blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 36

blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 36
4 8 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaöiö ') \' A. * SIEMENS óttir ithrottir@bladid.net Prettán milljónir á viku Didier Drogba mun skrifa undir samning viö Chelsea á næstu dögum sem skuldbindur hann félaginu til ársins 2010. Drogba mun fá fimmtiu pró- senta iaunahækkun við undirskriftina og þéna yfir hundrað þúsund pund á viku, sem samsvarar um þrettán milljónum íslenskra króna. f / F< i I orráða- menn Real Madrid hafa gefið það út Pf aðþeirséu j tilbúnirað * látaDavid Beckham fara fyrir fimm milljónir punda eða um 650 milljónir króna. Beckham er með lausan samning hjá Real næsta sumar og hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við 'félagið af þeirri ástæðu að hann hefur aðeins byrjað inni á í fjórum leikjum undir stjórn ítalans Fabios Capello. Beckham, sem er 31 árs, hefur áður lýst því yfir að hann hefði áhuga á að leika í Bandaríkjunum en víst er að ensk félög munu verða dugleg við að gera hosur sínar grænar fyrir leikmanninum á næstu dögum og vikum. Enska knattspyrnusam- bandið hefur fengið á sig kæru vegna óláta enskra stuðningsmanna fyrir leik Englands og Króatíu sem leikinn var í Króatíu fyrr í mánuðinum. Miðalausir stuðn- ingsmenn enska liðsins virtu ekki öryggisborða við inngang leikvangsins og gerðu sig líklega til að æða inn á völlinn og slógust við öryggisverði. Króatíska knattspyrnusamband- ið hefur þá einnig verið kært fyrir að standa ekki nógu vel að öryggismálum kringum leikinn. Evrópska knattspyrnusam- bandið mun funda um málið niunda nóvember og má enska sambandið allt eins eiga von á því að landsliðinu verði gert að leika heimaleiki sína í keppn- inni fyrir tómum leikvangi. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur ekki stillt upp sama by rjunarliði í 99 leikjum í röð. Hann hefur þurft að þola fyrir það harða gagnrýni upp á síðkastið, enda gengi liðsins ekki ásættanlegt fyrir lið af þeirri stærðar- gráðu sem Liverpool er og mannskap- inn sem Benitez hefur úr að moða. Liðið er nú í ellefta sæti deildarinnar með aðeins ellefu stig eftir níu leiki og spænski knattspyrnustjórinn situr fastur við sinn keip og hyggst stilla upp breyttu liði í hundraðasta skipti í röð þegar Liverpool mætir Aston Villa á Anfield Road um næstu helgi. „Það er auðvelt að gagnrýna Benitez miðað við gengi liðsins, og sjá þessar róteringar hans á liðinu sem orsök þess óstöðugleika sem einkennir leik þess,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari Valsmanna, þegar hann er beðinn um að fara ofan í saumana á vandræðum Liverpool við að ná hag- stæðum úrslitum. „Hann er að reyna að nýta hóp- inn sinn og reyna að vera klókur í því, en missir sjónar á því að halda heildstæðum kjarna í liðinu. Það eru margir aðrir stjórar sem eru klókir í því að nýta hópinn sinn en vara sig á því að halda alltaf í ákveðinn kjarna," segir Willum og tekur sem dæmi Alex Ferguson, stjóra Manchester United, sem hefur Rio Ferdinand og Gary Neville alltaf í byrjunarliði ef þeir eru heilir á annað borð. „Það hefur engin regla verið á þessu hjá Benitez á tíma- bilinu sem hefur til að mynda verið að setja bakvörðinn John-Arne Riise upp á miðju og Stephen Warnock í bakvörðinn," segir