blaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006
blaðið
Töfragel Melumads
Krem úr Aloe Vera og Dauðahafinu
Aakri í Israel eru rækt-
aðar Aloe Vera-plöntur
á lífrænan hátt. Þær
eru handtíndar
snemma morguns og
notaðar í árangursrík
krem samdægurs. Dr. David Mel-
umad er ísraelskur lyfjafræðingur
og húðsjúkdómasérfræðingur sem
rekur farsælt snyrtivörufyrirtæki
sem sérhæfir sig meðal annars í
vörum úr Aloe Vera og Dauðahaf-
inu. Snyrtivörurnar hafa reynst
mjög vel fyrir sóríasis og brunasár
og sjálfur segir hann að þau hafi
jafnvel bjargað lífi fólks.
„Ég stofnaði fyrirtækið mitt árið
1979 og hef því þrjátíu ára reynslu.
Ég lærði lyfjafræði og eitt af því sem
truflaði mig var sú staðreynd að í
húðsjúkdómafræði og lækningum
eru alls kyns vörur með lyfjum í not-
aðar. Þessar vörur voru nýttar fyrir
vandamál, eins og sóríasis og annað.
Þetta eru vörur sem þarf að nota í
langan tíma enda vandamálin þrá-
lát og eins var fólk að taka önnur
lyf með þessum, lyf með aukaverk-
unum. Ég rannsakaði þetta í mörg
ár svo ég gæti gert þetta á réttan hátt,
og þegar ég segi réttan hátt þá meina
ég að ná árangri og hjálpa fólki án
þess að nota lyf. Mínar vörur eru
ekki lækningavörur heldur snyrti-
vörur en samt sem áður virka þær
og fólk sér árangur án aukaverkana.
Vörurnar lækna og hafa jafnvel
betri áhrif en lækningavörur, án
þess að við getum haldið því fram
þar sem vörurnar eru skilgreindar
sem snyrtivörur.“
Hlotið tvenn verðlaun
Samkvæmt dr. Melumad selur
hann margvíslegar vörur en helstu
tveir hóparnir eru vörur úr Aloe
Vera og Dauðahafinu.
„í Dauðahafinu eru tvær tegundir
náttúrlegra gersema, svört leðja
og steinefni sem eru mjög sérstök
efni. Við notum bæði efnin í alls
kyns snyrtivörur því þau hafa góð
rakagefandi áhrif og ná jafnvægi
á steinefnum húðarinnar. Þau eru
því mjög áhrifarík fyrir fólk með
húðkvilla, sóríasis, þurra húð og
fleiri húðkvilla. Við vorum fyrst
til að nýta efni úr Dauðahafinu og
erum því frumkvöðlar í því starfi.
Við rannsökuðum hvað mætti gera
við þessar gersemar til að fá sem
besta nýtingu úr þeim en í dag eru
mörg merki á markaðnum sem
nýta sér gersemar Dauðahafsins,"
segir dr. Melumad sem hefur hlotið
tvenn verðlaun fyrir vörur sínar úr
Dauðahafinu.
Raunverulegur árangur Dr. David Melumad: „Ég var alltaf viss um aö vörurnar myndu hafa þessa góðu virkni og núna
höfum við reynsluna og sannanirnar. Við seljum þviekki loforð heldur raunverulegan árangur. “
Einstakt Aloe Vera-gel
í snyrtivörulínu dr. Melumads er
mikið af vörum úr Aloe Vera enda
eru græðandi áhrif plöntunnar vel
þekkt. „Við höfum þróað einstaka
aðferð til að ná gelinu úr Aloe Vera
en við notum Aloe Vera-plöntur
sem eru ræktaðar á akri sem við
stjórnum. Þetta er lífræn ræktun
sem þýðir að við notum ekki áburð,
skordýraeitur eða slíkt. Akurinn er
á svæði sem við völdum sérstaklega
því svæðið er ríkt af steinefnum.
