blaðið - 31.10.2006, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
blaAiö
Biðst afsökunar á falli óbreyttra
James Jones, hershöfðingi og yfirmaður herafla NATO í Afgan-
istan, hefur beðist afsökunar á falli óbreyttra borgara í árás her-
aflans á þriðjudag. Hinsvegar segir hershöfðinginn sökina liggja
hjá talibönum sem fela sig á meðal óbreyttra borgara. NATO
hefur staðfest að tólf óbreyttir borgarar hafi fallið i árásinni.
SBS&^
Felldu 80 AI-Kaída-liða
Pakistanskar hersveitir segjast hafa fellt áttatíu Al-Ka-
ída-liða í árás á trúarskóla við afgönsku landamærin.
Yfirmenn hersins segja að húsnæði skólans hafi í raun
verið notað til þess að þjálfa hryðjuverkamenn sem
berjast með talibönum í suðurhluta Afganistans.
Starfsleyfi afturkallað
Flugmálayfirvöld í Nígeríu hafa afturkallað
starfsleyfi flugfélagsins ADCI kjölfar þess að
ein véla þess brotlenti á sunnudag. Tæplega
hundrað manns létu lífið. Níu lifðu af. Ráðherra
I landinu segir að flugstjórann bera ábyrgð.
Fölsuð snyrtivöruauglýsing:
Sparisjóður Hafnarfjarðar:
Ekki tókst að
birta ákæruna
Ekki tókst að birta Páli Páls-
syni, fyrrum stjórnarformanni
Sparisjóðs Haínarfjarðar, stefnu f
Héraðsdómi Reykjaness á fbstudag.
Fjármálaeftirlitið höfðaði mál
gegn Páli. Hann varð stjórnarfor-
maður þegar hans fylking náði
meirihluta í stjórn Sparisjóðs
Hafnarfjarðar á mjög umdeildum
stofnfjáreigendafundi í spari-
sjóðnum f janúar á sfðasta ári.
Fjármálaeftirlitið tilkynnti emb-
ætti ríkislögreglustjóra um grun
sinn um að lög hefðu verið brotin.
Meðal annars lék grunur á um að
virkur eignarhlutur hefði orðið til
og að upplýsingunum hefði verið
leynt fyrir Fjármálaeftirlitinu.
Ekki tókst að fá uppgefið
hvers eðlis stefnan er né náðist
í Fjármálaeftirlitið. Samkvæmt
heimildum mun Páll vera bú-
settur f Danmörku og þvf tókst
ekki að birta honum stefnuna.
Bandarísk fyrirsæta sögð
sænsk kennslukona
■ Kennslukonan hvergi á skrá ■ Myndin úr bandarískum myndabanka
„Húðin mín varð sléttari á 45
mínútum,” sagði kennslukonan
Ewa Johansson, 59 ára, í texta með
auglýsingu á hrukkukreminu Der-
myn. Blaðamenn sænska blaðsins
Expressen komust að því að konan á
myndinni sem fylgdi auglýsingunni
var fyrirsæta og var myndin fengin
úr bandarískum myndabanka.
í auglýsingunni segir að Ewa
hafi verið óánægð með pokana
undir augunum og hrukkurnar við
munnvildn. Ekkert hafi gagnað
fyrr en hún fór að nota fyrrgreint
krem. Vitnað er í eiginmann Ewu,
sem sagður er heita Bertil, og hann
sagður ánægður með útlit hennar.
Blaðamenn Expressen leituðu ár-
angurslaust að þessum hjónum í
Stokkhólmi.
