blaðið - 26.10.2006, Side 38

blaðið - 26.10.2006, Side 38
50 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaðiö Kungfú-myndir Saga kínverskrar bardagalistar teygir sig allt aftur til 1200 ára fyrir Krist og er tengd heim- speki, stjórnmálum og menn- ingarsögu Kína. Nú á dögum er kínversk bardagalist vinsæl í kvikmyndum hins vestræna heims jafnt sem hinum aust- ræna og sumir vilja meina að kungfú-myndirnar sem urðu vinsælar á áttunda áratugnum séu sterkt sameiningartákn aust- urs og vesturs. Jet Li og Jackie Chan eru einna vinsælastir en vinsældir kungfú-mynda og hugtaksins kungfú má rekja til ársins 1970 þegar sjónvarps- þættir sem kölluðust Kungfú urðu vinsælir vestra. Þátturinn vakti hörð viðbrögð Kínverja vegna þess að aðal- söguhetjan, David Carradine, var hvítur. Bruce Lee hafði sóst eftir aðalhlutverkinu en var neitað vegna þeirra fordóma sem þá rfktu um Asíubúa í Bandaríkjunum. kungfú-myndir 1. Iron Monkey (1993) 2. Fist Of Legend (1994) 3 Heroes of the East (AKA Shaolin Chal- wTWjP' lenges Ninja) (1978) \ 4. Shaolin V. Lama (1983) 5. Drunken Master II (AKA Leg- end of Drunken Master) (1994) pf)9§ 6 Once Upon a Time igjijfcr- In China (1991) j&§|É| i Executioners From Shaolin (1977) 8. Master Killer (AKA Shaolin Master Killer, The 36th Cham- ber of Shaolin) (1978) ' Hero (2003) 10. Kung Fu Hustle (2005) í Disney-myndinni Aladdin, þegar Aladdin er að tala við Jasmín prinsessu áður en þau hefjast Á tímabili heyrðist setningin Let’s get outta here i 84 prósentum á loft á töfrateppinu, ræðst tígrisdýríð Rajah á kvikmynda sem voru 1 • hann. Aladdin segir kettinum að koma sér í burtu en segir svo Jasmín lágum rómi að afklæðast. framleiddar í Hollywood. j^|J itwood HVAÐ SÁSTU Gísli Örn sá flottasti „Ég fór aö sjá myndina Börn. Myndin þykir mér frábært framlag til ís- lenskrarkvikmynda- gerðar því hún ber boðskag, er fallega skrifuð, snertir mann og breytir lífi manns," segir Halla Vilhjálmsdóttir. „Það er það sem ég leita að þegar ég horfi á kvikmyndir, að þær snerti mig það mikið að þær hafi ákveðinn breyt- ingarmátt á líf mitt. Gisli Örn, Ólafur Darri og Nína sýna afburðaleik í mynd- inni. Ég tel Gísla Örn vera flottasta unga leikarann í dag. Hann tekur við þeim eldri svo sem Baltasar og Ingvari sem aðaltöffarinn,” segir Halla og bætir við. „Hann fær þetta einstaka tækifæri að leika tvö mismunandi hlutverk í myndinni og leysir það vel af hendi. Hann þurfti að breyta sér mikið til að takast á við hlutverkið og mér finnst alltaf gaman að horfa á leikara takast á við eitthvað sem reynist öðru fólki erfitt. Við getum kallaö það hetjuleik. Þetta framlag Vesturportshópsíns kom mér ekki á óvart, ég bjóst við miklu þegar ég fór á giyndina en fékk meira." Vel leikin og einlæg „Ég sá The Three Burials of Meiquia- des Estrada á kvikmyndahátíð í Regn- boganum," segir Krummi í Mínus. „Myndin er nútíma- vestri, leikstýrð af Tommy Lee Jones sem leikur einnig eitt aðalhlutverka. Aðrir sem leika í myndinni eru Barry Pepper og Dwight Yoakam. Mér fannst myndin vera einlæg og vel leikin. Djöf- ull töff músík prýðir myndina og sagan er bæði falleg og myrk um vináttu og hefnd í Mexíkó.” Mýrin góð og vel tekin „Ég fór á Mýrlna á sunnudag og fannst hún mjög góð. Þetta er góð, íslensk I spennumynd. Flott R mynd og vel tekin,“ £■S y,liM