blaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 blaðið HVERNU; ER NÝI -WMRN AfR-S AEAN t NJ<=tURlNN ? V / t=>A€> ER LEYNDARM/M- BoR^AR S\<* At> V\R-VdDA /A H<ÁRAAHN1Úþ^UAA? 'v ^ þA-E> ER LEyKlD AíRÞA AL- \=>A-D ER £KKI FURÍJA AD £>1^ Þ'JRFIfe LEy N \ Ip^ö^O^TO V Tllboösverð 21.395 TRE2ETA TOP GTX Mjög vandaðir millistífir leðurskór m/gore-tex öndunarfilmu Verð óður 25,995 ÆV THEZETA Raichlc FERÐA- OG UTIVISTARVERSLUN Skeifunni 6 ■ Simi 533 4450 ■ www.everest.is irrniMaiiiiii Sælkerakmingar í blómlegu umhverfí Crepéí, kaffí ofl. sem kætir bwgölaukana Hafnarstræti 26. í Blómavalshúsinu 600. Akureyri Illugi Jökulsson skrifar um leynisveitir Kóngulóarvefir fortíðarinnar Þegar ég var að skrifa bók- ina fsland í aldanna rás 1900-2000, þá fékk ég dá- lítið merkilegar upplýs- ingar. Mér barst sem sé til eyrna að kringum 1960 hefði verið til skipulögð sveit ungra manna sem leit á sig sem varalið lögreglunnar, ef til uppreisnar kommúnista kæmi á fslandi. Ég vissi náttúrlega að við inngöngu íslands í NATO 1949 hafði verið mynduð slík sveit í hasti til að gæta Alþingishússins en þetta var dálítið annar handleggur. Það má skilja útkall „varaliðsins“ þá út frá aðstæðum á þeim tíma, en um og upp úr 1960 hefði sá maður þurft að vera ansi glám- skyggn sem hefði í alvöru óttast valdatöku kommúnista hér. En einhverjir eiga samt að hafa verið einmitt svo glámskyggnir. Heim- ildir mínar hermdu nefnilega að þetta hefði verið býsna vel skipu- lögð deild sem hefði verið við lýði árum saman og hefði undirbúið sig á ýmsan hátt til að takast á við kommúnista. Og í einhvers konar samvinnu við einhver dul- arfull yfirvöld í landinu. Enginn hélt því að vísu fram í mín eyru að þessi sveit hefði búið yfir vopnum en þó var sagður hafa verið tölu- verður hernaðarblær yfir henni. Og umfram allt leyndarhjúpur. Hverjir áttu svo að hafa skipað þessa leynilegu sveit? Jú ... fyrst og fremst Heimdellingar, ung- liðar Sjálfstæðisflokksins. Heimdellingar í vara- sveit lögreglunnar? Ég þóttist hafa himin höndum tekið þegar ég fékk þessar fréttir. Ef eitthvað reyndist hæft í þeim, þá gæti bókin mín „skúbbað“ þeim fréttum - því ég vissi ekki til að tilvist slíkrar sveitar á önd- verðum sjöunda áratugnum hefði nokkru sinni vitnast. Svo ég lagði töluvert á mig til að reyna að fá þetta staðfest. Það gekk hins vegar treglega. Þótt ég kastaði beitu í ýmsar áttir beit enginn á og að lokum réði tímaskortur því að ég varð að leggja frekari rannsóknar- vinnu á hilluna. Ekki orð um hina meintu háleynilegu varalögreglu Heimdallar birtist þess vegna í bókinni. Enn í dag veit ég ekki hvort nokkuð var hæft í þessum flugufregnum. Eg skal hins vegar viðurkenna að núna - eftir uppljóstranir um leyniþjónustuna sem virðist óneitanlega hafa verið í nánari tengslum við sjálfstæðismenn en annað fólk í þessu landi - þá finnst mér að líkurnar á því að Eyjólfur Konráö Jónsson Eykon var jafnan fremstur i flokki þeirra sem óttuðust kommúnista. Styrmir Gunnarsson Var Styrmir Agent í leyniþjónustunni undir stjórn Kontrollerins Eykons? eins mikla nautn af því að gefa í skyn í blaði sínu að hann viti nú hitt og þetta um allt mögulegt. Hann ætli bara ekki að segja frá því. Og þar á meðal ekki því hvaða leynimakk þeir Eykon fengust við upp úr 1960. Þegar ég las þetta á sínum tíma virkaði þetta fyrst og fremst svo- lítið hlægilegt. Er Styrmir að ímynda sér að hann hafi verið að vinna einhver ógurleg leyniþjón- ustustörf? hugsaði ég. En núna, er þá ekki augljós ályktun - ekki síst með tilliti til þess að Eykon var jafnan fremstur í flokki þeirra sem óttuðust kommúnista - að þarna hafi verið um að ræða þá leyniþjónustu sem Þór Whitehead dugir ekki fyrir þá að móðgast þegar fréttir um leyniþjónustuna kveikja slíkar hugrenningar. Eða þumbast gegn því að skipuð verði allsherjar rannsóknarnefnd til að fara í saumana á málinu frá upp- hafi til enda. Það er nefnilega ekki að ástæðulausu sem málið lítur þannig út í augum almennings og það er Sjálfstæðisflokknum fyrir bestu að gangast sjálfur fyrir því að allt verði upplýst - öllum dy rum hrunið upp og blásið út úr öllum hornum. Verði það gert munu núverandi forystumenn Sjálfstæð- isflokksins verða menn að meiri fyrir vikið. Ella er hætt við að þeir sitji uppi með svolítið af kónguló- arvefjum fortíðarinnar. eitthvað kunni að hafa verið hæft í þessu hafi að minnsta kosti ekki minnkað. Og þá rifjast um leið upp fyrir mér orð sem Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins skrif- aði í minningargrein um Eyjólf Konráð Jónsson alþingismann. Styrmir fór fögrum orðum um Eykon og sagði meðal annars eitt- hvað á þá leið að þeir hefðu fyrst kynnst þegar Eykon réði hann í tiltekið verkefni þegar Styrmir var nýútskrifaður lögfræðingur á árunum upp úr 1960. Þetta verk- efni hefði verið þess eðlis að leynt þyrfti að fara en einhvern tíma kæmi þó kannski að því að þessi saga yrði sögð. Styrmir Gunnarsson leyndarráð Ef almennilegt titlatog viðgeng- ist enn í þessu landi, þá vita allir að Styrmir Gunnarsson myndi hafa nafnbótina „leyndarráð" eins og tíðkaðist í danska kon- ungsríkinu hér fyrrum. Nema hvað Styrmir er leyndarráð hinna innmúruðu og innvígðu. Enginn ritstjóri hvorki fyrr né síðar hefur hefur nú kynnt fyrir okkur, bara í mýflugumynd að vísu ennþá? Má ég ekki beina því til rannsóknar- blaðamanna Blaðsins að spyrja Styrmi Gunnarsson hreinlega hvort hann hafi á sínum tíma verið Agent í leyniþjónustunni undir stjórn Kontrollerins Ey- kons? Það ættu að vera hæg heima- tökin þarna í Hádegismóunum ... Og var það þá Leyniþjónusta Islands eða Leyniþjónusta Sjálf- stæðisflokksins? Sjálfstæðismenn verða reyndar að átta sig á að það Ef almennilegt titlatog við- gengistenn íþessu landi, þá vita állir að Styimii Gunnaissonfiyndi hafa nafnbótina ,Myndairáð" eins og tiðkaðist í danska konungsiikinu héi fyiium.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.