blaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
blaðiö
ÍRAK
Fjórði blóðugasti mánuðurinn frá innrás
Hundraö bandarískir hermenn hafa fallið í (rak í mánuðinum. Mann-
fall í röðum bandarískra hermanna hefur aðeins þrisvar sinnum verið
meira í einum mánuði frá upphafi innrásarinnar í mars árið 2003.
Mesta mannfallið var í nóvembermánuði árið 2004 en alls hafa
2.813 bandarískir hermenn fallið frá því að þeir réðust inn í landið.
UTAN ÚR HEIMI
óánægjuna
■ Meirihluti repúblikana í fulltrúadeild falli
■ Kosningaþátttaka mun ráöa úrslitum
Fátt virðist geta komið í veg fyrir
að demókratar bæti við sig töluverðu
fylgi á kostnað repúblikana í þing-
kosningunum í Bandaríkjunum eftir
viku. Flestar skoðanakannanir stað-
festa að meirihluti kjósenda styðji
demókrata og er það mat fróðra
manna að Repúblikanaflokkurinn
hafi ekki þurft að þola jafnmikla al-
mennaandstöðusíðanárið i974þegar
Watergate-hneyksliðskókbandarískt
stjórnmálalíf. Óvinsældir George
Bush á forsetastóli og Repúblikana-
flokksins eru slíkar að demókratar
vonast eftir að þær hafi sambærileg
áhrif á niðurstöðu kosninganna í
næstu viku og hneykslismálið sem
knúði Richard M. Nixon til afsagnar
á sínum tíma og að óvinsældir Iraks-
stríðsins meðal almennings kunni
að reynast sami örlagavaldur fyrir
repúblikana og Watergate-hneykslið
á áttunda áratug nýliðinnar aldar.
Til þess að endurheimta meiri-
hluta sinn þurfa demókratar að bæta
við sig fimmtán sætum í fulltrúa-
deildinni og sex í öldungadeild. Það
blasir við að demókratar muni bæta
við sig þingsætum og skoðanakann-
anir benda til þess að þeir uppskeri
traustan meirihluta i fulltrúadeild-
inni. Hinsvegar efast fleiri um að
valdataka þeirra í öldungadeild sé
innan seilingar þar sem einungis
er talið raunhæft að þeir bæti við
sig þremur sætum í henni og þar af
leiðandi munu repúblikanar njóta
naums meirihluta.
En þrátt fyrir að kannanir sýni
fram á vænlega stöðu demókrata
eru flestir sammála um að endanleg
niðurstaða muni ráðast af kosninga-
þátttöku. Undanfarin ár hefur kosn-
ingavél Repúblikanaflokksins reynst
þeim vel og hlutfall þeirra repúblik-
ana sem taka þátt í kosningum er
hærra en hjá demókrötum. Gagn-
Heilínn á bak við kosningaherferð
repúblikana Karl Rove, sérstakur
ráðgjafi George Bush forseta.
sókn repúblikana síðustu dagana
fyrir kosningarnar hefur falist í því
að blása nýju lífi í stuðning meðal
íhaldssömustu stuðningsmanna
hans með auglýsingaherferð sem
boðar áframhaldandi skattalækk-
anir og tryggingu þjóðaröryggis.
Einnig hafa þeir birt auglýsingar sem
bendla frambjóðendur demókrata
við skattahækkanir og útþenslu ríkis-
valdsins. Með þessu vill flokkurinn
koma í veg fyrir að þeir repúblikanar
sem geta hugsað sér að styðja demó-
krata vegna óánægju með ástand
mála í írak hugsi sig tvisvar um.
Lykillinn að góðu fylgi Repúblik-
anaflokksins í kosningum undan-
farin ár hefur meðal annars falist í
getu þeirra til þess að fá stuðnings-
menn sína til þess að mæta á kjör-
stað og á sama tíma hefur kosninga-
þátttaka meðal demókrata verið
minni. Ástæða þessa hefur m verið
rakin til þess að repúblikönum hefur
gengið mun betur að fylkja sínum
stuðningsmönnum um einstök mál
sem þeir hafa sett í öndvegi. Sökum
sundrungar innan raða demókrata
hefur þeim ekki tekist að leika þetta
eftir í undanförnum kosningum en
nú leggja þeir traust sitt á íraksmálið
og að óánægja meðal almennings sé
slík að hún skili sér í kjörkassann.
20% afsláttur
af öllum bætiefnum Heilsu
með gula miöanum
í október.
im
^OavO
^heilsa
[ýj heilsa
;:>Vhe!ls?
MGGA
BARNA VIT
UÐ-AKTIN
eXTRA
OME6A-3
iJOOmg
Npfheilsa
[J:,: ■ htfOu þ»6 ijotf
Hólagarði, Hverafold,
Hagkaupum Skeifunni og Akureyri.
Umdeildar hvalveiðar:
Lofað úttekt á
skaðseminni
Dagur B. Eggertsson, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar
í Reykjavík bendir á að ferða-
málaráði hafi verið lofað úttekt
á afleiðingum hvalveiða fyrir
ferðamannaiðnaðinn en að út-
tektin hafi ekki farið fram vegna
kostnaðar. Út frá því hafi mátt
gera ráð fyrir því að ekkert yrði
frekar aðhafst í undirbúningi
hvalveiða.
„Jafnmerkilegt er þó að engar
athuganir á áhrifum hvalveiða
fyrir ferðaþjónustu eða aðra
útflutningsatvinnuvegi virðast
hafa farið fram áður en til skara
var látið skríða,“ segir Dagur.
„Ákvörðunin getur skaðað mjög
ímynd íslands út á við.“
Demókratar í Bandaríkjunum:
Treysta á
Flex-T skrifstofuhúsgögn
á tilboðsverði!
FleK-T vinnustöð (180x200 cm)
Verð áður 71.369 kr.
Tiiboð 49.958 kr.
Flex-T skrifstofuhúsgögn fást í
ýmsum stærðum og útfærslum.
Þau eru hönnuð af Guðrúnu Margréti
Úlafsdóttur og Oddgeiri Þórðarsyni,
húsgagna- og innanhússarkitektum FHI.
Flex-T með rafmagnsstillingu (180x80 cm)
Verð áður 110.531 kr.
Tiiboð 88.425 kr.
JSSb
A.GUÐMUNDSSON
Bæjarlind 8-10 ■ Kópavogi ■ Sími 510 7300 • www.ag.is
r^rMwm
Kosningamálið íraskur
drengur fylgist með
bandarískum hermönn-
um við störf í Bagdad.
Hreint ehf. var stofnað árið 1983 og er eitt elsta
og stærsta ræstingarfyrirtæki landsins.
Hneint
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
Er HREINT hjá þínu fyrirtæki?
Hreint býður upp á ókeypis ráðgjöf