blaðið - 31.10.2006, Side 25
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006 33
Til dýrðar Kópavogi
„Þema kvöldsins er Kópavogur en
það þýðir að öll lögin tengjast Kópa-
vogi á einhvern hátt,“ segir Erla
Alexandersdóttir, varaformaður
Samkórs Kópavogs. Kórinn heldur
upp á 40 ára afmæli sitt með þrenn-
um tónleikum í Salnum 1., 2. og 5.
nóvember. „Á efnisskrá eru meðal
annars lög eftir Fjölni Stefánsson,
Sigfús Halldórsson og Þorkel Sigur-
björnsson en þeir hafa allir starfað
og búið í Kópavogi. Einnig verða
flutt vinsæl lög Ríó-tríósins,“ segir
Erla.
„Einsöngvarar eru Guðrún Gunn-
arsdóttir og Bergþór Pálsson. Píanó-
leikari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir
en auk hennar leikur þriggja manna
hljómsveit með kórnum. Stjórnandi
er Björn Thorarensen. Þetta verður
því sannkölluð tónlistarhátíð og ég
á ekki von á að nokkrum manni
muni leiðast,“ segir Erla.
„Kórinn átti afmæli 18. október en
það voru þeir Jan Mórávek, Valur
Fannar, Garðar Sigfússon og Skafti
Ólafsson sem stofnuðu kórinn. Þeir
mæta á svæðið og svo munu 40 stofn-
félagar af fyrstu æfingunni koma og
vera með okkur,“ segir Erla.
Miðaverð á tónleikana er 2000
krónur og verða þeir miðviku-
daginn 1. nóvember klukkan 20,
fimmtudaginn 2. einnig klukkan
20 og sunnudaginn 5. nóvember
klukkan 16. Miðasala fer fram á
www.salurinn.is en einnig er hægt
að kaupa miða í Salnum alla virka
daga klukkan 10.00 - 16.00 og
klukkustund fyrir tónleika.
kristin@bladid. net
jur fiskur í sjc
í hádeginu í dag verður boðið
upp á leiðsögn um sjávarhætti
á grunnsýningu Þjóðminjasafns-
ins og mun Ágúst Georgsson
þjóðháttafræðingur leiða gesti
um sýninguna.
Erindi Ágústs hefst í fyrirlestra-
sal Þjóðminjasafnsins og að
því loknu gefst gestum kostur
á að sjá umrædda muni með
eigin augum. Fagrirfiskar í sjó
voru lengi eitt helsta lifibrauð ís-
lendinga og grundvöllur annars
aðalatvinnuvegs þjóðarinnar.
Á grunnsýningu Þjóðminjasafns
Islands, Þjóð verðurtil, eru
, ýmsir forvitnilegir gripir sem
fLIfe.. tengjast sjávarháttum,
ekki síst veiðum
á fiski, hákarli,
hval og sel.
Ágúst
Georgs-
son var
lengi forstöðumaður Sjóminja-
safns Islands sem áður var ein
af deildum Þjóðminjasafnsins.
Hann er afar fróður um allt sem
varðar sjávarhætti fyrri alda og
mun vafalaust ausa úr sínum
viskubrunni næstkomandi
þriðjudag. I hljóðstöð á 3. hæð
grunnsýningarinnar næst jafnvel
símasamband við sjómann
nokkurn á 19. öld sem þessi
sérfræðingur átti þátt í að skapa
ásamt öðrum. Þetta er fjórði
fyrirlesturinn eða leiðsögnin í
röð sérfræðileiðsagna Þjóð-
minjasafnsins sem boðið er upp
á í vetur. Nýmælið hefur hlotið
góðar undirtektir og hafa leið-
sagnirnar verið fjölsóttar.
Færeyskur hval-
veiðikrimmi
Bókaútgáfan Grámann sendir
frá sér færeysku sakamálasög-
una Krossmessu eftir metsölu-
höfundinn Jógvan Isaksen. I
Krossmessu segir frá því að
færeyski blaðamað-
urinn og snuðrarinn
Hannis Martinsson,
sem fluttur er aftur
heim eftir langa
dvöl í útlöndum,
tekur að sér að
rannsaka lát
tveggja ungra
breskra umhverfis-
verndarsinna. Ungmennin fund-
ust myrt á hinn hroðalegasta
hátt innan um dauða grindhvali
í Þórshöfn, skömmu eftir að
stór hvalavaða hafði verið rekin
þar á land og drepin. Voru hér
að verki reiðir heimamenn, and-
vígir afskiptasemi útlendinga af
fornum hefðum Færeyinga, eða
býr eitthvað annað og meira
að baki? Krossmessa var mest
selda bókin í Færeyjum fyrir jólin
2005.
yjiaveir-jliui
Gleraugu frá
Frumkvöðull að lœkkun
gleraugnaverðs
Á ÍSLANDI
www. 3j on orh oTh p
Ljósmynd
Glerau
SJONARHOLL
Þar sem gœðagleraugu kosta minna
áfnarfirði
Umgjörö + plastgler meö Súperglampavörn Sph. +/- 4.0 Cyl 2.0