blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
blaöiö
VEÐRIÐ í DAG
Rigning
Suðaustan 8 til 15 metrar á sekúndu
og rigning með köflum. Dálitil slydda
norðantil. Hiti 0 til 6 stig, mildast við
suðurströndina.
Á MORGUN
Slydda
Stít suðaustanátt og rigning
eða slydda sunnan- og
vestantil. Hiti á bilinu 1 til 6
stig en í kringum frostmark
norðaustantil.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 20 ' Glasgow 11 New York 07
Amsterdam 21 Hamborg 20 Orlando 15
* Barcelona 26 Helsinkl 09 Osló 05
? Berlín 20 Kaupmannahöfn 16 Palma 25
Chicago 04 London 17 París 22
Dublin 12 Madrid 16 Stokkhólmur 09
Frankfurt 23 Montreal 03 Þórshöfn 07
Umferðarmál:
Karlar tala
meira í síma
Níutíu próser t þeirra sem
lögreglan stöðvaði fyrir að
tala í síma án þess að notast
við handfrjálsan biinað á
þriðjudaginn voru karlmenn.
Við umferðareffirlit lögregl-
unnar kom jafnframt í Ijós að
karlmenn voru einnig í miklum
meirihluta þeirra sem stöðv-
aðir voru fyrir að nota ekki
bílbelti. Þar voru karlmenn 75
af hundraði. Konur voru þó í
meirihluta þeirra sem óku gegn
rauðu ljósi, eða sextíu prósent.
Jón Ásgeir Jóhannesson vill skýringar Jóns H.B. Snorrasonar:
Segja saksóknara
brjóta fyrirmæli
■ Gögn fyrir dómi úr húsleit í Lúxemborg ■ Á réttum staö aö sögn saksóknara
Þing BSRB:
Sætta sig
ekki við kjörin
„I láglaunastörf víða í atvinnu-
lífinu og innan velferðarþjónust-
unnar hópast nú aðkomufólk
sem boðið er upp á kjör sem
Islendingar sætta sig ekki við;
kjör sem þetta fólk þiggur off
á tíðum fegins hendi vegna
neyðar og skorts í heimahögun-
um,“ sagði Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, í ræðu sinni
við opnun 41. þings BSRB í gær.
Ögmundur segir það rangt sem
stundum sé sagt að íslendingar
sætti sig ekki við sum störf og
flýi þau af þeim sökum. Hið rétta
sé að fólk sætti sig ekki við þau
kjör sem eru í boði, svo sem á
sjúkra- og hjúkrunarstofnunum.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Það er verið að brjóta gegn fyrirmæl-
unum sem menn fengu um notkun
gagnanna erlendis frá,” segir Gestur
Jónsson, verjandi Jóns Asgeirs Jó-
hannessonar, forstjóra Baugs, um
gögn sem fengust við húsleit í Lúxem-
borg 2004 og voru lögð fram í máli
sem nú er fyrir héraðsdómi.
„Þetta er alrangt. Þetta er sakarefni
sem var skýrlega lýst í réttarbeiðn-
inni. Gögnin eru f því máli sem þau
eiga að vera og hvergi annars staðar.
Réttarbeiðnin var vegna rannsóknar
þessa máls,” segir Jón H. B. Snorra-
son saksóknari.
í opnu bréfi til Jóns H. B. Snorra-
sonar spyr Jón Ásgeir saksóknarann
meðal annars hvers vegna gögn sem
fengust við húsleit í Lúxemborg 2004
af hálfu yfirvalda þar hafi verið lögð
fram f öðru máli þrátt fyrir ákveðinn
fýrirvara. I réttarbeiðni ríkislögreglu-
stjóraembættisins í janúar, mars og
apríl 2004 var tekið fram að Jón Ás-
geir og Tryggvi Jónsson væru meðal
annars grunaðir um fjárdrátt, fjár-
svik, innherjasvik og peningaþvætti í
tengslum við viðskipti við Kaupthing
úmsrunofíHúsio
Vill skýringar frá
saksóknara
Jón Ásgeir
Jóhannesson,
forstjóri Baugs
Gögnin þar sem
þau eiga að vera
Jón H. B. Snorrason,
saksóknari
Luxembourg, að þvf er kemur fram f
bréfi Jóns Ásgeirs. Hann segir ekkert
hafa komið í ljós sem studdi ásakan-
irnar. Það sjáist best á því að ekki hafi
verið ákært fyrir slík brot.
Jón Ásgeir bendir jafnframt á að í
bréfisaksóknaraembættisinsíLúxem-
borg dagsettu 3. ágúst 2004 sé ftrekað
að farið verði eftir reglu sem getið var
í bréfi 1. júlí 2004 um að gögnin verði
eingöngu notuð í ákveðnu skyni.
