blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaðið Á ÚTSÖLUMARKAÐI OKKAR, SÍÐUMÚLA11. KOMDU OG GERÐU FRÁBÆR KAUP! ELLINGSEN OG ÚTIVIST&VEIÐI ÚTSÖLUMARKAÐUR Síðumúla 11, opið 10-19 fimmtudag og föstudag, 10-16 lauqardaq oq sunnudaq B R A S S s ; E r i e 'N •&L ' HÓTEL REYKJAVÍK Villibráð & dekur á Grand Hótel Reykjavík Fordrykkur Fjögurra rétta villibráðarmatseðill Corona de Aragon Reserva 2000 Gunnar Páll leikur Ijúfa tóna Gisting fyrirtvo Morgunverður Alls kr. 19.800 fyrir parið Eingöngu matseðill Kr. 12.400 fyrir parið Gildir allar helgar frá 20. okt. - 18. nóv. Bókaðu á netinu www.reykjavikhotels.is eða í síma 514 8000 INNLENT LÖGREGLAN Olvaður með barn í bíl Tæplega fertugur maður var tekinn af lögreglu fyrir ölvunarakstur í austurbæ Reykjavíkur á þriðjudaginn. Hann hafði áður keyrt á umferðarskilti og forðað sér af vettvangi. Lögregla hafði uppi á manninum og kom þá í Ijós að ellefu ára sonur mannsins sat í farþegasæti bílsins. Maðurinn hefur verið sviptur ökurétt- indum. Þá reyndist bíllinp ótryggður og voru því skráningamúmerin fjarlægð. lÖGHEGlVSTÖÖ PÖLICK Veita á sakaruppgjöf Hingað til hefur enginn heimildarmaður sem skýrt hefur frá grunsemdum um ólöglegar hleranir komið fram undir nafni. Mmd/M É| Ofmikið reynt Itr^ ,gs3l>K Ja Ekki veistað Sakaruppgjöf aðnáþeimsem « senia frá k - Pl lögreglumönnum fyrirþeirra störf \ ‘ á. ) myndi auðvelda rannsókn 1| W Ragnar Aðalsteinsson hæstarréttarlögmaður \\ Jón Baldvin Hanni- balsson fyrrverandi utanríkisráðherra EirikurTómasson Lagaprófessor við Háskóla (slands Heimildarmenn treysta sér ekki til að koma opinberlega fram: Sakaruppgjöf for- senda rannsóknar ■ Lögregla þarf aö aflétta trúnaði ■ Skipa á rannsóknarnefnd Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Aðalatriðið í stjórnsýslunni, og ekki síst hjá lögreglunni, virðist vera að finna leka og ná þeim einstaklingum sem telja rétt að veita upplýsingar um refsiverð athæfi,“ segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður um viðbrögð lögregluyfirvalda við grunsemdum sem fram hafa komið um ólöglegar hleranir á vegum lögreglunnar. Nær allir heimildarmenn sem fram hafa komið í fjölmiðlum treysta sér ekki til að láta nafns síns getið. Jón Baldvin Hannibalsson, fýrrverandi utanríkisráðherra, er ekkert hissa á því að svo sé. „Ég get alveg trúað því. Eins og staðan er í dag er hún mjög viðkvæm fyrir lögreglumenn og starfsmenn ráðuneyta. Þeir geta einfaldlega ekki komið fram vegna þagnarskyldu og þeirrar staðreyndar að þetta eru grunsemdir um lögbrot, segir Jón Baldvin. „Það ber alls ekki að veitast að lögreglumönnum fyrir að hafa unnið sín störf í gegnum tíð- ina. Heldur ekki að ráðast á þá sem sett hafa fram þessar grunsemdir og krefjast þeirra heimilda. Eðli máls- ins samkvæmt eru engin vitni uppi á borðinu." Sakaruppgjöf nauðsynleg Aðspurður segir Jón Baldvin það hlj óta að vera hag lögreglunnar og lyk- ilstofnana að þær grunsemdir sem fram hafa komið séu upplýstar. „Til þess að endurvekja traust á þessum stófnunum er nauðsynleg forsenda að Alþingi setji lög um sakaruppgjöf til þeirra sem eiga hlut að máli eða búa yfir upplýsingum. Fyrr getur almennileg rannsókn ekki hafist,“ segir Jón Baldvin. „Til þess þarf að af- létta trúnaði og veita sakaruppgjöf." Gagnleg hjálpartæki Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla fslands, er því sammála að við rannsókn málsins væri auð- veldara að fást ef veitt væri sakarupp- gjöf eða aflétt yrði trúnaðarskyldu. Hann telur mikilvægt að þessi mál verði upplýst að fullu. „Óneitanlega myndi þetta auðvelda upplýsinga- öflun við rannsóknina ef sakarupp- gjöf væri veitt,“ segir Eiríkur. „Yfir- maður lögreglu getur jafnframt aflétt trúnaði og það myndi tvímælalaust líka hjálpa til.“ Galli á kerfínu Eiríkur bendir á þann galla hér á landi að ekki skuli vera til farvegur til rannsókna af þessu tagi og er þeirrar skoðunar að rannsóknar- nefnd á vegum þingsins þurfi ekki að vera skipuð þingmönnum. „Á Al- þingi eru engin lög til um rannsókn- arnefndir og úr því þarf að bæta. Slík rannsóknarnefnd þarf ekki að vera skipuð þingmönnum þó svo að á end- anum væri skýrslu skilað til þings- ins,“ segir Eiríkur. Jón Baldvin tekur undir með Ei- ríki og treystir því að nefnd á vegum Alþingis muni rannsaka málið. „Eftir að hafa hugsað málið er nauðsynlegt að mynda rannsóknarnefnd á vegum þingsins og hún þarf ekki endilega að vera þverpólitísk eins og gert var í Noregi. Hún getur verið skipuð vammlausum heiðursmönnum sem njóta trausts og trúnaðar," segir Jón Baldvin. Ljóstrað upp um fleiri hleranir: Hannibal hleraður líka „Ég hef ákveðnar grunsemdir um að þetta geti nú verið mér að kenna vegna þess hvað var að eiga sér stað á þessum tíma,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utan- ríkisráðherra, og fullyrðir að bæði heimasími og vinnusími föður síns, Hannibals Valdimarssonar, fyrrver- andi formanns Alþýðusambandsins, hafi verið hleraðir árið 1961. Jón Baldvin hefur fengið á því staðfestingu að svo hafi verið að minnsta kosti í febrúar og mars þetta ár en þá starfaði hann hjá Sam- tökum herstöðvaandstæðinga. „Á þessum tíma gekk mitt starf fyrst og fremst út á það að berjast gegn samningi íslenskra stjórnvalda við Hannibal hleraður Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, hefur fengið staðfestingu þess efnis að heima- og vinnusími föður hans hafi verið hleraður. Breta um stækkun landhelginnar. Ég beitti mér fyrir skipulagningu á mótmælum gegn samkomulag- inu og því hefur Hannibal líklega verið hleraður," segir Jón Baldvin og bætir því við að hugsanlega sé hann að hreykja sér of hátt. Hann telur líklegt að þetta sé dæmi um þær hleranir sem heimilaðar voru til að fylgjast með andstæðingum stjórnvalda. „Hér er á ferðinni klár misbeiting á framkvæmdavaldinu og þessar heimildahleranir þarf að rannsaka. Spyrja má hvernig þáver- andi stjórnvöld og samfélag hefðu brugðist við ef listar yfir varalið Sjálfstæðisflokksins hefðu lekið til sovéska sendiráðsins.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.