blaðið - 11.10.2006, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
blaóiö
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Eigum við séns í Sviana?
Landslið islands og Svíþjóöar mætast á Laugardalsvelii i dag.
Liðin mættust siðast í ágústmánuði en þá tapaði Island 4-0.
Gíiðjón Þórðarson,
þjálfari Skagatnaiiiia
„Það er alltaf séns í fótbolta. Við verjumst þegar
við erum boltalausir og sækjum þegar við erum
með boltann. Þetta er svo dásamlega einfalt."
HEYRST HEFUR...
Dúnúlpur
Rúskinnsúlpur
Leðurjakkar
Vattkápur
Hattar - Húfur
Leðurhanskar
Ullarsjöl
Góð gjöf
Ég bakaði ávaxtatertu handa þér, en vörðurinn
sagði að hægt væri að nota hana fyrir vopn.
ijtsöluhorn ^ÖV' I ll/| Jl| /
50 % afsl. Mörkinni 6, Sími 588-5518
r x .. Opið virka daga frá kl. 10-18
Goöar vörur oglaugardagafrákll0-16
Sumir telja það mikinn
heiður fyrir Reykvíkinga
að listakonan Yoko Ono skyldi
velja súlunni
góðu stað í
borgarlandinu
en aðrir láta sér
fátt um finnast.
Spéfuglinn
Davíð Þórjóns-
son blandar
sér í umræðuna með óvæntum
hætti á bloggsíðu sinni og birtir
þar þessa smellnu vísu.
Friðarsúlan
Að allir þrái alheimsfrið
er engin tímaskekkja.
En hvernig er að vinna við
að vera ekkja?
Engan skyldi svo sem undra
að friður sé Davíð ofarlega í
huga þessa dagana enda hratt
hann nánast af stað trúarstríði
í netheimum með athugasemd-
um sínum um trúleysingja á
dögunum.
Vopnin hafa snúist i höndun-
um á Auðunni Blöndal og
félagar hans í fjölmiðlabransan-
um freista þess að „taká’ Audda
þegar færi gefst. 1 siðustu viku
höfðu umsjónarmenn Kastljóss-
ins drenginn að
fífli þegar þeir
fengu sminku
til að mála hann
sem trúð fyrir
viðtal án þess að
hann gerði sér
grein fyrir því. Þá fékk Rúnar
Róbertsson, útvarpsmaður á
Bylgjunni, Sigmar Vilhjálms-
son, sjónvarpsmann og vin
Audda, til að gera honum síma-
hrekk. Sigmar tilkynnti Audda
að hann fengi ekki frekari
þóknun fyrir DVD-diska með
Strákunum og 70 mínútum
enda kvæði ekkert á um það í
samningum. Auddi brást hinn
versti við og kvartaði sáran
undan meðferðinni á sér áður
en Sigmar upplýsti að um hrekk
væri að ræða. Þótti Audda uppá-
tækið ekkert sérlega fyndið og
vildi fá að heyra upptökuna áður
en hún færi í loftið.
12-1
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
Skrautlegir rósaleppar og
leyndarmál salatsósunnar
„Ég heillaðist af rósaleppaprjóninu
meðan ég stundaði nám í textíl- og
fatahönnunardeild Listaháskóla
Islands. Ég fór á Þjóðminjasafnið,
kynnti mér hvað til er af leppaprjóni
þar og fór að safna mynstrum án
þess að gera mér fyllilega grein fyr-
ir hvað ég ætlaði að gera við þau. Ég
skrifaði svo ritgerð um rósaleppa-
prjón í skólanum og upp úr því fór ég
að gera ýmsar tilraunir með mynstr-
ið enda er það ótrúlega fallegt og út-
færslurnar mjög fjölbreyttar,” segir
Héléne Magnússon. Hún gaf nýlega
út bókina Rósaleppaprjón í nýju ljósi
þar sem saga hins forna, íslenska
rósaleppaprjóns er rakin.
I bókinni birtir Héléne líka sín
eigin prjónamynstur sem hún hefur
hannað út frá hinu forna rósaleppa-
prjóni. Næstkomandi laugardag
klukkan 16.00 verður opnuð sýning á
rósaleppaprjóni Héléne Magnússon
á Torginu í Þjóðminjasafni íslands
og má þar sjá margar fallegar flíkur
sem hún hefur unnið með hliðsjón
af þessari gömlu íslensku hefð. „Það
eru ekki til margar eldri heimildir
um rósaleppaprjón þannig að það er
erfitt að tímasetja nákvæmlega hve-
nær það fór að verða algengt. Flestar
varðveittar heimildir eru frá 19. öld
svo það er erfitt að segja hversu göm-
ul þessi hefð er.“ Héléne er frönsk en
fluttist hingað til lands árið 1995 eft-
ir að hafa heillast af landinu í stuttri
heimsókn. Stuttu síðar kynntist hún
svo eiginmanni sínum, Skúla Magn-
úswni lögfræðingi.
„Ég lærði lögfræði í Frakklandi og
starfaði sem lögmaður í París um
tíma. Ég fór í lögfræði vegna þess að
mér fannst hún áhugaverð. Hins veg-
ar skorti mig þá ástríðu sem þarf til
að vakna á hverjum einasta morgni
og ganga til þeirrar vinnu. Mig lang-
aði að gera eitthvað meira skapandi
og því fór ég í Listaháskólann þegar
ég fluttist til Islands.” Rósaleppar
eru ekki það eina sem Héléne hefur
fengist við að búa til en hún gerir til
dæmis mjög fallegar ljósaseríur úr ís-
lenskri ull sem hægt er að kaupa hjá
Handprjónasambandi íslands. „Ég
er með ýmsar hugmyndir sem ég
hlakka til að vinna úr en ég hef líka í
nógu að snúast í barnauppeldi þessa
dagana,” segir Héléne brosandi en á
síðustu fimm árum hefur hún eign-
ast þrjú börn með Skúla, eiginmanni
sínum. Rósaleppaprjón í nýju ljósi
er ekki fyrsta bók Héléne en fyrir
nokkru sendi hún frá sér bók um
franskar salatsósur. „íslendingar
hafa að undanförnu í auknum mæli
lært að meta salatsósur að frönskum
sið, ég vildi leggja mitt af mörkum til
þeirrar þróunar enda eru sósurnar
mjög góðar með íslensku hráefni.”
eftir Jim Unger
Héléne Magnússon
Opnar sýningu á rósaleppa-
prjóni i Þjóöminjasafninu
næsta laugardag.
Btm/rm
Á förnum vegi
Hvaða ráðherra
stendur sig best?
Anna Heiða Kvist Mérfinnst
Geir standa sig best.
Kjartan Örn Pétursson, nemi
Geir Haarde. Hann er maðurinn!
Erna Oddný Gísladóttir, nemi
Þorgerður Katrín, menntamála-
ráðherra. Ekki nokkur spurning!
Árni Benediktsson Valgerður
Sverrisdóttir hefur staðið sig
best undanfarið.
Jónas Friðgeirsson Geir Haar-
de. Það er ósköp einfalt.