blaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 22
3 0 ÞRIÐJUDAGUR 31.OKTÓBER 2006
blaöið
HVAÐ FINNST ÞER?
Eru íslendingar að hlera
Norrænu ráðherranefndina?
folk@bladid.net
„Það er víða hlerað en okkar leynimakk nær ekki svo langt. Þetta framboð
var reyndar svo leynilegt að ég vissi ekkert af þessu."
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður
ogfulltnii í Norðurlandaráði.
Finnar hafa sakað íslendinga um leynimakk í tengslum
við framboð Halldórs Ásgrímssonar í framkvæmdastjóra-
stöðu Norrænu ráðherranefndarinnar.
HEYRST HEFUR...
SU DOKU talnaþraut
Þú hlýtur að hafa bleitt hana
Björn Bjarnason skrifar
um úrslit prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins á heimasíðu
sinni. Hann er
ánægður með
sitt þriðja sæti
þar sem árásir á
hann úr öllum
áttum hafi dunið
yfir meðan á
prófkjörsslagnum
stóð. Ekki er nóg með það að
Guðlaugur Þór hafi boðið sig
fram á móti honum heldur
nýttu andstæðingar flokksins
sér „átök innan flokksins” til að
gera atlögu að Birni sem leiddi
til fundar um öryggismál í Val-
höll með Geir Haarde. Susarar
sendu nokkrum dögum fyrir
fundinn frá sér „dæmalausa
ályktun, sem túlkuð var eins og
árás á mig á viðkvæmasta stigi
prófkjörsbaráttu”. Það er þvi
greinilegt að Björn getur prísað
sig sælan með þriðja sætið í
ljósi allara þessara árása en það
eru ekki allir á móti Birni og
Björn þakkar lögreglumönnum
sérstaldega fyrir stuðninginn í
þessu öllu saman.
Hvergerðingum brá mörgum
hverjum f brún er þeir
flettu Fréttablaðinu í gær en
þar kom fram að Helgi Valur,
þeirra ástkærri
trúbador, væri
Húsvíkingur.
Drengurinn ku
vera Hvergerð-
ingur í húð og
jm hárogeinnaf
þekktari íbúum
þessa litla huggulega bæjar sem
hingað til hefur verið þekktari
fyrir grænmeti og ís en tónlist-
armenn. Siminn hefur ekki
stoppað hjá Hvergerðingnum
unga síðan ósköpin birtust og
Hvergerðingar eru greinilega
miður sín vegna málsins. Ein
jákvæð rödd hefur þó heyrst
i þessu sambandi en hana á
frænka Helga sem er einmitt
Húsvíkingur og ánægð með að
drengurinn skuli vera kenndur
við hennar heimabæ.
12-18
Bókbindarinn dansandi
Ragnar Gylfi Einarsson bókbind-
ari segir að það séu tvær ástríður
sem eigi hug hans allan og þær eru
listbókband og þjóðdansar. Báðar
þesSar ástríður hafa verið hluti af
lífi Ragnars í meira en fjörutíu ár.
„Ég byrjaði að læra bókband 1964 og
það má segja að það sé ástríða mín
númer eitt og það eru forréttindi að
geta starfað við tómstundagamanið,
“ segir Ragnar sem segist njóta þess
alveg til hins ítrasta.
Ragnar vinnur fyrir hádegi hjá
OPM, en eftir hádegið fer hann á
Handbókbandsstofuna við Klappar-
stíg þar sem hann vinnur og segist
oft eyða þar kvöldum og helgum við
að binda inn bækur.
„Vélin hefur tekið við vinnu bók-
bindarans í mildum mæli en getur
samt ekki leyst handverkið af hólmi.
Það eru mörg handverk sem liggja að
baki einni handinnbundinni bók og
einu sinni heyrði ég að það tæki einn
mánuð að binda listilega inn eina
bók,” segir Ragnar sem er nýkominn
heim úr námsferð á Englandi. „Þar
var ég að læra að gylla í sniðum en
það er aðferð sem er til dæmis notuð
mikið þegar biblíur eru gylltar.”
