blaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 21
blaðið
OKTÓBER 2006
Þennan dag árið 1926 kom Bangsímon fyrst fyrir sjónir
lesenda. Geðþekki bangsinn hefur haldið nafni skapara síns,
Bretans A.A. Milne, á lofti æ síðan og það eru ófá börnin
sem hlýtt hafa á sögur af Bangsímon og félögum hans fyrir
svefninn.
Bach-unnendur ættu að leggja leið sína i Salinn í Kópavogi á mánudags-
kvöld en þar heldur Angela Hewitt tónleika klukkan 20. Hewittvar
nýverið tilnefnd til hinna virtu Gramophone-verðlauna og hefur vakið
mil/lo othwnli Ýtirir ti'ill/i ir» oíno ó Dooh
Viðburðaríkur
vetur framundan
ibhbb
Kátar með Völuskrínið Þórey
Vilhjálmsdóttir, Lóa Auðunsdóttir
og María Ása Auðunsdóttir.
Það verður nóg um að vera í
Þjóðminjasafni íslands í vetur og
tilvalið er að heimsækja safnið um
helgar enda er þá oft boðið upp á
skemmtilega viðburði. í dag verður
opnuð sýning Héléne Magnússon,
Rósaleppaprjón í nýju Ijósi, í tilefni
af útkomu samnefndrar bókar
hennar hjá Sölku. Þá er um að
gera að nota tækifærið og skoða
í leiðinni hinar skemmtilegu Ijós-
myndir Gunnlaugs P. Kristinssonar
á Veggnum eða bregða sér inn í
Myndasalinn og reyna að þekkja
myndefnið á Ijósmyndunum á
sýningunni Ókunn sjónarhorn.
Grunnsýning safnsins, Þjóð verður
til, er áhugaverð og um helgar er
boðið upp á leiðsögn um hana. í
Bogasalnum á 2. hæð stendur yfir
sýningin Með silfur-
bjarta nál, byggð á
áratuga rannsóknum
Elsu E. Guðjónsson.
Þá er ekki úr vegi að
skoða líka sýninguna
Með gullband um
sig miðja í Forsalnum
á sömu hæð en þar
getur að líta íslenska
þjóðbúninga og
dýrindis búninga-
skart. þeim valda
gripi sem tengjast
þjóðbúningunum.
Það er því Ijóst
að margs er að
vænta frá safninu
vetur.
Aftur til upprunans
ikið vatn hefur
runnið til sjávar
síðan Jóhann Sigur-
jónsson skáld kvað
um „gamla leggi og
völuskrín“ og í dag eru líklega fá
börn sem dunda sér með leggi og
skel á síðkvöldum. Á því kann þó
að verða breyting því að völuskrín-
ið hefur nú endurfæðst í frumlegri
og skemmtilegri útfærslu Lóu Auð-
unsdóttur vöruhönnuðar, en hug-
myndin er komin frá Þóreyju Vil-
hjálmsdóttur. Við hátíðlega athöfn
í Þjóðminjasafninu í gær veitti Jón
Sigurðsson, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, fyrsta Völuskríninu við-
töku en verkefnið naut styrks frá
iðnaðarráðuneytinu.
„Ég fékk hugmyndina fyrir fimm
árum. í gegnum störf mín hef ég oft
þurft að taka á móti útlendingum
og kynna fyrir þeim land og þjóð.
Ég hef þvi margsinnis lagt leið
mína í minjagripaverslanir með
gesti mína sem hafa viljað kaupa
eitthvað fallegt handa börnunum
sínum sem bíða heima. Oftast hef
ég orðið fyrir vonbrigðum með úr-
valið og fátt í boði sem getur talist
Framsóknarflokkurínn í Norðvestur-
kjördæmi auglýsir eftir framboðum frahsókharflokkurinn
Hér með er auglýst eftir framboðum vegna vals á framboðslista
Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosnin-
garnar 2007.
Valið verður i 5 efstu sæti listans í póstkosningu meðal félags-
manna sem fram fer dagana 3.-17. nóvember 2006.
Framboðum skal skila til kjörnefndar fyrir kl. 22:00 föstudaginn
20. október 2006. Frambjóðendur skulu gefa kost á sér i ákveðin
sæti, eitt eða fleiri, þegar þeir titkynna um framboð sitt. Að baki
framboði hvers frambjóðanda skulu að lágmarki vera 10 og að
hámarki 20 flokksbundnir meómælendur. Með tilkynningu um
framboð hvers frambjóóanda skal fylgja stutt æviágrip ásamt
mynd sem hægt er að nota til kynningar á frambjóóandanum.