Lögð er áhersla á að gögnin sem af-
hent voru íslenskum yfirvöldum eigi
eingöngu að nota vegna rannsókna
á atriðum sem getið var um í réttar-
beiðninni. Jón Ásgeir telur síðara
bréfið vísbendingu um að yfirvöld f
Lúxemborg hafi fengið bakþanka um
veitta aðstoð.
Jón H. B. Snorrason segir bréfið
sem barst frá Lúxemborg f ágúst hafa
verið svarbréf við bréfí lögmanns
Jóns Ásgeirs. „Hann spurði hvort
nota mætti gögnin í öðrum tilgangi
en þeim sem getið var í réttarbeiðn-
inni en það var nú ekki vegna þess að
hann teldi að verið væri að gera slfkt
eða að það stæði til.”
Saksóknarinn leggur á það áherslu
að það sé alveg ljóst samkvæmt Evr-
ópusamningi um gagnkvæma réttar-
aðstoð að ekki megi nota gögn sem
fengin eru með réttarbeiðni vegna
meðferðar annarra sakarefna en getið
er um. „Þeir fengu svar með vfsan til
gildandi grundvallarlögmála.”
Verjandi Jóns Ásgeirs segir að
gögnin frá Lúxemborg hafi verið
lögð fram í tenjgslum við ætlað bók-
haldsbrot Jóns Ásgeirs sem nú er fyrir
héraðsdómi. Saksóknarinn fullyrðir
að sakarefninu hafi verið lýst í réttar-
beiðninni frá 2004. Það hafi mörg sak-
arefni verið undir f réttarbeiðninni
og þeim lýst. Þess vegna hafi gögnin
frá Lúxemborg verið lögð fram nú.
Kjarnorkudeila:
Við stöndum
þétt saman
Christopher Hill, sérstakur
erindreki Bandaríkjamanna
í Austur-Asíu, segir að spenn-
an vegna kjarnorkutilrauna
Norður-Kóreumanna hafi gert
það að verkum að samband
bandarískra og kínverskra stjórn-
valda hafi aldrei verið nánara.
Hill hefur verið á ferðalagi
um Austurlönd fjær til þess að
tryggja samstöðu um beitingu
refsiaðgerða sem öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti
að beita gegn stjórnvöldum í
Pjongjang vegna tilraunanna.
Norður-Kórea:
Hóta Stríði
Norður-Kóreumenn hótuðu
að gripa til hernaðaraðgerða taki
Suður-Kóreumenn þátt í þeim
þvingunaraðgerðum sem öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna greip til
gegn stjórnvöldum í Pjongjang í
kjölfar þess að þau gerðu tilraun-
ir með kjarnavopn á dögunum.
Ríkisfréttastofa Norður-Kór-
eu hafði eftir embættismanni
að stjórnvöld myndu líta á
þátttöku Suður-Kóreumanna
í þvingunaraðgerðum sem
alvarlega ögrun sem myndi
leiða til stríðs á Kóreuskaga.
NYKOMIM SENDING AF
ITAIÆRI PLASTMÓDELUM
OG AKRÝL MÁLXIXGIJ
Mikill viðbúnaður vegna nauðlendingar í Keflavík:
Allar þyrlurnar til hjálpar
Tómstundahúsið\Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid.is
Mikill viðbúnaður var á Keflavík-
urflugvelli um þrjúleytið í gær eftir
að beiðni um nauðlendingu barst
frá flugvél bandaríska flugfélagsins
Continental. Vélin sem er af gerð-
inni Boeing 757-200 var á leið til
Bandarfkjanna frá Bretlandi með
172 farþega um borð þegar bilun í
öðrum hreyfli varð til þess að hann
stöðvaðist.
Allar þrjár þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar voru kallaðar út og flugu þær
f átt að vélinni. Þá voru einnig allir
björgunarbátar á suðvesturhorni
landsins kallaðir út ef vélin skyldi
þurfa að nauðlenda á sjó.
Flugstjóra vélarinnar tókst að
lokum að ræsa hreyfilinn að nýju
og lenti vélin heilu og höldnu á Kefla-
víkurflugvelli rétt eftir klukkan
fjögur f gærdag. Að sögn Hjalta
Sæmundssonar, aðalvaktstjóra hjá
Landhelgisgæslunni, stóð einnig til
að senda Fokker-flugvél Landhelg-
isgæslunnar af stað með þyrlunum.
Hann segir aðgerðirnar hafa gengið
vel. „Okkur hefur aldrei áður tekist
að vera með þrjár þyrlur úti á sama
tíma. Við erum því mjög sáttir við
okkar þátt í þessari aðgerð."