þetta
vera hluti af því að byggja upp
heilbrigt fyrirtæki til langs tíma,“
segir hann. „Fjarðaál er komið til
að vera og við viljum að það vaxi
til langs tíma. Ég þarf að skapa
heilbrigðan vinnustað sem er í
sátt við samfélagið.”
dista@bladid.net