blaðið - 31.10.2006, Page 34
42 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
blaöiö
Tíðatappar sem ilma eins og rósir
Tampax hefur sett á markað tíðatappa sem ilma eins og rósir. Tíðatapparnir
eru seldir í skrautlegum pakkningum og minna þær frekar á umbúðir utan um
sælgæti en tíðatappa. Margar konur hafa mótmælt markaðssetningu tíðatapp-
anna, finnst hún bera keim af kvenfyrirlitningu og vilja fræða ungar konur um að
blæðingar séu eðlilegt ástand sem ekki þurfi að skammast sín fyrir eða fela.
Kate Moss fyrir TopShop
Kate Moss hefur hannað fatalínu fyrir TopShop og verður hægt
að festa kaup á fatnaði úr línunni strax næsta vor. Kate Moss er
þekkt fyrir að vera ávallt feti framar í tískunni, rokkuð og djörf í
klæðaburði og mikil tískufyrirmynd ungra kvenna. Fatalínan mun
bera hið frumlega heiti: Kate Moss fyrir TopShop.
Spólaö til baka
Ég fór á myndina
The Departed á
sunnudagskvöldið en
hún var frum-
sýnd um helgina.
Þetta er nýjasta ,
mynd leikstjór-
ans Martins «•
Scorsese og |^>
leikararnir eru > v
ekki af verri end- &
anum. Leonardo
DiCaprio, Matt Damon og Jack
Nicholson fara með aðalhlut-
verkin og standa kapparnir sig
með stakri prýði.
Myndin var hins vegar of löng,
heilar 152 mínútur eru eiginlega
aðeins of margar fyrir svona
spennumynd. Tveir klukkutímar
hefðu verið yfrið nóg því það
var stundum eins og leikstjórinn
hefði ekki tímt að klippa framan
eða aftan af senunum fyrst hann
var nú einu sinni búinn að fá alla
þessa stjörnuleikara til þess að
leika í þeim. Svo var þetta líka
bara einum of amerískt fyrir mig.
Án þess að ég ætli eitthvað að
kjafta frá endinum, svona svo
ég eyðileggi ekki myndina fyrir
öllum hinum, verð ég að segja
að hann var aðeins of ódýr fyrir
minn smekk. Ég hefði gjarnan
viljað fara út í kalda sunnudags-
nóttina með einhverjar spurn-
ingar í kollinum; hver er hinn
rétti erfingi krúnunnar eða hver
drap Kennedy? Mér finnst alltaf
voðalega kjánalegt að labba út úr
bíósalnum og maður gleymir því
næstum um hvað myndin var á
meðan maðurtreðst eins og sard-
ína í dós út úr salnum. Þá vil ég
heldur íslenskt, já takk. Það var
allt öðruvísi að ganga út af Mýr-
inni, þá veltust í kollinum á mér
spurningar um íslenskt samfélag,
siðferði og ýmislegt fleira. Sú
mynd hafði margfalt meiri áhrif
á mig en The Departed, og þó
að ameríska myndin væri meiri
hasarmynd þá risti hún bara
ekki eins djúpt. Þannig að hrós
dagsins fær Baitasar Kormákur
fyrir að rústa stjörnuleikstjóranum
Martin Scorsese... ís-
land, best í heimi!
Matarmenning
Meginuppistaða i
mataræði íbúana eru
eldbakaðar pitsur að hætti
Reykjavík Pizza Company.
Þegar um opinberar
heimsóknir erlendis frá
er að ræða er boðið upp
á íslenskar kræsingar,
svo sem lambalæri, sviða-
kjamma og skyr.
Hvenær er hentugt að ferðast
Þar sem hlutfall atvinnuleysis er hátt hentar nánast
hvaða tími dags sem er til heimsókna. Þó er ráðlagt
að vitja ekki heimamanna mjög árla morguns.
Siðir og venjur
Andrúmsloftið einkennist af friði og fíflagangi
meðal þegna. Hlutum er tekið með stóískri ró
og er uppátektarsemi ríkjandi sökum almenns
sjónvarps- og internetsleysis í íbúðinni. Afþrey-
ingarefni birtist í formi bóklesturs, bingóferða,
baksturs og afslöppunar í hengirúmi íbúa. Tónlist-
ariðkun er einnig vinsæl dægradvöl en hljóðfæri
heimilisins eru af ýmsum toga.
Næturlíf
Kvöldskemmtanir eru margvíslegar.
Tíðkast helst að stytta sér stundir með
aðstoð borðspila og tölvuleikja. Til há-
tíðabrigða eru húsgögn færð til og stof-
unni breytt í „beer pong”-völl, sú íþrótt
er gjarnan iðkuð við ameríska háskóla
og gengur út á að slöngva borðtennis-
kúlum í glös andstæðings sem þarf þar
af leiðandi að teyga innihald þess.