Kjörnefnd Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi Sveinbjörn
Eyjólfsson formaður, Sveinn Bernódusson, Elfa Björk Bragadóttir,
Inga Guðrún Krístjónsdóttir og Ingi Björn Árnason.
íslenskt og fallegt f senn. Mér var
nóg boðið þegar ég var með forríka,
bandaríska kvikmyndastjörnu á
mínum vegum hér á landi og hún
vildi kaupa eitthvað fallegt handa
dóttur sinni sem þá var fjögurra
ára. Við komum tómhentar heim
úr verslunarleiðangrinum því hún
fann ekkert íslenskt sem hana lang-
aði að færa dóttur sinni. Þá ákvað
ég að taka til minna ráða,“ segir
Þórey.
Nýtískuleg hönnun
Völuskrínið er lítill, fallegur kassi
sem geymir endurgerðir þeirra
beina sem börn á öldum áður léku
sér að. Beinin eru alls þrettán og svo
lúra líka karl og kerling í kassanum.
Hönnunin er nýtískuleg með
sterkar rætur í fortíðinni og í kassan-
um eru útskýringar á hinum gamla,
íslenska arfi á fimm tungumálum.
Þórey á sjálf átta ára dreng og eins
árs stúlku og hefur því oft þurft að
leggja höfuðið í bleyti til að velja
skemmtilegar gjafir handa þeim.
Hún segist hafa hugsað sérstaklega
til barnanna sinna þegar hún vann
að hugmyndinni og hvað hún myndi
vilja færaþeim. „Það íslenskasta sem
mér datt í hug var leggur og skel og
ég ákvað fljótlega að vinna með þá
hugmynd. Eftir að hafa velt þessu
fyrir mér í tvö ár og ráðfært mig við
fjölskylduna sótti ég um styrk til
verkeínisins sem ég fékk mér til mik-
illar gleði.“ Fjöldi fólks hefur komið
að verkefninu á ýmsum stigum en
Þórey leitaði meðal annars ráða hjá
fjölmörgum hönnuðum og sagn-
fræðingum. „Svo fékk ég mágkonu
mína, Lóu Auðunsdóttur, til að hafa
yfirumsjón með hönnuninni og
hún hefur verið mín stoð og stytta
í þessu öllu saman. Ferlið hefur tek-
ið langan tíma, ekki síst vegna þess
hversu langan tíma það tók að fá
vottun frá Evrópusambandinu um
að varan uppfylli alla öryggisstaðla.
Við höfum þurft að sýna mikla þol-
inmæði, sem er ekki mín sterkasta
hlið,“ segir Þórey og hlær. „En vegna
þess hve vinnsluferlið hefur verið
langt þá er varan tilbúin til að fara á
markað og við erum ákaflega ánægð
með hvernig til hefur tekist.“
Fornt og nýstárlegt í senn Völu-
skrínið er fullt af skemmtilegum
hlutum sem eiga án efa eftir að
heilla börn á öllum aldri.
BlaíiO/FMi I
Að skapa sinn eigin heim
Kassinn fallegi er ekki eina var-
an sem þær stöllur hyggjast setja á
markað. í nóvember munu skemmti-
legir bolir á börn og fullorðna líta
dagsins ljós og ýmislegt fleira er í
bígerð. Þórey segist hafa fengið góð
viðbrögð við Völuskríninu. „ Börn-
in sem við höfum kynnt þetta fyrir
eru ótrúlega hrifin og geta leikið sér
að Völuskríninu tímunum saman.
Svo er líka mikil vakning meðal for-
eldra að mata ekki algjörlega börnin
sin heldur láta þau skapa sinn eigin
heim og Völuskrínið hentar einmitt
prýðilega til þess að örva ímyndunar-
afl þeirra.“
Lóa Auðunsdóttir segist hafa ver-
ið spennt fyrir verkefninu frá upp-
hafi. „Þegar ég lagði af stað í þetta
þá hugsaði ég gripinn ekki bara
sem leikfang fyrir börn, heldur líka
fc
Sýningaropnun og Hollandsför
„Ég er að opna sýningu í dag klukk-
an 16 á Gallerí Gel þannig að helgin
mun snúast að stórum hluta um
hana. Það er erfitt að lýsa sýningunni
en þetta er einskonar draumsýn sem
ég er að fást við. Ég hef verið mjög
upptekin síðastliðið ár og þarna má
sjá hluta af því sem ég hef verið að
vinna að, meðal annars skúlptúra og
vídeóverk," segir Hulda Helgadóttir
sem lærði hugmyndafræðilega hönn-
un í Hollandi. Hulda hefur í mörg
horn að líta um helgina en auk þess
að opna sýninguna hér heima er hún
að undirbúa aðra í Hollandi. „Um
næstu helgi er ég að fara að halda
útskriftarsýningu í Eindhoven þar
sem ég var í námi. Ég útskrifaðist í
janúar en núna koma allir nemend-
urnir sem þá útskrifuðust saman og
halda eina stóra sýningu sem er hluti
af hollenskri hönnunarviku. Eindho-
ven er mjög framsækin borg og því
mikið um að vera þar í hönnun og
öllu slíku."
