blaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006 blaðið HVAÐ MANSTU? 1. Hver sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið var um helgina? 2. Nýtt tímarit hefur litið dagsins Ijós á Islandi og það heitir Isafold og er ritstýrt af feðgum. Hvað heita þeir? 3. Hver skráði Tryggva sögu Ófeigssonar? 4. Hvaða hljómsveit sendi frá sér plötuna Umma Gumma? 5. Hvaða lið tryggði sér sigur í bandarísku hafnaboltadeildinni á dögunum með því að leggja Detroit Tigers að velli? * Lfl GENGI GJALDMIÐLA SVör: KAUP B Bandarikjadalur 68,19 —jg Sterlingspund 129,52 SS Dönskkróna 11,634 æ Norskkróna 10,425 SS! Sænskkróna 9,416 BS Evra 86,74 SALA 68,51 130,14 11,702 10,456 9,472 86,98 Argentínsk stjórnvöld: Kæra klerkastjórn Argentínsk stjórnvöld hafa lagt fram formlega ákæru gegn klerka- stjórninni í Teheran og skæruliða- samtökunum Hizballah vegna hryðjuverkaárásirnar á samkomu- hús gyðinga í Buenos Aires árið 1994. Argentínskir saksóknarar krefj- ast þess meðal annars að Hashemi Rafsanjani, þáverandi forseti í rans, verði handtekinn og framseldur en stjórnvöld í Teheran er sökuð um að hafa fyrirskipað vígamönnum Hizballah að gera árásina. Áttatíu og fimm manns létust í tilræðinu Hágæða LCD veggsjónvörp og þrjú hundruð manns særðust. Árásin er ein mannskæðasta að- gerð gegn gyðingum frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Niðurstöður úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins: l/VMMIMr. A D\/CDD 20" 32" 37" 42" Kr. 46.990,00 Kr. 89.990,00 Kr. 144.990,00 Kr.249.990,00 Öll verð mlðast við staðgreiðslu - Veggsfestingar innifaldar I verði - 2ja ára ábyrgð Hafið samband í síma 561 9200 SMÁAUGLÝSINGAR Endurnýjun en ekki kynslóðaskipti ■ Ekki hægt aö strika Björn út ■ Árangur Guðfinnu merkilegur Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Þetta er ákveðin endurnýjun á flokknum sem tengist ekki endilega kynslóðaskiptum,” segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla ís- lands, um niðurstöðu prófkjörs Sjálfstæðisflokksins. Gunnar bendir á að flokkurinn hafi fengið nýja forystu bæði í borg- arstjórn og ríkisstjórn. „Menn eru að færa sig eitthvað meira inn að miðju en áður var og það er greinilegur vilji til að endur- nýja andlit. Það er skynsamlegt hjá flokki sem er búinn að vera í stjórn frá 1991.” Um stöðu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, sem lenti í þriðja sæti í prófkjörinu, segir Gunnar að hún sé augljóslega veik- ari en áður. Um þriðjungur þeirra Vlljltll endurnýjunar Gunnar Helgi Krist- insson, prófessor í stjórnmálafræði sem þátt tóku í prófkjörinu vildi ekki að Björn tæki sæti á lista í al- þingiskosningunum í vor. „Hann tapaði náttúrlega. Hann mun aug- ljóslega ekki leiða lista í Reykjavík sem þýðir væntanlega að hann hefur veikara tilkall til ráðherra- stóls en ella. Björn náði heldur ekki fram í borginni. En það er samt ekki útilokað að hann fái ráðherra- dóm ef Sjálfstæðisflokkurinn á þátt í myndun ríkisstjórnar. Björn hefur mikla reynslu og hann hefur staðið sig vel í sumum ráðherra- embættum. Það er ekki hægt að strika hann út.” Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson lentu báðir tals- vert neðar en þeir stefndu að. „Síð- ast komust þeir inn á lista með öfl- ugu átaki ungliðahreyfingarinnar að ég held,” segir Gunnar. „Það er ekkert álíka á ferðinni núna sem skilar jafngóðum árangri. Vond út- koma þýðir væntanlega að fólk er ekki ánægt með störf þeirra.” Góður árangur Guðfinnu Bjarna- dóttur, rektors Háskóla Reykjavíkur, hefur vakið talsverða athygli. Að mati prófessorsins er þaé merki- legt í ljósi þess að hún er nýgengin í flokkinn. „Ég veit ekki fyrir hvað hún stendur út af fyrir sig. Ég geri ráð fyrir að nokkur atriði vinni með henni. Hún er í fyrsta lagi þekkt og með glæsilega framkomu. 1 öðru lagi er fyrir hendi ákveðinn vilji til að fá eitthvað ferskt inn í flokkinn og í þriðja lagi býst ég við að ein skýringanna sé sú að hún er kona.” Smurþjónusta Rafgeymar v Dekkjaþjónusta www.hasso.is Mundu cftir oð finnu besla verðið óður en þú knupir dekk! Car-rental / Bílaleiga , , , III i f •! WrvwaPjl , | , , , r. ,, , |, Vetrardekk - Heilsarsdekk - nagladekk - loftboludekk Betri verð! Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.