blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 10
-I
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
blaöiö
UTAN UB HEIMI
Lömunarveiki vaxandi vandamál
Indversk yfirvöld segjast hafa vaxandi áhyggjur af
því hversu lömunarveiki er algeng i landinu. Um
120 tilfelli voru tilkynnt í síðasta mánuði og hafa
416 tilfelli verið greind í landinu frá áramótum eða
um þriðjungur allra greindra tilfella í heiminum.
Bókavörður dæmdur fyrir stuld
Bókavörður í Manchester hefur verið dæmdur til að
gegna samfélagsþjónustu í 250 stundir fyrir að stela
fágætum bókum til að selja gegnum Netið. Bókavörð-
urinn stal meira en 455 fornum bókum og skjölum
og þar á meðal útgáfu á verkum Chaucers frá 16. öld.
>
Chirac fagnar áhrifum Kínverja
Jacques Chirac, forseti Frakklands, fagnar aukinni þátttöku Kína á al-
þjóðavettvangi og lofar það hvernig stjórnvöld í Peking hafa beitt sér í
deilum um kjarnorkuáætlanir Norður-Kóreu og (rans. Chirac er í opin-
berri heimsókn í Kína og er talið að megináhersla hans í heimsókn-
inni verði að beita sérfyrir auknu aðgengi franskra fyrirtækja þar.
Grænfriðungar í Reykjavík:
Slys á Grundartanga:
Bakkaði
yfir mann
Maður um fertugt ökklabrotn-
aði í gærmorgun í álveri Norður-
áls á Grundartanga þegar hann
varð undir lyftara. Atvikið átti
sér stað í skautsmiðju álversins
þar sem lyftarinn var að sækja
svokallaða skautabakka. Maður-
inn hugðist leiðbeina ökumanni
lyftarans um hvar skyldi ná í
skautin en þar sem ökumaður-
inn sá ekki leiðbeinandann tím-
anlega, bakkaði hann yfir hann.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús-
ið á Akranesi til aðhlynningar.
Hvalveiðar fyrir Kristján
■ Segja ekki markað fyrir kjötið ■ Sjö milljarðar hafa tapast ■ Höldum herferðinni áfram
„Af hverju að halda áfram hval-
eiðum þegar enginn markaður er
fyrir hendi og á sama tíma skaða
ferðaþjónustuna hérlendis?“ spyr
Frode Pleym, talsmaður
Grænfriðunga.
Að mati samtakanna hafa ís-
lendingar orðið af tæpum sjö millj-
örðum króna í formi tekna af ferða-
mönnum vegna hvalveiðanna. Um
87 þúsund manns víðs vegar
»•« , um heim hafa nú
_________ skrifað undir
\' ■
Frá fundi Grænfriðunga í Lækjar-
brekku í gær Lofa fleiri ferðamönn-
um ef ísiendingar láta af hvalveiðum.
heit þess efnis að heimsækja ísland
láti stjórnvöld af hvalveiðum í at-
vinnu- og vísindaskyni. Þar af hafa
um tuttugu þúsund skrifað undir.
„Það er lítill markaður fyrir hvalkjöt
á Islandi og útflutningsmöguleikar
eru takmarkaðir. Þessar veiðar hjá
Kristjáni Loftssyni henta honum
kannski ágætlega en skaða hins
vegar íslenskan almenning,“ segir
Frode.
Frode segir Grænfriðunga ekki að
til mótmælaaðgerða. „Við munum
halda áfram þeirri herferð okkar
að fá fólk víðs vegar um heim til að
lofa að koma til Islands gegn því að
stjórnvöld banni hvalveiðar. Það er
alveg ljóst að mun fleiri ferðamenn
munu koma hingað til lands ef Is-
lendingar láta af hvalveiðum.“
J
Komdu
og skoðaðu úrvalið
Fyrir börnin
2-3©ertTr. O
Hnoss, húfa
l.lOOkr
UTSOLUMARKAÐUR
Faxafeni 12, Reykjavík* Glerárgötu 32, Akureyri. Opiö 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga. WWW.66north.is NORÐUR
SWAROVSKI
SKARTGRIPIR
TILBOÐSDAGUR
Aðeins í dag fimmtudag
veitum við 20% afslátt
af hinum
vinsælu og heimsþekktu
SWAROVSKI skartgripum
t
Hálsmen Eymalokkar
\ / w 5
Hringar Hálsmen
\ /
&
Armbönd Hálsmen
%
SWAROVSKI
m
Einstakt tækHeerí
OPIÐ TIL 9 í KVÖLD
Líttu á www.tk.is
, ‘Iæl______
^KRISTALL
KRINGLUNNI 5: 568 9955