blaðið - 11.10.2006, Síða 38
blaðið
38 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
Jr@bladid.net
Stolt og ástríða, strákar
Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur biðlað til leikmanna liðsins
um að sýna stolt sitt og ástríðu i leik sinum gegn Króötum í kvöld. „Gæði liðs eru
meðal annars mæld í því hvernig það bregst við óhagstæðum úrslitum,” sagði
Steve McClaren sem liggur undir sífellt harðnandi gagnrýni af óvægnum enskum
fjölmiðlum fyrir slaka byrjun enska liðsins i undankeppni EM 2008.
Þótt miðjumaðurinn þýski
Michael Ballack hafi
aðeins spilað þrjá leiki
með Chelsea síðan hann gekk
til liðs við félagið frá Bayern
Munchen í sumar stefnir hann
á að enda feril sinn hjá félaginu
og biður aðdáendur að sýna sér
þolinmæði. Frammistaða Ball-
acks á knattspyrnuvellinum
þykir ekki hafa verið eins og
best verður á kosið. „Ég veit að
ég get náð mínu besta formi
með Chelsea. Liðið hefur á frá-
bærum knattspyrnumönnum
að skipa en við þurfum tíma til
að stilla okkur saman,” sagði
Ballack.
Spænskar kannanir sýna
nú að 87 prósent lands-
manna vilja fá Luis Arago-
nes burt úr starfi landsliðsþjálf-
ara, en Spánverjar hafa tapað
tveimur síðustu
leikjum sínum í und-
ankeppni EM
2008,
gegn
Svíum og
Norður-
írum.
Fernando
Torres, framherji
Atletico Madrid og
spænska landsliðsins, og fleiri
leikmenn hafa komið þjálf-
aranum til varnar og leggja
áherslu á að leikmenn liðsins
eigi jafn stóra sök á slæmu
gengi liðsins og þjálfarinn
Aragones.
orráðamenn Arsenal hafa
sýnt franska félaginu Mar-
seille áhuga á að fá franska
landsliðs-
manninn
Franck
Ribery til
liðs við sig
þegar félags-
skiptaglugg-
inn opnast
á Englandi
í janúar.
Forráðamenn Marseille stað-
festu þetta við fjölmiðla í gær
en sögðu að hvorki lægi fyrir
samkomulag við Arsenal né að
kaupverð fyrir leikmanninn
hefði verið ákveðið.
Lars Lagerback segir Svía lánsama:
„Það geta allir unnið alla í þessum
riðli eins og hefur sýnt sig og greini-
lega engin stig gefins,” sagði Lars
Lagerback, þjálfari Sænska lands-
liðsins, í samtali við Blaðið eftir
æfingu sænska liðsins á Laugardal-
svelli á þriðjudagskvöld, aðspurður
um hvort úrslit leikja í F-riðli und-
ankeppni EM 2008 hafi komið
honum á óvart.
„Þótt íslendingar hafi tapað
leiknum 4-0 í Lettlandi gefa þau úr-
slit ekki rétta mynd af því hvernig
leikurinn spilaðist. íslenska liðið
fékk fullt af færum í leiknum og
það eina sem upp á vantaði var að
þeim tækist að skora. íslendingar
eru klárlega með lið sem getur gert
okkur skráveifu. Við vörum okkur
því á að vanmeta íslendingana,”
sagði Lagerback varkár og bætti
því við að Lettarnir hefðu fengið
fjölda færa í leik Svía og Letta, sem
Svíar unnu á endanum 1-0, og það
sama hafi verið uppi á teningnum
þegar lið Liechtenstein reyndi
verulega á þolinmæði sænska liðs-
ins í leik sem endaði 3-1 fyrir Svía
eftir að jafnt hafði verið fram á 70.
mínútu.
„Þessir leikir hefðu báðir mögu-
lega getað endað með jafntefli,”
sagði Lagerback hógvær, en Svíar
hafa unnið alla þrjá leiki sína í riðl-
inum, nú síðast Spánverja á laugar-
dag, með tveimur mörkum gegn
engu og hafa sænskir fjölmiðlar
vart haldið vatni yfir frammistöðu
sænska liðsins í leiknum.
