blaðið - 11.10.2006, Side 42
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
Sandra á dreglinum
Sandra mætti eldhress á frumsýningu
myndarinnar Infamous, sem hún leik-
ur í. Frumsýningin var á mánudaginn
í New York.
Verða hjón
Nú er það víst ákveðið að hjónaleysin Kate Moss og Pete Doherty ætla
að gifta sig á Ibiza. Sögusagnir um brúðkaup að írskum sið gengu fjöll-
unum hærra fyrir stuttu en nú er það víst ákveðið að brúðkaup mun
fara fram á Ibiza í janúar... en ýmislegt getur gerst enn...
Stelpubretta-
félagið eflir
áhuga stelpna á
brettaíþróttum:
ermeð
sterka tiskuvitund og
hér er hún sæt í einum
blúndumíni.
r 1 mim
í haust eru allar heitar dömur í
mínikjólum. Litlir stuttir kjólar í
anda sjöunda áratugarins hafa
verið að skjóta upp kollinum við
og við síðan í vor en nú hefur
orðið sprenging í fjölgun á
stjörnum sprangandi um í míni-
kjólum. Kjólarnir eru í ýmsum
litum, einlitir eða með fallegum
mynstum og úr ýmsum efnum
eins og ull og satíni. En allir eru
þeir stuttir og því styttri því
betra, þó ekki dónó, allt innan
velsæmismarka enda um sígilt
og sjarmerandi útlit að ræða.
Sokkaþuxur við kjólana eru að
sjálfsögðu leyfilegar en þó er
líka fallegt að skarta fótleggj-
unum einum saman ef veður
og leggir leyfa. Svo nú er bara
að fjárfesta í míni eða taka upp
skærin og endurlífga gamla
kjóla.
Stelpubrettafélagið er óformlegur fé-
lagsskapur ungra kvenna sem eiga
það sameiginlegt að hafa brennandi
áhuga á brettaíþróttum af ýmsu
tagi.
Linda Björk Sumarliðadóttir, for-
maður félagsins, segir að það hafi
verið stofnað til að efla þátt kvenna
í þessum greinum. „Við vildum
bæði fá stelpur meira inn í sportið
og einnig fá viðbrögð frá þeim um
hvað þær vildu gera. Ef stelpur vilja
gera eitthvað eða koma einhverju á
Framfæri þá hafa þær stað til þess,“
segir Linda Björk.
Brimbrettaferð til Portúgais
Stelpurnar hafa áhuga á ýmsum
jaðaríþróttum svo sem kajakróðri,
ísklifri og mótókrossi en að sögn
Lindu leggja þær þó mesta áherslu
á brettagreinarnar. „Við höldum svo-
kölluð sessjón þar sem við hittumst
og skeitum og einnig höfum við
haldið hjólabrettanámskeið," segir
Linda og bætir við að verið sé að
skipuleggja næsta sessjón sem fram
fari síðar í þessum mánuði eða i byrj-
un þess næsta. Þá hefur félagið stað-
ið fyrir ýmsum öðrum viðburðum
og í sumar tóku til dæmis nokkrar
stelpur sig til og héldu saman í brim-
brettaferð til Portúgals.
Sjálf hefur Linda komið nokkuð
víða við í jaðaríþróttum en hún
stundar hjólabretti, brimbretti og
snjóbretti auk þess sem hún hefur
verið á krossara og er nýbyrjuð að
stunda klifur.
„Maður hefur mismikinn tíma fyr-
ir þetta. Núna hefur til dæmis ekki
verið það mikill snjór að ég hef ver-
ið mest í sörfinu. Mað-
ur vonast alltaf til að
það komi aðeins meiri
snjór á þetta sker,“ seg-
ir Linda en bætir við að
það sé gott að geta skipt
á milli greina þar eftir
veðri og árstíðum.
getur ennbá gefiö góðar
hugmyndir um klæðaburð
þó hún sé ekki lengur
Carrie, hér er hún í
flottum skóm við sinn
míni og sýnir okkur hinum
fram á hvað mínikjóllinn
er einmitt frábær við
fallega hæla.
Seinheppin brettastelpa
Linda BjörkSumarliðadóttir, for-
maöur Stelpubrettafélagsins, seg-
ist vera sérlega óheppin en hún
hefur tvívegis handleggsbrotnaö
og einu sinni brotiö viöbeinið á
hjóiabretti.
BlaM/Frikkl
fallegum 70's míni,
svolítið púff sem er
einnig í tísku í haust.
Þrátt fyrir að
hafa fengið á sig
gagnrýni fyrir að
vera heldur mjó
þá er ekkert hægt
að gagnrýna tísku
Sérlega óheppin
Linda segir að ekki fylgi
meiri hætta hjólabrett-
um en öðrum iþrótta-
greinum en það fari þó
eftir því hvað maður taki
mikla áhættu.
Sjálf hefur Linda ekki
farið varhluta af meiðslum og
óhöppum á hjólabrettum en hún seg-
ir að hún sé reyndar mjög sérstakt
tilfelli.
og hér er hún
í rauðum tígra-
mynsturskjól og
sameinar þannig
heitustu strauma
haustsins, mini og
tígramynstur.
Nánari upplýsingar um Stelpu-
brettafélagið má nálgast á
www.bigjump.is og www.myspce.
com/stelpubrettafelag.
„Ég hef handleggsbrotnað tvisv-
ar á hjólabretti og brotið viðbeinið
einu sinni á löngu hjólabretti (long-
board). Ég er reyndar alveg sérlega
óheppin og hef verið það alla mína
ævi. Ég þekki fullt af strákum og
stelpum sem hafa verið lengi á hjóla-
bretti og það hefur aldei neitt komið
fyrir þau,” segir Linda Björk að lok-
um.
einar.jonsson@bladid.net
tjLAAUKAHLUTfR
tÚRVAU
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.ls
menntun
alla þriðjudaga