segir Björn Lárus H Arnórsson. „Ég las I bókina fyrir löngu | og hafði gaman af. r$i, Ingvar Sigurðsson og Björn Hlynur Haraldsson eru góðir í hlutverkum sínum sem Erlendur og aðstoðarmaður hans. Mér fannst skemmtilegt hvernig þeir tveir mætast og eru félagar. Nú- tímamaöurinn sem fær sér kaffi latte og Erlendur af gamla skólanum sem er sennilega meira fyrir sviðakjamma." Ragnar Hansson er leikstjóri sjónvarpsþátt- arins Sigtið sem er að hefja göngu sína á nýjan leik á Skjá einum í kvöld. Þættirnir hafa vakið mikla lukku og verður því spennandi að sjá hvernig Sigtið verður án þáttastjórnandans Frímanns Gunnarssonar en hann ku hafa glopraö sjónvarpsþætt- inum úr höndunum og þarf því að leita á önnur mið. Hvað hefur þú verið að horfa á undanfarið? „Ég hef að undanförnu verið að horfa mikið á nýja breska gamanþætti. Það er enda- laust úrval af skemmtilegum þáttum. Á BBC eða Channel 4 ertil dæmis sjálfstæð fram- leiðsla í gangi þannig að það eru margir sem fá tækifæri til þess að spreyta sig og hefur útkoman stundum orðið alveg frábær.” Er eitthvað sérstakt sem þú mælir með? „Ég var að uppgötva geggjaða breska gamanþætti sem heita Garth Marenghis Dark Place og þetta eru mestu snilldar- þættir sem ég hef séð í lengri tíma. Ég uppgötvaði þá á Netinu góða þegar ég var að leita að einhverjum leikurum. Þáttunum er leikstýrt af Richard Ayoade sem er alger snillingur. Hann leikur í öðrum þáttum sem mér finnst líka mjög skemmtilegir sem heita The IT Crowd og eru búnir að slá í gegn í Bretlandi og ég vona að þeir birtist i sjónvarpi allra landsmanna innan tíðar. Þættirnir Garth Marenghis Dark Place eru Mock Horror Sci-fi-þættir og fjalla um Garth Marenghi sem er hrollvekjuhöfundur eins og Steþhen King og allt gerist þetta á níunda áratugnum. Ef ég ætti að lýsa þessum þáttum nánar þá eru þetta Twil- ight Zone/Quantom Leap meets80s-löggu- þættir en þetta er alveg frábær blanda." Áttu þér uppáhaldskvikmynd? „Já, þær eru nokkrar og þeirra á meðal eru til dæmis Brazil og Raising Arizona en þær eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Svo eru auð- vitað margar góðar en þessar ber kannski helst að nefna.“ Eru sérstakar myndir sem þú horfir helst á? „Nei, ekki beint, en ég er kannski aðallega hrifinn af góðum myndum sem skemmta manni líka. Það er svo mikið til af gæða- myndum sem maður bíður alltaf eftir að séu búnar. En það er gaman að hafa gaman af myndum. Ég líka mjög hrifinn af sniðugum handritum og þess vegna horfi ég líka á myndir eins og Toy Story og Back to the Future af því að það eru svo sniðug handrit að þeim.“ Áttu þér uppáhaldsleikara? „Nei, ég held að ég eigi ekki uppáhaldsleik- ara, en ætli ég verði ekki bara að nefna Gunnar Hansson." Áttu þér uppáhaldsbók eða rithöfund? „Ég verð að viðurkenna að ég hef nú ekki lesið mikið upp á síðkastið, en þegar ég tek risþur þá er ég mikill Kurt Vonnegut- maður og ég fíla líka Paul Auster og Haruki Murakami." Hefurðu unnið við eitthvað sem þú skammast þín fyrir og vilt helst gleyma? „Já, ég hlýt nú að hafa gert það. Ég vann í eitt og hálft ár hjá Latabæ en ég veit nú ekki hvort ég skammast mín fyrir það, en þangað ætla ég samt aldrei aftur. Það er kannski það sem kemst næst því en er nú samt ekkert svo hræðilegt.” Er eitthvað sem þér finnst að mætti breyta i kvikmyndabransanum? „Það