blaðið


blaðið - 31.10.2006, Qupperneq 28

blaðið - 31.10.2006, Qupperneq 28
Sími: 553-9595 www.gahusgogn.is Ármúla 19 menntun@bladid.net TZíltwuzn&œtlunicui SnUéLjuveQl 46 £ 0 'fcí/íavoqi VEGNA GÓÐRAR SÖLU, HÖFUM VIÐ PLÁSS FYRIR NOKKRA NÝLEGA BÍLA A SVÆÐIOG (SAL ufflT V* ■ Stefna í menntamálum Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri námskrárdeildar menntamálaráðuneytis- ins, heldur málstofu undir yfirskriftinni Stefnan í menntamálum: Leik-, grunn- og framhaldsskólastig í stofu 201 í Odda í Háskóla Islands á morgun klukkan 12:20. Þar verður greint frá stefnumörkun menntamála- ráðuneytisins, breytingum á lögum, námskrám og fleiru. menntun Bílar á staðnum sem Bílamarkaðurinn mælir með!!! G0TTVERÐ FiNNBilL ''ÍiiLZí Fallegur jeppi StíÓÐURJEPPI a/'WA/V Goltlan Gott verð tíoniÁN G0TTLÁN LlTIÐ EKINN G0TTVERÐ G0TTVERÐ NÝR HÚSBÍLL Litiö ekinn 51ík Topp eintak Fallegur Bílt GOTTEINTAK Snyrtilegur Bill Fallegur jeppi Frekari uppl. og myndir um bílana veita sölumenn Bílamarkaðsins í S: 567-1800 eða á bilamarkadurinn.is M.BENZ ML 350 Árg.03 Ek.72 þ.km Leður, CD,ESP/ASR O.fl. V.3500,- Lán 2.400,- V0LV0 V 70 CR0SS C0UNRTY 7 MANNA Árg.01 Ek.70 Þm. Vel búinn. V.2300,- AUDIA 3 ATTRACTION10/00 Ek.91.þ. 5 gfra Tilboð Lán + 200,- T0Y0TAYARISTERRA 1,0 09/05 Ek. 6þ.km V.1390,- Lán 650,- S/V.Dekk 'wsiák SUBARU Árg.03 Ek.82Þ.km V Rannsóknasetur í fötlunar- fræðum heldur málþingið Raddir fatlaðra barna í sal 132 í öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla ís- lands, 3. nóvember klukkan 14-17. Málþingið er öllum opið og án endurgjalds. Þar verða kynntar nýjar rannsóknir sem fjalla um líf og reynslu fatlaðra barna og ungmenna. Aðalfyrirlesari er dr. Kirstin Stalker, dósent við Uni- versity of Strathclyde í Skotlandi, sem hefur langa reynslu af rann- sóknum með fötluðum börnum. í erindi sínu gefur Stalker yfirlit yfir niðurstöður alþjóðlegra rann- sókna sem hafa beinst að reynslu og sjónarhorni barnanna sjálfra. Þá mun Rannveig Traustadóttir, prófessor við Háskóla íslands, kynna nýja íslenska rannsókn sem ber heitið Börn, ungmenni og fötlun. Valgerður Stefánsdóttir, forstöðumaður Samskiptamið- stöðvar heyrnarlausra og heyrn- arskertra, segir frá rannsókn um reynslu barna sem tala táknmál og Snæfríður Þóra Egilson, dó- sent við Háskólann á Akureyri, fjallar um rannsókn með hreyfi- hömluðum börnum og hvað þau segja um skólagöngu sína. Vannýttir doktorar Nýta má betur þann auð sem felst í doktorsmenntuðum íslend- ingum erlendis samkvæmt nýrri rannsókn sem Rannís lét gera á högum þeirra Rannsókn a högum íslenskra doktora erlendis Vannýttur mannauður Styrkja má til muna fagleg tengslíslenskrafræðimanna á erlendri grundu við vís- indasamfélagið á íslandi samkvæmt niðurstöðu rannsóknar á högum íslenskra doktora erlendis. Páll Rafnar Þorsteinsson, doktors- nemi í heimspeki, gerði rannsóknina sem byggð er á viðtölum hans við tíu íslenska doktora af ólíkum fræðasvið- um sem vinna erlendis. Rannsóknin er liður í stærri rannsókn á högum ís- lenskra doktora sem Rannsóknamið- stöð íslands (Rannís) stendur að. Ýmsar hindranir í veginum Margir doktoranna sem rætt var við hafa áhuga á að auka samband- ið við íslenska vísindasamfélagið en telja sig mæta margvíslegum hindr- unum í því sambandi svo sem skorti á krefjandi atvinnutækifærum og svigrúmi og aðstöðu til metnaðar- fullra rannsóknastarfa. „Niðurstöður eru þær að íslenskt samfélag geti í ríkari mæli virkjað þann mannauð sem býr í doktors- menntuðum íslendingum, landi og þjóð til hagsældar, bæði með því að styrkja og nýta betur tengsl við þá sem starfa við erlendar stofnanir," segir Páll í skýrslunni. Asdís Jónsdóttir, verkefnastjóri rannsóknarinnar, segir að þátttak- endur hafi sterkar taugar til Islands en þær séu fyrst og fremst samfé- lagslegar og tilfinningalegar en ekki