Þó nokkrir fastamenn í sænska
liðinu verða ekki með gegn Islend-
ingum en Fredrik Ljungberg er
meiddur á kálfa og sömuleiðis eru
aðalmarkvörður Svía, Andreas
Isaksson, og miðjumaðurinn And-
ers Svensson frá vegna meiðsla. Þá
hefur Zlatan Ibrahimovic ekki enn
gefið kost á sér í landsliðið eftir að
meiðsla. Þá er Brynjar Björn Gunn-
arsson í leikbanni eftir að hafa tví-
vegis fengið að líta gula spjaldið í
keppninni.
Islendingar og Svíar hafa tólf
sinnum mæst á knattspyrnuvell-
inum, tvívegis hafa íslendingar
náð að landa sigri, tvisvar hafa
leikir liðanna endað með jafntefli
og átta sinnum hafa Islendingar
lotið í lægra haldi. I viðureignum
liðanna hafa íslendingar skorað
tólf mörk en Svíar 24.
Síðast unnu íslendingar Svía
árið 2000 í vináttulandsleik á
Laugardalsvelli, 2-1, en hinn sigur-
inn kom árið 1951 á Melavellinum
þar sem Ríkarður Jónsson skoraði
fernu í 4-3 sigri eins og frægt er.
íslendingar og Svíar léku saman
í undanriðli fyrir Heimsmeistara-
mótið í Þýskalandi í sumar og unnu
Svíar báða leikina sannfærandi, 3-1
í Svíþjóð og 4-1 á Laugardalsvelli.
Johan Elmander Skoraði glæsilegt
mark gegn Spánverjum um helgina.
hann var dæmdur í agabann ásamt
tveimur öðrum leikmönnum
sænska liðsins í síðasta mánuði.
íslendingar eru heldur ekki
lausir við fjarvistir leikmanna, en
Pétur Marteinsson, Heiðar Helgu-
son, Gunnar Heiðar Þorvaldsson
og Kári Árnason eru allir frá vegna
Sviar æfa Sviar eru með fullt hús stiga 1 F-riðli undan-
keppni EM 2008 og var hrósað í hástert fyrir frammi-
stöðuna í sigurleik gegn Spánverjum um helgina. Is-
lendingar fara með öllu síðra veganesti íleikinn fkvöld
eftir4-0 tapleik f Lettlandi um síðustu helgi.
Allir geta unnið alla
■ Vörum okkur á vanmati ■ Mikið um meiðsl hjá báðum liðum
fllfílilili ■ ■
Gúmmívinnustofan
SP dekk
COOPEFi
TffíKEEí
POIAR
VETRARDEKK
JEPPLINGADEKK
POLAR RAFGEYMAR
GÚMMÍVINNUSTOFAN
Skipholti 35 105 RVK
Sími: 553 1055
www.gummivinnustofan.is
Opið: Mán - fös 8-18 • Lau 9-15
Róðurinn verður þungur gegn sterku og reynslumiklu liði Svía:
Vanmátu Letta
„Það sem íslendingar átta sig
kannski ekki á er að Eystrasalts-
þjóðirnar eru með fullt af sterkum
atvinnumannaliðum í heimaland-
inu sem standa í stórliðum á meg-
inlandi Evrópu í Evrópukeppnum.
Það er því síður en svo neikvæður
mælikvarði á lettneska liðið að leik-
mennirnir spili allir heima í Lett-
landi. Þeir eru sterkari en menn
gera sér almennt grein fyrir,” sagði
Teitur Þórðarson, þjálfari KR-inga,
inntur um álit á úrslitum í leik ís-
lendinga og Letta á laugardaginn
síðasta. Téitur þjálfaði eins og kunn-
ugterlandsliðEistaáárunum 1995
til 1999 og þekkir vel til knattspyrn-
unnar í Eystrasaltslöndunum.
Um leik íslendinga og Svía í
kvöld sagði Teitur að alltaf væri
möguleiki á hagstæðum úrslitum,
en hafði þó ekki mikla trú á ár-
angri. „Eg er mjög hrifinn af
sænska liðinu. Það hefur styrkst
gríðarlega mikið síðustu ár og þar
hefur mikið að segja að leikmenn-
irnir hafa orðið mikla reynslu af
því að spila á stórmótum, en Svíar
hafa ekki misst úr mót í fjölda ára,”
sagði Teitur.
Teitur Þórðarson, þjáifari KR
Teitur er hrifinn af sænska liðinu og
hefur ekki mikla trú á hagstæðum
úrslitum íkvöld. Hann segir fólk
almennt ekki gera sér grein fyrir
hversu sterkar knattspyrnuþjóðir
Eystrasaltslöndin séu.