blaðið - 31.10.2006, Síða 26
3 4 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
blaðiA
Mýtt frá Jóel
Út er komin ný geislaplata Jóels Pálssonar sem ber titilinn Varp. Á plötunni er ný tón-
list eftir Jóel þar sem blandast saman ýmis áhrif úr rokki, djassi, rafpoppi, kirkjumúsík
og frjálsum spuna. Verkin spanna allt frá brothættum ballöðum til aggressífra ópusa
með sterkri undiröldu kosmísks kraftrokks. Flytjendur á Varpi eru auk Jóels Davíð Þór
Jónsson, Hilmar Jensson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Matthías Hemstock.
Samkepðni í leikritun
Um þessar mundir stendur yfir á Leiklistarvefnum samkeppni í ritun stuttra
leikjóátta. Fimmtán þættir eru í boði og eru það lesendur sem velja þá bestu
í atkvæðagreiöslu á vefnum. Peningaverðlaun eru í boði fyrir höfunda þeirra
þátta sem lenda i þremur efstu sætunum. Nánari upplýsingar má finna á
www.leiklist.is
mennin
Andleg næring frá
Japan og Rúmeníu
Fyrirlestur í
Háskóla íslands
Á morgun heldur Ásdís María
Elfarsdóttir erindi á vegum
mannfræði-/þjóðfræðiskorar
Háskólans og Mannfræðistofn-
unar Háskóla (slands. Fyrirlestur-
inn nefnist Hér lifi ég eðlilegu lífi:
Pólskir innflytjendur á íslandi
og þar styðst Ásdís María
við efni sem hún safnaði fyrir
MA-rannsókn sína í mannfræði
um innflytjendur frá Póllandi en
hún lauk prófi sínu fyrir nokkru.
Fyrirlesturinn er í stofu 201 í
Ámagarði og hefst klukkan
12:15. Allir velkomnir.
Skáldaspíru-
kvöld í Iðu
Sjötugasta skáldasþírukvöldið
verður haldið í bókarými verslun-
arinnar Iðu klukkan 20 í kvöld.
Skáld kvöldsins að þessu sinni
er Pjetur Hafstein Lárusson.
Hann les bæði Ijóð og sögur,
meðal annars úr nýrri Ijóðabók
sinni, Vökuborg og draums,
sem nýlega kom út hjá Sölkufor-
lagi. Skiþuleggjandi kvöldsins
er Benedikt S. Lafleur og er að-
gangur ókeypis svo lengi sem
húsrúm leyfir.
átt er kærkomnara í
amstri hversdagsins en
að setjast niður eina ljúfa
hádegisstund og hlýða á
góða tónlist. í Norræna
húsinu í vetur gefst gestum og gang-
andi kostur á að sækja tónleika þar
sem ýmsir listamenn stíga á stokk.