Hulda segist reyna að sinna menn-
ingarlífinu í Reykjavík af krafti. „Ég
sæki sýningar eins mikið og ég hef
tíma til. Það mættu vera fleiri sýning-
ar i gangi í einu, hver og ein stendur
oft í svo langan tíma að þær mættu
vera fleiri og standa í styttri tíma,“
segir Hulda sem hefur í nógu að snú-
ast þessa helgi sem aðrar.
blaðiö
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 21
Coetzee bestur
Breska dagblaðiö Guardian fékk um daginn nokkra valinkunna bók-
menntagúrúa til liðs við sig og bað þá að útnefna bestu bók síðasta aldar-
fjórðungs sem rituð hefði verið á enska tungu. Páfarnir komust að því að
JM Coetzee hefði skrifað besta verkið en það kom út hjá Bjarti í íslenskri
þýðingu Rúnars Helga Vignissonar undir heitinu Vansæmd.
Myndlistarsýningu Steinunnar Marteins-
dóttur í Listasal Mosfellsbæjar lýkur í dag
og af því tilefni verður oþið til klukkan 17.
Steinunn sýnir þar nýjustu málverk sin
sem fjalla um land og náttúru.
sem minjagrip og fallegan hlut sem
skreytt gæti heimilið. Við vildum
einblína á fagurfræðilega þáttinn
og lögðum mikla áherslu á að hlut-
urinn sem kæmi út úr þessu væri fal-
legur á að líta." Hún segir að mark-
miðið hafi verið að búa til vandaða
vöru sem væri frambærileg í hvaða
landi sem er en hefði jafnframt þess-
ar sterku, íslensku rætur. Lóa notaði
plast í beinin, en það var nauðsyn-
legt til að að fá þau vottuð sem leik-
föng. „Skreytingarnar á kassanum
eru unnar út frá þjóðlegum, íslensk-
um mynstrum. Litirnir eru nútíma-
legir en hafa samt ákveðna skírskot-
un til fortíðar. I botninum og lokinu
á kassanum eru svo myndir sem
geta nýst börnunum í leiknum. Ég
reyndi að nýta það besta úr íslensku
hefðinni en jafnframt gæða hana
nýju lífi,“ segir Lóa, ánægð með af-
raksturinn.
Völuskrínið verður komið í helstu
leikfanga- og minjagripaverslanir
eftir helgi.
hilma@bladid.net
Málþing í dag
Haldið verður málþing í Lista-
safni íslands í dag klukkan 11
þar sem fjallað verður um stöðu
og þróun íslenskrar myndlistar
með hliðsjón af yfirstandandi
sýningu sem ber yfirskriftina
Málverkið eftir 1980. Stjórnandi
umræðu er Ása Briem, frétta-
maður á RÚV, og aðrir þátttak-
endur eru dr. Halldór Björn Run-
ólfsson listfræðingur, Gunnar
J. Árnason listheimspekingur,
Guðrún Einarsdóttir myndlistar-
maður og Helgi Þorgils Friðjóns-
son myndlistarmaður.
Frægðarför Yrsu
Svíar hafa tekið glæpasögunni
Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardótt-
ur opnum örmum og hefur Yrsa ver-
ið kölluð „ný glæpasagnadrottning1'
í sænskum dagblöðum. Bókin kom
út á sænsku á dögunum og hafa
nú selst á fimmta þúsund eintök.
Samtímis kom bókin út á hljóðbók
í Svíþjóð en hin vinsæla leikkona
Katarina Ewerlöf las söguna inn á
band. Gagnrýnendurytrahafa farið
fögrum orðum um söguna og segja
hana halda lesandanum föngnum
frá upphafi til enda. íslenskir
lesendur bíða eflaust spenntir eftir
næstu bók Yrsu en Þriðja táknið
seldist afar vel hér á landi og Þóra,
aðalsöguhetja bókarinnar, virðist
hafa allt til að bera sem prýða skal
góða glæpasagnapersónu.
Þetta er aðeins upphafið á útrás
Yrsu en Þriðja táknið er væntanleg
á 24 tungumálum í yfir hundrað
löndum.
Leikbæjgrútsglgn
4 dagar
sunnudag
Opið milli 10:00 - 18:00 alla dagang!