fræðilegar. „Það er heilmikið svigrúm til að nýta betur fræðileg tengsl við þetta fólk sem margt er að vinna við fræga og góða háskóla og stofnanir í útlönd- um. Það vill gjarnan leggja eitthvað til en hefur lítið svigrúm til þess. Þetta er ekki endilega spurning um að fá alla íslendinga sem vinna úti heim heldur að virkja betur þessi tengsl,“ segir Ásdís og bætir við að það megi til dæmis gera með því að stofna sér- staka tengslaskrifstofu, bjóða upp á gestastöður við háskóla hér á landi og svo framvegis. Ahugaleysi atvinnulrfsins Doktorunum finnst að íslenskir há- skólar bjóði hvorki upp á sambærileg kjör né aðstöðu og háskólar erlendis. „Margir telja að kennsluskyldan sé of rík við háskólana hér. Þetta fólk vill hafa meira svigrúm til að vinna að rannsóknum og öflugt stoðkerfi á borð við gott háskólabókasafn," segir Ásdís. I niðurstöðum rannsóknarinnar kemur einnig ffam að þátttakendur telja atvinnulífið ekki sýna áhuga á að ráða til sín starfsfólk með doktors- menntun. Ásdís segir að þær niður- stöður séu í takt við aðra rannsókn sem gerð var í sumar þar sem rætt var við fulltrúa nýsköpunarfyrirtækja. Ásdís telur mikilvægt að nýta dokt- orsmenntaða íslending betur. „Ef við ætlum að stefna að því að halda áfram að vera vel menntuð og upplýst þjóð og framarlega í nýsköpun, rann- sóknum og þróun þá er þetta mjög mikilvægur hópur fyrir okkur því að þetta er náttúrlega fólkið með mestu menntunina sem dregur vagninn í þekkingarsamfélaginu. Ég held að það skipti miklu máli að gefa þessu fólki gaum og spyrja okkur hvort það sé nægt svigrúm til að það geti lagt það sem það vill gjarnan leggja til ís- lensks samfélags og hvort við séum að nýta þann mannauð nógu vel.“ Fleiri í heilsdagsvist Níu af hverjum tíu leikskólabörnum dvöldu sjö tíma eða lengur í leikskólanum á síðasta ári. Fyrir áratug dvöldu um fjörutíu prósent barna allan daginn í leikskóla og hefur hlutfallið bví hækkað mjög á undanförnum árum. Þetta kemur fram í árs- skýrslu menntasviðs Reykjavíkurborgar fyrir árið 2005. Reiknuðu út ferðir víkinaanna Varmárskóli hlaut í haust sér- staka viðurkenningu fyrir afburða eTwinning-verkefni en eTwinn- ing er hluti af eLearning-áætlun Evrópusambandsins. Verkefninu er ætlað að styrkja almennt skóla- starf í Evrópu með nýtingu tölvu- tækninnar og gefa ungu fólki á aldrinum 6 - 20 ára aukin tæki- færi til náms. Verkefnið heitir Fornar rætur Evrópu og var unnið af nemendum sem voru í áttunda bekk Varmár- skóla síðastliðið vor í samstarfi við nemendur á Spáni og í Póllandi. Stærðfræðin tengd raunveruleikanum Guðlaug Ósk Gunnarsdóttir stærðfræðikennari sem hafði umsjón með verkefninu segir að það hafi meðal annars falist í því að nemendur báru saman sögu landanna og unnu verkefni sem tengdust henni. „Við reiknuðum til dæmis út vegalengdir siglinga- leiða víkinganna og siglingaleiða í dag. Hópurinn minn athugaði Nám og net Guðlaug Ósk Gunnarsdóttir og nemendur hennar í Varmár- skóla hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir samevrópskt netverkefni sem bau unnu síðastliðið VOr. Mynd/Eyþór einnig hversu margir Spánverjar og Pólverjar voru á Islandi, aldurs- bil þeirra og svo framvegis.“ Mikill áhugi erlendis 1 kjölfar viðurkenningarinnar hefur Guðlaug ekki undan að svara tilboðum frá kennurum í Evrópu sem vilja vinna með henni. „Mér fannst þetta vera til marks um að ég væri á réttri braut og að það sé eitthvað varið í það sem ég er að gera. Þetta er ekki síður ákveðin viðurkenning fyrir krakkana. Þeir átta sig á því að þeir eru að vinna góð verkefni á alþjóðagrundvelli. 31. OKTÓBER 2006 Raddir fatlaðra barna blaðið SÉRSMÍÐAÐIR SÓFAR Eftir ÞÍNUM MÁLUM Reynsla fatlaðra barna Fjallað verður um líf og reynslu fatlaðra barna á málbingi Rann- sóknaseturs í fötlunarfræðum á föstudag.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.