Willum. Gerrard örvilnaður „Þá hefur Benitez verið að rótera stöðu Stevens Gerrard, sem hann hefur ýmist á miðju, úti á kanti eða fyrir aftan sóknarmennina. Þótt leik- maður af hans kalíberi geti klárað sig af þessum stöðum er hann orðinn örv- ilnaður í sínum leik. Þetta er kjarna- leikmaður sem á bara að fá sína stöðu,“ segir Willum og útskýrir að afleiðingarnar séu jafnframt slæmar fyrir liðsfélagana, sem tapa tilfinning- unni fyrir hlutverki hans. Varðandi framlínuna hjá Liverpool segir Willum að þrátt fyrir að hann sé með sex frambærilega sóknarmenn, verði hann að fara að ákveða hver sé númer eitt og hver sé númer tvö. „Leikmannakaupin hjá Rafael Ben- itez finnst mér líka hafa verið stórund- arleg,“ segir Willum. „Jermaine Penn- ant, Fabio Aurelio, Steven Warnock og Mark Gonzalez eru augljóslega ekki nógu góðir fyrir Liverpool og ég skil hreinlega ekki hvað þeir eru að gera þarna.“ Guðjón í starfið „Það er fljótgert að leysa vandamál Liverpool-liðsins: Segja Benitez upp og ráða mig. Ég væri fljótur að laga það,” svarar Guðjón Þórðarson þegar hann er inntur eftir því hvernig Li- verpool getur snúið við slöku gengi liðsins undanfarið. „Benitez er með einn besta leikmann Bretlandseyja og jafnvel Evrópu í þvælustöðu eins og ég kalla það. Hann var með Gerr- ard á kantinum í leiknum gegn Manc- hester um síðustu helgi og sagði eftir leikinn að ef hann hefði haft hann á miðjunni hefði hann stöðugt verið pressaður af Paul Scholes og Michael Carrick. Hann er betri en báðir þessir leikmenn og hefði alveg þolað þá pressu. Ef ég tæki við þessu liði núna myndi ég fara í einfalda 4- 4-2 og nálgast hlutina af meiri krafti og áræðni,“ segir Guðjón, hógvær að vanda. Frítt í leikhús Þoð er ekki flókið, þú gistir hjó okkur og fœrð miðo ó sýningu Leikfélogs Akureyror í koupbœfi* "—\ HOTEL Vi/ AKUREYRI Hafnarstræti 67 600 Akureyri Sími: 462 5600 www.hotdakureyri.is hotelakurevrifrt hotelakurevri.is ’gildir ó sýningordögum LA, sjó www.leikfelog.is. Tokmorkoð mogn, iidir ekki með öðrum (iiboðum Eggert Magnússon hefur ekki misst áhugann: Samningsstaðan hefur styrkst West Ham tapaði enn einum leik sínum á þriðjudagskvöld þegar liðið beið lægri hlut fyrir annarrar deildar liði Chesterfield í Carling- bikarnum, 2-1. West Ham er þar með úr leik í bikarnum, en tapið var það áttunda í röð hjá liðinu. „Ég hef síður en svo misst áhug- ann á því að eignast meirihluta í félaginu og maður skyldi einungis ætla að samningsstaðan hafi styrkst ef eitthvað er, miðað við gengi liðs- ins,” sagði Eggert Magnússon, for- maður KSÍ, aðspurður um hvort hann hefði enn áhuga á að fjárfesta i félaginu sem nú situr í næstneðsta sæti úrvalsdeildar með fimm stig eftir níu leiki. Eggert hefur átt í viðræðum við forráðamenn West Ham að undanförnu um hugsan- lega yfirtöku á félaginu, en greint var frá því í síðustu viku að West Ham hafi verið ósátt við hversu stór hluti tilboðs fjárfestingafé- lags Eggerts væri fjármagnaður með lánsfjármagni, eða rétt um helmingur tilboðsins. West Ham tapaði sínum áttunda leik í röð West Ham beið lægri hlut fyrir annarrar deildarliði Chesterfield i bikarnum á þriöjudagskvöld. Eggert Magnússon segist ekki óttast að liðiö falli og segir einungis að samnings- staða sín hafi styrkst.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.