blaðið - 11.10.2006, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
blaöiö
kolbrun@bladid.net
Afmælisborn dagsins
ELEANOR ROOSEVELT FORSETAFRÚ
OG BARÁTTUKONA FYRIR UMBÓTUM, 1884
ART BLAKEY DJASSLEIKARI, 1919
Rósaleppaprjón
í nýju ljósi
Laugardaginn 14. október
klukkan 16:00 verður opnuð
sýning á rósaleppaprjóni
Héléne Magnússon áTorginu í
Þjóðminjasafni Islands. Héléne
hefur rannsakað íleppa sem not-
aðir voru í sauðskinnsskó og út
frá svokölluðu rósaleppaprjóni
hannað eigin prjónamynstur.
Rannsóknir og uppskriftir
Héléne eru nú að koma út á
bók, Rósaleppaprjón í nýju Ijósi,
og er sýningin haldin í tilefni af
því. í þessari athyglisverðu bók
rekur Héléne sögu hins forna
íslenska rósaleppaprjóns og
aðferðir við gerð íleppa. íleppar
eða rósaleppar eru prjónuð
innlegg sem voru notuð í sauð-
skinnsskó eða roðskó til þæg-
inda og skrauts. Bókin heldur
til haga gamalli séríslenskri
þekkingu sem nánast hefur
glatast og gefur hugmyndir um
hvernig má hagnýta hana við
nútímahönnun. Eru því birtar í
bókinni 27 nýstárlegar prjóna-
uppskriftir. Við hönnun á flíkum
sem verða til sýnis á Þjóðminja-
safninu hefur Héléne leitast
við að vera trú upprunalegum
litasamsetningum þeirra leppa
sem hún hefur valið og gömlu
aðferðunum við gerð þeirra.
Merking
afrískra lista
Heimildarmyndin In and Out
of Africa eftir llisa Barbash
og Lucien Taylor verður sýnd
í ReykjavíkurAkademíunni,
fimmtudagskvöldið 12. október
klukkan 20.
Katla Kjartansdóttir þjóðfræð-
ingur fylgir myndinni úr hlaði.
Aðgangur er ókeypis. Myndin
byggir að mestu á rannsóknum
mannfræðingsins Christophers
Steiners, sem gerði viðamiklar
vettvangsrannsóknir á afrísku
handverki á Fílabeinsströndinni.
Hún er í raun sjónræn etn-
ógrafía og því hentar kvikmynda-
miðillinn einkar vel til að koma
rannsóknarniðurstöðum og
gögnum til skila til áhorfandans.
Mynd/Frikki
Þórdís Aðalsteinsdóttir
„Ég velti fyrir mér ást, ofbeldi og hvað
viö eigum sameiginiegt meö fólki til
dæmis fyrir tvö þúsund árum og því
fólki sem viö mætum dagsdagiega."
Hugleiðingar um mannlegt eðli
verkum mínum er ég mikið að velta fyrir mér
mannlegu eðli og samskiptum frá upphafi
alda og fram til dagsins í dag og vonast til að
vekja fólk til umhugsunar," segir Þórdís Aðal-
steinsdóttir en sýning á verkum hennar stendur
yfir á Kjarvalsstöðum. „Ég velti fyrir mér ást, of-
beldi og hvað við eigum sameiginlegt með fólki
til dæmis fyrir tvö þúsund árum og því fólki sem
við mætum dagsdaglega."
Pólitísk myndlist
Það er kynferðislegur undirtónn í verkum þín-
um, ertu ekki sammála því?
„Jú, það fellur undir mannleg samskipti og ást-
ina. Verkin fjalla samt ekki einungis um kynferð-
islega ást heldur ást milli fólks, ást á dýrum og
umhverfi og ást á sjálfum sér.“
Er eitthvað pólitískt í myndlistþinni?
„Já, ég mundi segja það. Ég held að allt sem við-
kemur því að velta fyrir sér heimsmyndinni, mann-
legu eðli, ábyrgð einstaklinganna og samskiptum
þeirra sín á milli sé pólitík. Þess vegna nota ég tví-
ræðni og skil ýmislegt eftir opið fyrir túlkun hjá
áhorfandanum. Þetta er ein aðferð við að vekja við-
brögð og fá fólk til að hugsa um verkin.“
Húmor er líka áberandi í myndunum
„Maður verður að gæta sín á því að taka sig ekki
alltof alvarlega í því sem maður gerir. En það er
ekki eins og ég setjist niður og ákveði að setja
húmor í verk mín. Hann kemur bara ósjálfrátt.“
Listaverk sem hverfur
Eitt verkanna á sýningunni er veggmynd. Hvað
verðursvo um hana, mun hún hverfa?
„Það verður málað yfir hana. Ég hef áður gert
veggmyndir og mér finnst ágætt að sum verk séu
gerð fyrir vissan stað og tíma og hverfi svo. Ég
sé þetta ekki sem eyðileggingu. Það er hluti af
listinni að listaverk hverfi.
Þú býrð íNew York. Starfarðuþar einungis sem
myndlistarmaður?
„Þáttur í því að starfa sem myndlistarmaður
er að taka stundum að sér önnur störf. Ég hef
unnið við að passa hunda, mála leikmyndir fyr-
ir sjónvarp og unnið á grænmetismarkaði. Það
víkkar sjóndeildarhringinn mjög að fást við ólík
störf og hefur ábyggilega nýst mér í myndlist-
inni.“
Þú ert á leiðinni til New York. Hvað tekur við
þar?
T” J T T
Eitt af verkum Þórdísar á sýningunni.
„í New York bíður mín vinna við vídeóverk,
myndlist og fleiri verk og undirbúningur fyrir
sýningar í Danmörku og Japan. Ég hlakka mik-
ið til.“
Sýningu Þórdísar lýkur 3. desember.
Bill og
ganga
menningarmolinn
Hillary
í hjónaband
xxx Á þessum degi árið 1975 gengu
William Jefferson Clinton og Hillary Rod-
ham í hjónaband. Þau kynntust árið 1972
þegar bæði voru við nám í lögfræði við
Yale-háskólann.
Clinton varð forseti 46 ára gamall. Líkt
og fleiri Bandaríkjaforsetar þótti hann
djarftækur í kvennamálum. Ástarsam-
band hans við lærlinginn Monicu Lewin-
sky skók Hvíta húsið og heimspressan
stóð á öndinni. Hillary varði mann sinn
opinberlega og talaði um samsæri hægri-
manna.
Eftir að Clinton lét af forsetaembætti
einbeitti Hillary sér að pólitískum frama
sínum og varð þingmaður. Vangaveltur
eru uppi um að hún hyggi á forsetafram-
boð.