Ragnar segir að efniviður bókar-
innar ráði oft hvernig bókin sem
hann er að binda inn kemur til með
. að líta út og hann fær hugmyndir
til dæmis um litaval eftir innihaldi
bókarinnar.
Þeir sem hafa áhuga á að læra
bókband geta lært það hjá Ragnari
en hann heldur námskeið í hand-
verkinu. „Nú er ég meðal annars að
kenna ungum grafískum hönnuðum
þetta gamla handverk og það er mjög
gaman. Þetta er hugmyndaríkt fólk
sem hefur áhuga á því að gera öðru-
vísi bækur og læra að binda þær
inn sjálft.“ Ragnar kennir líka nýút-
skrifuðum bókbindurum og hópur
þeirra hefur tekið þátt í alþjóðlegum
keppnum bæði í Frakklandi og á
Norðurlöndunum undir leiðsögn
Ragnars. „Nú erum við að undirbúa
okkur fyrir franska keppni á næsta
ári. Skipulagið er þannig að allir
binda inn sömu bókina sem að þessu
sinni er Ævintýri gæsamömmu
en engin bók er eins og allir hafa
frjálsar hendur í því hvernig bækur
þeir gera.”
Eins og fyrr segir á Ragnar sér
aðra ástríðu sem eru þjóðdansar en
Ragnar hefur dansað með Þjóðdan-
safélagi Reykjavíkur á hverju fimmtu-
dagskvöldi síðan 1966. Eiginkona
Ragnars, Guðlaug Friðriksdóttir,
tekur með honum sporið. Guðlaug
deilir ekki bara dansástríðunni með
Ragnari heldur stendur bókbandið
henni nærri þar sem hún er líka
lærður bókbindari. Um dansinn
segir Ragnar að þar sé alltaf nóg að
gera og mikið stuð. „Við höfum tekið
þátt í sýningum og dansað fyrir ferða-
menn, dansað á árshátíðum og farið
á mót erlendis með félaginu. Þetta er
rosalega gaman,” segir Ragnar bók-
bindari um ástríðurnar í lífi sínu.
loa@bladid.net
eftir Jim Unger
O Jim Unger/dlst. by Uniled Media, 2001
Ragnar Gylfi Einarsson á sér tvær
ástríður sem eru bókband og þjóð-
dansar Eiginkona Ragnars, Guðlaug,
deilir með honum ástríðunum en auk
þess að vera dansfélagi Ragnars er
hún Ifka bókbindari. Biotiimki
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
löðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers niu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
9 3 1 7 5
5 6
2 4 1 9
7 8 1
9
3 5 8
8 6 7
5 2 4
3 9 2 5 4
1 2 6 3 7 8 4 5 9
3 4 9 6 5 1 7 8 2
5 7 8 9 2 4 1 3 6
8 1 2 5 4 7 9 6 3
6 9 4 8 1 3 2 7 5
7 3 5 2 9 6 8 1 4
4 5 7 1 6 9 3 2 8
2 8 1 4 3 5 6 9 7
9 6 3 7 8 2 5 4 1
■ Ástriðan min
A förnum vegi
Hefurðu smakkað
hvalkjöt?
Hannes Víglundsson, löndunar-
maður og Alexandra
Já, ég hef smakkað hrefnukjöt
og mér fannst það alveg æðis-
legt.
Hallgrímur Ólafsson,
leiklistarnemi
Já, hrefnukjöt og mér fannst það
ekki gott.
Elfa Björk Gunnarsdóttir,
sjálfstætt starfandl
Já, þegar ég var barn og mér
fannst það ekki gott. Ég er á
móti hvalveiðum.
Berglind Ingibertsdóttir,
ríkisstarfsmaður
Já, ég smakkaði hrefnukjöt og
mér fannst það nokkuð gómsætt.
Elín Jónsdóttir, starfsmaður í
skartgripabúð
Já, ég smakkaði hrefnukjöt og
fannst það mjög gott.