Með því að fjarlægja gelið úr plönt-
unni á þennan sérstaka hátt er Aloe
Vera-gelið okkar einstakt og ólíkt
öðrum. Það hefur líka sýnt sig að
gelið virkar og árangurinn er mjög
góður,“ segir dr. Melumad og bætir
við að þessi einstaka aðferð felist
meðal annars í því að notaðar eru
ferskar plöntur sem tíndar eru sam-
dægurs. „Við notum ekki hita við
vinnslu plöntunnar heldur er hún
unnin við stofuhita en með því
höldum við styrk náttúrlegra inni-
haldsefna sem er mjög mikilvægt.
Önnur vinnsla á Aloe Vera-plönt-
unni getur breytt eða eyðilagt nátt-
úrleg áhrif plöntunnar. Með því að
gera það á okkar hátt þá verndum
við virkni plöntunnar. Við förum
í gegnum fjögur þrep þegar við
tökum gelið úr plöntunni. Fyrst ein-
angrum við gelið og hreinsum það.
Síðan er gelinu breytt í vökva og
gert stöðugt. Það sem er hins vegar
mikilvægast er árangurinn sem
kremið veitir.“
Bjargaði lífi drengs
Hér til hliðar er saga móður sem
telur að Aloe Vera-gel frá dr. Mel-
umad hafi hjálpað mikið til við bata
sonar síns en hann slasaðist alvar-
lega eftir að hafa drukkið hreinsi-
vökva fyrir mjaltavélar. Dr. Mel-
umad þekkir til sögunnar og segir
að árangur gelsins hafi ekki komið
honum á óvart.
„Ég býst við þessu af vörunni en
þetta er mjög hugrökk móðir. Við
ráðleggjum vitanlega ekki að Aloe
Vera-gelið sé notað .í þessum til-
gangi því þetta er snyrtivara og er
ekki ætluð til að lækna slík meiðsl.
Það að gelið virkaði sýnir samt sem
áður virkni vörunnar og við erum
mjög ánægð að hafa fengið heiður-
inn af þvi að bjarga lífi drengsins.“
Melumad kann fleiri
kraftaverkasögur af
virkni Aloe Vera-krem-
anna. „Ungur maður frá
Svíþjóð var í gufubaði
heima hjá sér, ætlaði að
auka aðeins við eldinn
og henti bensíni á hann.
Hann skaðbrann í and-
litinu og læknarnir
vissu ekki hvað þeir áttu að gera.
Móðir hans bað um leyfi til að nota
Aloe Vera Gel Forte á hann og ár-
angurinn varð ótrúlegur, þetta var
kraftaverki líkast og ég trúði þessu
vart. I dag er hann með tvo rauða
bletti á andlitinu en annars má
ekki greina brunasárin. Vandinn
með lækna er að þeir hugsa á ákveð-
inn hátt og trúa ekki á náttúrlegar
afurðir."
Höfum reynslu og sannanir
Dr. Melumad er þriðja kynslóð
lyfjafræðinga og segist því hafa mik-
inn reynslubanka sem hefur safnast
saman í fjölskyldunni fyrir utan
þau þrjátíu ár sem hann hefur rekið
sitt fyrirtæki. Auk þess hefur hann
skrifað ellefu bækur og ótal greinar
Læknaður /norska tímaritinu Se og
Hor birtist viðtal við mann sem læknað-
ist afsóríasis eftirnotkun á krem frá dr.
Melumad.
um snyrtivörur og til að mynda
kennslubók í háskóla. „Ég var alltaf
viss um að vörurnar myndu hafa
þessa góðu virkni og núna höfum
við reynsluna og sannanirnar. Við
seljum því ekki loforð heldur raun-
verulegan árangur. Það eru margra
ára rannsóknir á bak við vöruna og
þrjátíu ára reynsla. Við höfum alls
kyns vörur sem hægt er að nota við
alls kyns húðkvillum og auk þess
höfum við góð krem fyrir ofnæmi,
exem og viðkvæma húð.“
svanhvit@bladid.net
Blalimikki
20-30% afsláttur af rúmum
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
Nýtt kortatímabil
Útsala
20-40% afsláttur
WÍ/a, .
rúmco
............
Langholtsvegi 111,104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14