blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 33

blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 33
blaðið FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 45 Þær reyndust hins vegar ekki sá and- legi félagsskapur sem hann hafði einnig þörf fyrir. Hann átti í nokk- urra ára ástarsambandi við helstu mótleikkonu sína Ednu Purviance. Eftir að ástarsambandi þeirra lauk héldu þau vináttu og töluðu alla ævi hlýlega hvort um annað. Hann var 29 ára gamall þegar hann kvæntist fyrstu eignkonu sinni, hinni sextán ára gömlu leikkonu Mildred Harris. Hann samþykkti ekki hjóna- band fyrr en hún tilkynnti honum að hún væri barnshafandi. Svo reyndist þó ekki vera en Chaplin var fastur í hjónabandi sem hann hafði ekki viljað ganga í. Ári seinna eignuðust hjónin dreng sem dó nokkurra daga gamall. Þau skildu eftir tveggja ára óhamingjusamt hjónaband. Eigin- konan unga kvartaði undan því við fjölmiðla að eiginmaðurinn fyrrver- andiværikynóður. Annað hjónaband Chaplins var enn verra en það fyrsta. Hann var 35 ára og leikkonan Lita Grey var 16 ára þegar þau hófu ástarsamband og gengu síðan í hjónaband þegar hún varð barnshafandi. Þau eign- uðust tvo syni og síðan lauk hjóna- bandinu með ósköpum. Skilnaðar- deila þeirra var drjúgt fóður fyrir slúðurblöð en Lita dró ekki af sér í fullyrðingum um skepnuskap eigin- manns síns. Meðan á skilnaði þeirra stóð var Chaplin að vinna að mynd sinni The Circus. Átökin við eigin- konuna tóku svo á hann að svart hár hans varð hvítt á einni nóttu og aðstoðarmenn hans þurftu að lita það. Skilnaðarmálinu lauk með því að Chaplin greiddi Litu lífeyri sem var hæsta skilnaðargreiðsla fram að þeim tíma í Bandaríkjunum. Chaplin fínnur hamingjuna Chaplin bjó síðan í nokkur ár með hinni lífsglöðu, skemmtilegu og gullfallegu leikkonu Paulette Godd- ard sem var mótleikkona hans í Nútímanum og Einræðisherranum. Það var hún sem sá til þess að hann hefði samband við unga syni sína tvo sem dýrkuðu Paulette. Þau Chaplin slitu sambandi í mestu vin- semd eftir nokkur ár. Chaplin var þó ekki kvenmannslaus, það var hann sjaldnast, og átti i ástarsambandi vð leikkonuna Joan Berry. Hún var í andlegu ójafnvægi og eftir að sam- bandi þeirra lauk fór hún að ásækja hann. Þegar hún varð barnshafandi höfðaði hún faðernismál á hendur Chaplin. Blóðrannsókn leiddi í Ijós að Chaplin gæti ekki verið faðir barns hennar, en þar sem slíkar rannsóknir höfðu ekkert gildi í Kali- forníu þar sem málið var rekið var Chaplin gert að greiða meðlag með Charlie Chaplin Kannski mesti snillingur kvikmyndasögunnar. barninu. Meðan á réttarhöldunum stóð var Chaplin ástfanginn af Oonu O’Neill, dóttur leikskáldsins Eugene O’Neill. Hann var 54 ára, hún var 17 ára. Þau gengu í hjónaband og faðir hennar neitaði að eiga nokkur sam- skipti við dóttur sína eftir það. Oona dýrkaði Chaplin og var fullkomlega sátt við að standa í skugga manns sem tók vinnu sína fram yfir allt annað. Hjónabandið var langt og hamingjuríkt og hjónin eignuðust átta börn. Útlagi í Sviss Chaplin hallaðist til vinstri í stjórnmálaskoðunum, eins og kvik- myndir hans bera glöggt vitni um. Árið 1952 fór hann í heimsókn til Evrópu ásamt fjölskyldu sinni en Bandaríkjastjórn ákvað að neita honum um að snúa aftur til lands- ins þar sem hann væri stórhættu- legur kommúnisti. Chaplin settist þá að i Sviss. Hann gerði síðan myndina Konungur í New York sem var hörð gagnrýni á nornaveiðar McCarthy-tímans, nokkuð sem enginn annar kvikmyndaleikstjóri þorði á þessum tíma. Chaplin sneri ekki aftur til Bandaríkjanna fyrr en 1972 þegar honum voru veitt heiðurs Óskarsverðlaun. Chaplin lést árið 1977 og hafði þá barist við heilsuleysi í nokkurn tíma. Sex mánuðum fyrir lát sitt sagði hann: „Að vinna er að lifa og ég vil lifa.“ Oona lifði í fjórtán ár eftir lát manns síns. Það voru ekki hamingju- rík ár því hún saknaði manns síns svo sárlega að hún lagðist í drykkju. Hún lést úr krabbameini árið 1991. kolbrun@bladid. net 35% afsláttur af salernum, setum og innbyggðum vatnskössum 40% afsláttur Salernisskál IDO Mosaik hörð seta. 8076003 Vatnskassi, Viega Innbyggður 8075415 FronturViega 9 CQ4 hvítur Vatnskassi IDO Innbyggður, lág. 16.500 æ76101 Frontur IDO lítill hvítur. 8076107 1.107 Frontur IDO llitill hvítur. 8076111 1.074 1-790- Salernisskál Cersanit, án setu. 8077525 •*5*Ódýrt 7.140 Salernisskál 11-9Ö8- Án setu. 8078400 HÚSASMIOJAN ...ekkert mál

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.