Ingólfur Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands fslenskra
auglýsingastofa, kveðst telja að
markaðurinn hér sé of þróaður til
að menn fari að gera svona auglýs-
ingar. „En það kæmi mér ekki á
óvart þótt hægt væri að fletta ofan
i.wmm'.fT
"Mellanstadieláraren Ewa”
ár amerikansk fotomodell
'Min hud blev alklua pk 48
Ansiktslyft redan
efter 45 minuter”
unum er því einnig haldið fram að
árangur verði sjáanlegur eftir fyrsta
skipti. I auglýsingunni segir meðal
annars að hangandi augnalok lyftist
og verði stinn, varirnar verði fyllri
og nái aftur stæltu formi sínu og út-
litið yngist almennt upp.
MJÓLKURVÖRUR
I SÉRFLOKKI
w
VÖRUR ÉB m
FLOKKI
Falsaða auglýsingin Kennslunkon-
an var hvergi á skrá
Er mikið ála
í skólanum?
?
af fleiru slíku erlendis. Hér á landi
hafa menn hins vegar af og til rök-
rætt hvort verið sé að herma eftir
öðrum að einhverju leyti.”
Kremið er auglýst á íslenskum
markaði og í fslensku auglýsing-
álagningu
LCC+ erfyrirbyggjandi vörn!
Streita og kvíði, skyndibitafæði, sætindi,
stopular máltíðir - allt þetta dregur úr
innri styrk og einbeitingu, veldur
þróttleysi og getur raskað bæði
ónæmiskerfinu og meltingunni.
LGC+ er sérstaklega þróað til að
vinna gegn þessum neikvæðu
áhrifum og dagleg neysla
þess tryggir fulla virkni.
Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2006 er lokið á alla
lögaðila sem skattskyldif eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 sem og
þeirra sem lagt er á í samræmi við VIII. - XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt
er lokið álagningu á lögaðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum
samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna.
Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum
skattumdæmum í dag þriðjudaginn 31. október 2006. Skrárnar liggja frammi
til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra
eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju sveitarfélagi dagana 31. október
til 14. nóvember n.k. að báðum dögum meðtöldum.
Skattseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2006 samkvæmt ofangreindu
skulu hafa borist skattstjóra eigi síðar en fimmtudaginn 30. nóvember 2006.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæöi 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003,
um tekjuskatt.
31. október 2006.
Skattstjórinn í Fteykjavík, Gestur Steinþórsson
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson
Skattstjórinn f Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson
Eftirlit erfitt Skráningum hjá Vinnumálastofnun um erlenda starfsmenn hefur
fjölgaö en stofnunin hefur mikiö á sinni könnu. Forstjórinn segir lykilatriöi aö
tryggja yfirsýn yfir fjölda útlendinga hér á landi.
Eftirlit meö erlendu vinnuafli:
Rétt náum að
halda í horfinu
„Mér hefur sjaldan liðið betur,“
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, um það
hvernig gangi hjá stofnuninni að
halda utan um flæði útlendinga
hingað til lands. Mikið álag hefur
verið á stofnuninni vegna gríðar-
legrar aukingar erlends vinnuafls
til landsins eftir að málaflokkurinn
var settur undir hana. Gissur segir
stofnunina hafa haft nóg að gera
fyrir og í dag nái hún rétt að halda
í horfinu. Hann segir ljóst að huga
þurfi betur að þessum málum því
að yfirsýn skorti enda séu hugsan-
lega þúsundir erlendra verkamanna
hér við störf án þess að vera löglega
skráðir.
„Við erum stöðugt að ýta á eftir
Höfum ekkl
bolmagn tll að
fylgjastmeð
Gissur Pétursson
forstjðri
Vinnumálastofnunar
upplýsingum um umsóknir hjá
Þjóðskrá eftir kennitölum fyrir út-
lendinga. Eftir því sem umsóknum
hefur fjölgað hjá þeim höfum við
ekki alltaf bolmagn til að fylgjast
fyllilega með,“ segir Gissur. „Menn
gerðu sér ekki grein fyrir þvi hversu
mikið flæði útlendinga yrði. Lyk-
ilatriði er að ná að tryggja yfirsýn
og það næst líklega best með því að
koma ferlinu undir sama hattinn.“