blaðið - 11.10.2006, Page 31
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 31 *
Stóriðjubörnin og eineltið
Undanfarna daga hefur á síðum
dagblaða og í sjónvarpi gefið að
líta ýmsa fulltrúa og starfsmenn
stóriðjunnar sem hafa barmað sér
yfir harðri gagnrýni á störf þeirra.
Nú seinast bættist fyrrverandi
þingmaður sjálfstæðismanna, Vil-
hjálmur Egilsson, í hópinn og talaði
hvorki um meira né minna en ein-
elti í garð þessarar atvinnustefnu.
Nú hefur mig að vísu lengi grunað
að hugtakið einelti merki eitthvað
allt annað í huga sjálfstæðismanna
en ég hef átt að venjast. Ég minn-
ist upphrópana um einelti af hálfu
dómsmálaráðherra þegar mál Árna
Johnsen var til umræðu en hef aldrei
heyrt hann minnast á slíkt vegna
Baugsfeðga. Til að skýra málið að-
eins út fyrir sjálfstæðismönnum og
öðru ágætu fólki er ef til vill rétt að
skoða aðeins afl og valdajafnvægi
þeirra sem tekist hafa á í hernaði
stóriðjunnar gegn landinu.
Hver er aflsmunurinn?
Náttúruperlur fslendinga eru
rannsakaðar með augum orkuiðnað-
arins. Orkuiðnaðurinn, að mestu í
eigu opinberra aðila, hefur á síðustu
árum haft úr milljörðum að spila til
að rannsaka náttúruna á sínum for-
sendum. Út frá þeim rannsóknum
er stefnan mörkuð um óafturkræfa
eyðileggingu á sameiginlegum nátt-
úruverðmætum landsmanna.
Aðeins þyrfti rúmar íoo milljónir
til að klára nauðsynlegustu rann-
sóknir á öllum háhitasvæðum lands-
ins - það sama og kostar að bora
eina tilraunaborholu. Fjármagnið
fæst ekki og það er ekki skrýtið
- það er orkumálayfirvalda að veita
Náttúruverndarstofnun peningana,
ekki umhverfisráðuneytis. Slátrar-
inn vill ekki hleypa ræktunarráðgjaf-
anum í stóðið.
Ríkisstjórnin ætti að vera löngu
búin að staðfesta Árósasamninginn
sem kveður á um að almenningur
og frjáls félagasamtök hafi rétt á upp-
lýsingum, þátttöku í ákvarðanatöku
og aðgangi að réttlátri málsmeðferð
í umhverfismálum. Samningurinn
hefurekkiverið staðfestur, enda telja
stjórnvöld sig víst verða fyrir nógu
miklu „einelti“ þó þau staðfesti ekki
alþjóðlega mannréttindasamninga.
Einstaklingar og frjáls félagasam-
tök hafa af veikum mætti reynt að
sinna eftirlits- og upplýsingahlut-
verki gagnvart almenningi. Það
er ójafn leikur. Til dæmis fá Nátt-
úruverndarsamtök íslands um 2,5
milljónir árlega í styrk frá ríkinu
til að stunda rannsóknir, kaupa sér-
fræðiaðstoð og kynna sjónarmið sín
almenningi. Varlega áætlað notar
Landsvirkjun á annað hundrað millj-
óna árlega til kynningarmála. Orku-
veitan annað eins og þar á ofan hefur
ríkisstjórn íslands veitt hundruð
milljóna í markaðssetningu á
hinum ódýru orkulindum landsins
og trúboð stóriðju innanlands.
Hver eltir hvern?
Ekki ætla ég að draga dul á það að
úr hópi virkjanaandstæðinga hafa
stundum komið fram ómálefnalegar
staðhæfingar. Það væri líka und-
arlegt ef enginn hefði undanfarin
ár slysast til að segja ómálefnalega
setningu af þeim þúsundum sem i
fritíma sinum hafa reynt að stunda
varnarbaráttu fyrir landið gegn ofur-
eflinu sem lýst er hér að ofan. Það er
hins vegar ekki það sem stóriðjuöflin
Talsmenn
stóriðjunnar
barma sér.
Dofri
Hermannsson
svíður undan heldur hitt að færð
hafa verið gild rök gegn stóriðjustefn-
unni og almenningi kynntar aðrar
hliðar málsins en þessum aðilum
eru þóknanlegar. Að væla yfir því er
aumingjaskapur og að kalla það ein-
elti er hræsni af verstu sort.
Ég veit dæmi þess að menn í æðstu
stöðumhafimeðbeinumogóbeinum
hætti hellt sér yfir og haft í hótunum
við einstaklinga og fjölmiðlafólk
sem hefur leyft sér að fjalla um stór-
iðju- og virkjunarmál á annan hátt
en þeim Hkar. Landsvirkjun beitir
að auki því ósmekklega bragði að
birta „án ábyrgðar“ rógsgreinar
starfsmanna sinna á heimasíðu fyr-
irtækisins. Ritstjóri karahnjukar.is
bloggar prívat um kvöld og helgar og
kallar gagnrýnendur fyrirtækisins
lygara. Undarlegur mórall á þeim
bæ. Eftir höfðinu dansa limirnir. Ef
Vilhjálmur Egilsson vill kynna sér
einelti þarf hann ekki að vaða yfir
lækinn til að sækja vatnið.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar.
Flottur sportjeppi
á frábæru verdi
2.495.000 kr
A
MITSUBISHI
MOTORS
Stadalbúnadur:
Sítengt aldrif
Álfelgur
Vindskeid
Þakbogar
Skyggdar rúdur
ABS hemlalæsivörn
Mikil veghæd, 19,5 cm
Outlander 4X4
Öflug tveggja lítra 136 hestafla vél
OUTLANDER
HEKLA
26.116 kr. á mánudi
Miöað við 30% útborgun og gengistryggðan bílasamning SP til 84 mánaða.
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 • HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 • HEKLA, Isafiröi, sími 456 4666 I HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 • HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 I www.hekla.is, hekla@hekla.is