blaðið - 26.10.2006, Side 30

blaðið - 26.10.2006, Side 30
R 26. OKTÓBER 2006 Sequexices [ kvöld klukkan 17 fremur myndlistarmaðurinn Snorri Ásmunds- son gjörning fyrir framan Hallgrímskirkju. Snorri hefur sýnt aö hann lumar á ýmsu í pokahorninu og því ættu listunnendur ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. t JXS9 . fli * blaðið Hrauntákn Síðastliðinn föstudag opnaði Halldór Ásgeirsson myndlistarmaður sýningu sína Hrauntákn í sýningarrýminu Gallerí Dvergur. Halldór flutti gjörning á opnuninni og um næstu helgi mun hann halda áfram aö flytja gjörninga í sýningarrýminu; á föstudag og laugardag klukkan 21.00. komulagi. Grátbroslegt og drepfyndið í senn að er kunnara en frá þurfi að segja að ís- lenskt samfélag hefur tekið miklum breyt- ingum síðustu ár og sá hópur sem kallar sig íslendinga er ekki jafn einsleitur og hann var fyrir áratug. Hingað hefur flust fjöldi fólks sem er af erlendu bergi brotið og reynir eftir bestu getu að fóta sig í völundarhúsi tungumáls- ins, framandi hefðum og nístandi kuldanum sem strýkur vangann oft meira en góðu hófi gegnir. Þessar umbreytingar koma held- ur betur við sögu í verkinu Best í heimi eftir Hávar Sigurjónsson, Maríu Reyndal og leikhópinn Rauða þráðinn sem verður frum- sýnt næstkomandi laugardag í Iðnó. Best í heimi er nýstárlegt verk fyrir margra hluta sakir en það varpar skemmtilegu og fersku ljósi á samskipti íslendinga og útlendinga búsettra á íslandi. Sól- veig Elín Þórhallsdóttir er fram- kvæmdastjóri leikhópsins Rauða þráðarins. „Fyrir rúmu ári þegar María Reyndal vinkona mín flutti heim frá Nýja-Sjálandi þá létum við verða af því að stofna leikhóp. Eftir nokkra umhugsun ákváðum við að kalla hópinn Rauða þráðinn en nafnið vitjaði mín í draumi og eftir það kom ekkert annað nafn til greina,“ segir Sólveig og hlær. Mikil rannsóknarvinna að baki „María hafði lengi verið með þá hugmynd í kollinum að setja upp sýningu með útlendingum búsettum á íslandi og fletta svolít- ið ofan af samfélaginu okkar með þau gleraugu á nefinu," útskýrir Sólveig og bætir við að þær stöll- ur hafi fljótlega orðið sér úti um Sólveig Elín Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða þráðarins, og María Reyndal „Sögurnar eru jafn margarog fólkiö sjálft aðstöðu í Alþjóðahúsinu þar sem þær hafi auglýst eftir erlendu, leik- húsmenntuðu fólki sem búsett væri á íslandi. f kjölfar þess varð til ío til 12 manna leikhópur sem hittist vikulega allan síðasta vetur, bar saman bækur sínar og þróaði hugmyndir. „Við fengumst við ýmsa rann- sóknarvinnu á þessum tíma, tók- um meðal annars viðtöl við f slend- inga og útlendinga um þessi mál, skrifuðum mónólóga og reyndum að undirbúa okkur á allan hátt sem best fyrir verkefnið. í mars síðastliðnum gerðum við smá hlé á vinnunni þar sem María eign- aðist son en í maí hófum við svo störf að nýju með fjórum leikur- um sem eftir stóðu af þeim sem við höfðum upphaflega farið af stað með. Við fengum myndarleg- an styrk frá menntamálaráðuneyt- inu til þess að vinna að verkinu og einnig höfum við leitað til ýmissa fyrirtækja þar sem þetta kostar sitt. Landsvirkjun studdi til dæm- is dyggilega við bakið á okkur.“ Ekki bara dans á rósum Undanfarna daga hafa sjónvarps- áhorfendur getað séð sýnishorn úr verkinu á Skjá einum og margir hafa eflaust skellt hressilega upp úr enda er til dæmis óborganlegt að fylgjast með útlendingi gefast upp fyrir íslenska beygingakerfinu og panta sér bara fimm pylsur í stað þess að gera örvæntingarfullar til- raunir til þess að bera fram lægri og erfiðari tölur. „Verkið er ákaflega fyndið," segir Sólveig. „Þetta er þó ekki bara dans á rósum og þessi mál eiga sér líka erfiðar og sorglegar hliðar sem við reyndum líka að gera skil á varfær- inn hátt. ísland er að mörgu leyti framandi samfélag fyrir þá sem hingað koma og það getur verið mjög kalt og hart við fyrstu kynni. Fólk er líka að flytja hingað frá öllum löndum veraldar og upplif- ir veruleikann á afar ólíkan hátt. Sögurnar eru jafn margar og fólkið sjálft,“ segir Sólveig að lokum. hilma@bladid.net ELLINGSEN OG ÚTIVIST&VEIÐI ÚTSÖLUMARKAÐUR Síðumúla 11, opið 10-19 fimmtudag og föstudag, 10-16 laugardag og sunnudag /1 /.' * Grímur gerir það gott Stuttmyndin Slavek The Shit eða Kúkurinn Slavek í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hlaut verðlaun á Kvikmyndahátíðinni í Chicago sem lauk síðastliðinn föstudag. Mynd- in hlaut Silver Hugo-verðlaunin en bandaríska stuttmyndin Forgetting Betty í leikstjórn James Anderson og Robert Postrozny hlaut Golden Hugo-verðlaunin. Kvikmyndahátíð- in í Chicago, sem sett var á stofn ár- ið 1965, er mjög virt hátíð en hún er jafnframt ein elsta kvikmyndahátíð- in í Norður-Ameríku. Önnur íslensk mynd, Blóðbönd, var í einni af keppnisdag- skrám hátíðarinnar, en leikstjóri myndar- innar, Árni Ólafur Ásgeirsson, var gestur há"* a r i n n a Kúkurinn Slavek er lokaverkefni Gríms frá kvikmynda- skóla í Prag og fjallar hún um klósettvörðinn Slavek og óuppfyllta drauma hans. Myndin hóf sigurgöngu sína á Kvikmyndahátíð- inni í Cannes 2005 og síðan þá hefur hún verið valin á kvikmyndahátíðir um allan heim og hlotið fjölda verðlauna. Brilljant skilnaóur Einleikur Eddu Björgvinsdóttur hefur verið sýndur 130 sinnum fyr- ir fullu húsi og við fádæma undir- tektir áhorfenda um allt land, en rúmlega 20 þúsund manns hafa nú þegar séð sýninguna. Borgarleikhúsið hefur ákveðið, vegna fjölda áskorana, að bjóða upp á fjórar sýningar á þessum drepfyndna einleik nú í haust og eru allra síðustu forvöð að berja augum einleikinn frábæra. Leikrit- ið fjallar um miðaldra konu, Ástríði Jónu Kjartansdóttur, sem lendir í því að maðurinn hennar finnur sér nýja konu „nýfermda spænska stelpudruslu" eins og Ástríður segir sjálf. Upp frá því hefst afar erfið en drepfyndin þroskasaga vesalings Ástríðar, sem sveiflast á milli sorgar og reiði, hefnigirni og harmagráts.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.