Samfélag og menning
Þriðjungur íbúa er af banda-
risku bergi brotinn og gætir því
amerískra menningaráhrifa í
þeirra daglega lifi. Kóladrykkir
og kartöfluflögur setja svip
sinn á landslag ibúðarinnar og
hljómar amerisk dægurtónlist
oft á tiðum úr fartölvum heima-
manna. Alþjóðlegur bragur er á
samfélagsháttum þar sem ibú-
ar hafa lagt leið sína um flestar
álfur heimsins og jafnframt eru
heimsóknir erlendis frá í háveg-
um hafðar. Næg gistiaðstaða
er í boði og hefur notið mikillar
hylli um helgar meðal vina og
vandamanna búsettra í hærri
tölu póstnúmera.
Vert að sjá
Kvikmyndasögunni eru gerð góð skil með póst-
kortum. Handskreytta klukku má finna og brot úr
Berlínarmúrnum.
Hellsa
Aðkomumenn er varaðir við bráðsmitandi atvinnu-
leysi sem fyrirfinnst meðal íbúa og er ekki ráðlagt
að dvelja of lengi í návist þeirra.
Háski og hrellingar
Áður en fyrstu sólargeislarnir ná að koma upp
fyrir sjóndeildarhringinn hljómar þegar þungbær
söngur úr nærliggjandi vinnuvélum sem rennur
saman við undirleik bassaleikarans á efri hæðinni
þaðan sem sama laglinan hefur borist um húsið
án afláts á undanförnum misserum.
Dýralíf
Gestir eru boðnir i garð með
söng og dansi kung-fú-hamst-
urs. Einnig getur að líta
fjölbreytta fánu tuskudýra.
Trúarbrögð
Trúfrelsi er til staðar í hibýlunum en opinber trú
íbúanna er sambland af norrænni goðafræði og
nútíma ofurhetjudýrkun, með vott af álfaátrúnaði.
SÉRSMÍÐAÐIR SÓFAR
Eftir ÞÍNUM MÁLUM
Árni Bragi
Hjaltason, 25 ára
Ég versla helst i Dan-
mörku. Reyndar keypti
ég jakkann í Smash en
annars finnst mér ekki
auðvelt að finna föt hér.
Egill Guðmundsson,
19ára
Ég versla helst í Jack
og Jones en ef ég sé
eitthvað í öðrum búðum
þá smelli ég mér bara
áþað.
Nikulás
Nikulásson, 16 ára
Ég versla helst i Smash,
fer ekki mikið í aðrar
búðir og mundi ekki
segja að ég væri einhver
Sautján-týpa.
Silvía Lind
Þorvaldsdóttir, 21 árs
Ég versla helst í útlönd-
um en hér á islandi
versla ég helst í Zöru,
Topshop, Spútnik og
kannski Rokki og rósum.
Erla Hezal Duran,
16 ára
Ég versla helst í búð-
unum i Kringlunni, í
Sautján, Deres og svona
þessum helstu búðum.
» Vegvísir aö íbúðínni okkar
Staðhættir Austan við Hlemm, innan um
glæpagengi, spilavíti og erlenda veitingastaði, and-
spænis litrikri húsalengju með myntugrænu vatnsröri
sem skilið hefur eftir sig víðfeðman ryðblett á vegg
sem eitt sinn var lika myntugrænn, má finna tímavél
k i formi ferkantaðrar 55 fermetra ibúðar.
Bak við luktar dyr má finna tímavél í
formi ferkantaðrar 55 fermetra ibúðar.
Klukkan handskreytta.
Pálína Björk Matthiasdóttir, Aroon Wallace og
Guðlaug Hermannsdóttir leigja saman ibúð ofarlega
á Laugavegi. Þau gefa lesendum Blaðsins vegvisi að
íbúð sinni þessa vikuna.
Hengirúmið er vinsælt til afslöppun
ar eftir átakamikla bingóferð.
Það tiðkast að stytta sér stundir
við borðspil og tölvuleiki.
gotunnar
Það er ekki sama tíska
og götutiska. Raunsanna
tiskumyndin fæst úti á götu
þar sem fólk klæðist því sem
virkar. Gn það er ekki sama
hvert menn leita. Sumir
finna föt á sig í Kringlunni
eða Smáralind, aðrir við
Laugaveginn og enn aðrir í
Danaveldi.
'%'tj ■ T W\
4 'JS L Hj V | 7;/ Á
i - j'itrfM S.: Ijjj jr*- I
- ■r.;- fl
—\
. ?!:rm mm wl
Simi: 553-9595
www.gahusgogn.is
Ármúla 19
6 af hverjum 7 konum vita hvað
Ég er ~ 7 /
trygglr gæðlnl
virkar.
Fáanlegt hjá:
öiium betri apótekum landsins
I A ri I HAOKAUP