Á morgun mun Kolbeinn Bjarna-
son flautuleikari flytja fjölbreytta
efnisskrá þar sem meðal annars er
að finna verkið Japanskur garður
fyrir bassaflautu og rafhljóð sem
rúmenska tónskáldið Doina Rotaru
samdi sérstaklega fyrir Kolbein og
fór frumflutningur fram á sumar-
tónleikum í Skálholti í sumar sem
leið. Þá flytur Kolbeinn umskrift
Atla Heimis Sveinssonar tónskálds,
fyrir altflautu, á Prelúdíu í fís-
moll eftir Johann Sebastian Bach
auk tveggja verka eftir japanska
tónskáldið Toshio Hosokawa. „Ég
hef verið heillaður af Japan síðan
ég heyrði fyrst í shakuhachi sem
er japönsk bambusflauta,“ segir
Kolþeinn. „Á sínum tíma lærði ég
að leika á þessa flautu úti í Banda-
ríkjunum og starfaði einnig með
shakuhachi-leikara út í Japan. Þetta
er ein einfaldasta gerð af flautu sem
fyrirfinnst en um leið sú fullkomn-
asta. Hún er frekar erfitt hljófæri
og krefst mikil lofts. Þetta er hins-
vegar eitt af þeim hljóðfærum sem
maður þarf bara að heyra einn eða
tvo tóna frá og þá fellur maður al-
veg í stafi.“ Kolbeinn mun þó ekki
bara handleika shakuhachi á tón-
leikunum heldur mun hann leika á
allar gerðir vestrænna flautna, pikk-
ólóflautu, venjulega þverflautu, alt-
flautu og bassaflautu. „Ég ætla að
hefja tónleikana með hina hefð-
bundu þverflautu, færa mig svo allt-
af neðar og neðar og enda í dýpsta
myrkri, bassanum, þar sem mesta
birtan er í raun og veru, en það er
rúmenska verkið Japanskur garð-
ur. Þó verkið sé skrifað fyrir svona
djúpt hljóðfæri þá er samt mjög
bjart yfir því.“
Kolbeinn segist kunna því vel
að spila í Norræna húsinu, þar sé
nálægðin við áhorfendur mikil
og stemningin sem skapist sé oft
notaleg. „Mér finnst sérstaklega
skemmtilegt að spila á svona hádeg-
istónleikum og reyna að senda fólk
endurnært aftur út í daginn.“
Spennandi verður að sjá hvernig
Bach tekur sig út í þessu fjölþjóðlega
umhverfi í hópi þessara nýlegu verka.
„Við fyrstu sýn kann það að virðast
fáránlegt að taka Bach með og leika
hann á altflautu. En ég ákvað bara
að láta alþjóðavæðinguna ná þarna
250 ár aftur í tímann,“ segir Kol-
beinn sem mun standa einn á svið-
inu á morgun. Hann segist kunna
því vel að koma fram einn síns liðs.
„Það er ákveðið frelsi fólgið í því að
koma fram einn og vera engum háð-
ur.“ Tónleikarnir hefjast á morgun
klukkan 12:30 og eru allir velkomnir
svo lengi sem húsrúm leyfir.
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
Stepp ehf. | Árrriula 32 | Sírní 533 5060 | www.stepp.is | stepp@stepp.is
Afmæli og ósnert-
ar kvikmyndir
„Ég var mjög upptekin um síðustu
helgi og náði ekki að njóta eins mik-
illar menningar og ég hafði ætlað
mér,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir
alþingismaður. „Ég ætlaði meðal
annars að horfa á fjórar kvikmynd-
ir en náði nú ekki einu sinni að líta
á eina af þeim.“ Á laugardaginn tók
Kolbrún þátt í Grænni smiðju VG
um loftslagsbreytingar sem hún
segir hafa verið fjölsótta og áhuga-
verða í alla staði. „Um kvöldið fór
ég svo í glæsilegt fimmtugsafmæli
hjá góðum vini mínum. Það vill
svo skemmtilega til að hann er
listamaður og hélt afmælið á vinnu-
stofu sinni. Þar var því mikið af
menningarsinnuðu fólki saman-
komið. Svo fór allur sunnudag-
urinn hjá mér í haustþing
Framtíðarlandsins,“ segir
Kolbrún og bætir við að
þar hafi komið fram fjöld-
inn allur af áhugaverðum
og skapandi hugmynd-
um um annarskonar at-
vinnustefnu en þá sem
íslensk stjórnvöld reka.
Kolbrún er leikhús-
menntuð og reynir
að fylgjast sem best
með því sem gerist í
þeim geira. „Eg fór á
frumsýninguna á Ama-
deus um þarsíðustu
helgi. Ég var nú ekki
alveg nógu ánægð og
þar var margt sem ég
hefði gert öðruvísi. Ég fór líka að
sjá sýningu íslenska dansflokksins,
Við erum komin, fyrir stuttu og svo
ætla ég alls ekki að missa af sýningu
Þjóðleikhússins,
Stórfengleg,
með Olafíu
Hrönn í
aðalhlut-
verki og
v 0 n a s t
til að sjá
hana áður
en langt
um líður.“