blaðið - 26.10.2006, Page 16
blaðið
hIúI ee hú
Ljieg nusgogn ogg|aravorurí
FullbúÖ affallejum cjjafavörum,
einstökum húsjöjnum, þœcjilecjum
sójum ocj stökum stólum.
Sjóyt er söcju ríkari!
VIRKA Húsgögn
Mörkin 3, sími 568 7470 www.virka.is
Verslunin er opin mán-fös frá 10-18 Laugardaga frá 11-15
JíVJJJll líISJJj'J
Snuöra og Tuöra eru rammíslenskar aksjónhetjur sem hafa kætt kynslóðir
undanfarinna ára með skessulátum sínum. Mamma þeirra þarf oft aö vera
þolinmóð en hún vill aö þær systur læri fyrst og fremst af reynslunni. Ungir
foreldrar sem ólust upp meö Snuðru og Tuðru geta nú endurnýjað kynnin
við þær með börnum sínum.
Iðunn Steinsdóttir hefur skrifað fyrir íslensk börn í áratugi.
Nú eru fyrstu fjórar sögurnar um prakkarasysturnar komnar aftur út
meö nýjum myndskreytingum eftir listakonuna
Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur.
- Af hverju
ertu svona
góð við mig?
Bara N
af því að
þú meiddir þig
^ Ætlarðu þó
að vera vond við mig
aftur þegar
v mér batnar? ^
(Úr bókinni
Snuöra og Tuöra veröa vinir.)
16 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006
HVAÐ MANSTU?
1. Panamamenn hafa ákveöið að stækka skipaskurðinn sem tengir
Atlantshaf og Kyrrahaf. Hvenær var skurðurinn tekinn í notkun?
2. Hverjir gerðu plötuna Selling England by the pound árið 1973?
3. Hver er aðstoðarmaður fjármálaráðherra?
4. Hver skrifaði skáldsöguna Yfirvaldið sem kom út árið 1980?
5. Hvar þykir „Lomo Saltado” hinn mesti herramannsmatur?
Svör:
ISíSiCl
Forseti svarar spurningum
Íalþýðunnar Sjónvarpið brúargjána
milli forseta og þjóðar i Rússlandi.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti:
Útilokar að
sitja lengur
■ Tilnefnir sjálfur æskilegan eftirmann
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
staðfesti í gær að hann myndi ekki
sækjast eftir að sitja þriðja kjörtíma-
bilið á valdastóli eins og margir
hafa búist við en sagði að hann
myndi þrátt fyrir það hafa áhrif á
gang mála i landinu. Stjórnarskrá
Rússlands meinar mönnum að
sitja lengur en tvö kjörtímabil á for-
setastóli en sökum gríðarlegra vin-
sælda Pútíns krefjast margir þess
að stjórnarskránni verði breytt svo
að hann geti setið áfram. Gengið
verður til forsetakosninga í landinu
árið 2008.
Yfirlýsing Pútíns kom í sjónvarps-
þætti þar sem forsetinn tekur við
spurningum frá kjósendum. Þetta
er í fimmta sinn sem forsetinn
kemur fram í slíkum þætti en hann
hefur sagt að þeir efli tengsl hans
við almenning. Þrátt fyrir að hann
ætli ekki að beita sér fyrir stjórn-
arskrárbreytingu sem myndi veita
honum tækifæri til þess að bjóða
sig fram á ný sagðist Pútín vonast
til þess að Rússar leyfðu honum að
hafa áfram áhrif á þróun mála í land-
inu. En hann sagði að þrátt fyrir að
hafa ekki formleg völd lengur eftir
næstu kosningar hefði hann áfram
traust Rússa og hann ætlaði að nota
það til þess að tryggja þróun og
framgang rússnesks þjóðfélags.
í ljósi þessara yfirlýsinga spurðu
blaðamenn forsetann eftir þáttinn
hvern hann vildi sjá sem eftirmann
sinn á forsetastóli.
Pútín svaraði að hann væri ekki
enn reiðubúinn að nefna hvaða arf-
taki væri honum þóknanlegur en
sagðist mundu lýsa því yfir þegar
þar að kæmi. Stjórnmálaskýrendur
telja að Sergei Ivanov varnarmála-
ráðherra eða Dimitry Medvedev
aðstoðarforsætisráðherra séu
líklegustu arftakar Pútíns en þrá-
látur orðrómur hefur verið um að
Pútín sitji áfram telji núverandi
valdhafar í Kreml ólíklegt að annar
þessara manna myndi sigra í næstu
forsetakosningum.
Fasteignasalar þurfa leyfi frá ráðherra:
Leyfi fæst með
þekkingunni
„Fasteignasali er lögverndað
starfsheiti og opinbert leyfi þarf
frá dómsmálaráðherra til þess að
geta kallað sig fasteignasala," segir
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala, um umræðu
sem skapast hefur eftir að Jón Pét-
ursson var nýverið dæmdur fyrir
hrottalega nauðgun og var titlaður
fasteignasali í fjölmiðlum. Jón hafði
starfað við fasteignasölu en er ekki
löggiltur fasteignasali.
Grétar bendir á að dæmi sé um að
starfsmenn á fasteignasölum kalli
Óþolandi þegar
aðilar titla
sig óréttilega
fastelgnasala.
Grétar Jónasson
Framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala
Alveg óþolandi Fasteignasölum
líkar illa að hver sem er kalli sig
fasteignasala þarsem sérstök viður-
kenning fæst frá dómsmálaráðherra.
Sú viðurkenning er veitt á grundvelli
reynslu og þekkingar.
sig fasteignasala án þess að hafa
til þess tilskilin leyfi eða þekkingu.
„Það er með öllu óþolandi þegar að-
ilar titla sig fasteignasala án þess að
hafa hlotið viðurkenningu ráðherra.
Sú viðurkenning er veitt á grund-
velli þekkingar og reynslu í faginu."