eina sem þyrfti kannski að breyta til þess að fá að sjá flelri góðar myndir væri að breyta áhorfendum. Það eru bara svo margir sem vilja heiladauðar myndir og ég hef svo sem alveg gaman af því líka. Á fs- landi væri ég til í meiri peninga en svo þarf kannski ekkert að breyta neinu ef maður er nógu sniðugur." Hvaða verkefni þykir þér vænst um? Það er þottþétt Sigtið. Ég er rosalega stoltur af nýju seríunni og finnst hún vera mikið skref fram á við. Ég vona bara að þeir sem fíluðu fyrri seríuna verði jafn ánægðirmeð þessa." Hver hefur mest áhrif á þig? „Ég held að það sé einn af mínum uppá- haldsleikstjórum en hann hefur gert um 50 myndir á aðeins 10 árum. Hann heitir Tak- ashi Miike og er japanskur. Myndirnar hans eru álíka misgóðar og þær eru margar en það er alltaf jafn gaman að fylgjast með honum. Það er bara svo margt sem ég er sammála honum um þó að ég sé ekkert endilega hrifinn af öllum myndunum hans. Hann hefur bara svo flotta sýn á kvik- myndir og það er það sem ég hrífst af.“ hilda@bladid.net Ragnar Hansson leik- stjóri Leikstýrir sjón- varpsþáttunum Sigtið sem honum þykirafar vænt um. Kvöldið er okkar Frábœr tónlistQrskemmtun í ^ SjQllonum 27. okt og 0. nóv. Matur, sýning, dansleikur og gisting '•'Sj*.* Sjá nánor á www.sjollinn.is Vi/ AKUREYRI Hafnarstræti 67 600 Akureyri Sími: 462 5600 |J www.hotelakurcyri.is , hotelakureyri(flhotelakurevri.is *Á monninn miðoð við tvo i herbergi Tokmorkoð moqn, qildir ekki með öðrum tilboðum Væntanlegt í bíó FEARLESS -Goðsögnin um Huo Yuanjia Kvikmyndin JET LI’S FEARLESS verður frumsýnd á morgun (27. október) í Smárabíói og Regnbog- anum. Jet Li segir FEARLESS vera sína síðustu bardagamynd og segir hana vera persónulega vegna þess að í henni komi fram sú heimspeki sem hann lifi og læri eftir. Fjallað er um ævi Huo Yuanjia sem stofnaði Jingwu-skólann, en Bruce Lee var meðlimur í honum í „Fist of Fury” (1972) og Li sjálfur í „Fist of Legend’’ (1994). Huo varð frægasti bardagamaður Kína og goðsögn hans lifir enn. Hann þurfti að horfast í augu við persónulegan harmleik, en braust út úr skammdeginu og á spjöld sögunnar. Með framgöngu sinni skilgreindi hann hinn sanna anda bardagalistarinnar sem afl til friðar og upplyftingar andans og varð þjóð sinni svo mikill inn- blástur að mihning hans lifir enn góðu lífi. Huo Yuanjia fæddist á milli 1867 og 1869 í þorpinu Xiaonan í Tianjin. Hann var fjórða barn for- eldra sinna af tíu. Faðir hans hafði afkomu af því að gæta vagna sem fóru um héraðið með verslunar- varning. Huo fæddist afar veik- burða sem gerði það að verkum að faðir hans ákvað að kenna honum ekki WUSHU, bardagalist. Þess í stað óskaði hann þess að sonur hans lærði á bók. Þetta varð honum ef til vill til mikillar blessunar enda varö Huo þekktur fyrir friðsemi sína og auðmýkt. Myndin hefur notið fádæma vinsælda í Asíu, ef til vill vegna goðsagnarinnar um Huo Yanjia, og slegið öll aðsóknarmet. Til að mynda hefur hún náð meiri vinsældum en stórmyndirnar „Crouching Tiger, Hidden Dragon”, „Hero” og „House of Flying Dag- aers”. I bardagaatriðum myndarinnar er lítið notast við tæknibrellur og raunverulegir bardagasnillingar sjást hvað eftir annað leika listir sínar án þess að reiða sig á net, víra og tölvubrellur. dista@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.