blaðið - 09.11.2006, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006
blaðið
INNLENT
KYNFERÐISBROT
Rannsókn á lokastigi
Rannsókn lögreglunnar á meintu kynferðis-
broti sem kært vartil lögreglu í október er á
lokastigi. Konan sem er um þrítugt kærði tvo
menn fyrir kynferðisbrot en þeir játuðu ekki
við yfirheyrslur að sögn yfirlögregluþjóns.
UMFERÐ
Snjór og ófærð
Snjókoma setti strik í reikninginn fyrir ferðalanga víða
á landinu í gær. Verst urðu Vestlendingar og Vestfirð-
ingar þó fyrir barðinu á veðrinu þar sem Dynjandis-
heiði varð ófær og Hrafnseyrarheiði þungfær auk þess
sem hálka og snjóþekja var víða á vegum.
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI
Um 15 milljarðar í skatt
Fjármálafyrirtæki greiða nærri helming af álögðum tekjuskatti
allra fyrirtækja í landinu vegna ársins 2005 samkvæmt frétt
Samtaka atvinnulífsins. I heild munu fjármálafyrirtæki greiða um
15 milljarða í tekjuskatt fyrir síðasta ár sem er meira en saman-
lagður tekjuskattur allra fyrirtækja í landinu tvö ár þar á undan.
Rumsfeld sagði af sér:
Tíminn til að breyta
„Ég skil að margir Bandaríkja-
menn vildu sýna með atkvæði
sínu að þeir eru ósáttir við skort
á framförum í lrak,“ sagði Ge-
orge W. Bush Bandaríkjaforseti í
gær þegar hann tilkynnti afsögn
Donalds Rumfelds varnarmála-
ráðherra. Bush sagði þetta rétta
tímann til að skipta um forystu í
varnarmálaráðuneytinu.
Rumsfeld hefur sætt mikilli
gagnrýni að undanförnu vegna
stöðu mála í Irak. Hermenn og
flokkssystkin Rumsfelds og Bush
hafa gagnrýnt hann að undan-
förnu og því kemur ekki á óvart
að hann segi af sér nú. Eftirmaður
Rumsfelds verður að líkindum
Robert Gates sem var yfirmaður
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA í forsetatíð George Bush, föður
núverandi forseta.
1 "ýSj 9 f, viiaj iwg
alla þriðjudaga
blaöi
Stigahúsateppi
SuSurtandsbraut 10 N-'" C'Tp fÝWn
Slml 533 5800 1 lín
www.simnet.is/strond
Hrökkluðust af heimili sínu ibúar þurftu
aö flýja heimili sín og maður og kona
voru lögð inn á gjörgæslu í gærkvöid eftir
siæman eldsvoða i Breiðholti. Mynúir/lútm
Hjónum haldið sofandi á gjörgæslu eftir eldsvoða:
Skelfileg upplifun
■ Áfall að sjá nágrannana brenna inni ■ Þriðji eldsvoðinn á stuttum tíma
Makamissir
Fræðslufundur í Fossvogskirkju í kvöld
9. nóvember kl. 20-22.
Fyrirlesari Gunnliildur Heiða Axelsdóttir, fötlunarfræðingur.
Allir velkomnir!
NÝ DÖGUN
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Kirkjugarðar Reykjav/kurprófastsdæma
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Þetta var bara skelfilegt,“ segir Björg
Benjamínsdóttir sem býr með syni
sínum í Ferjubakka 12 þar sem hjón
slösuðust lífshættulega í eldsvoða í
fyrrakvöld. Slökkviliðsmenn björg-
uðu hjónunum út úr íbúð þeirra og
voru þau flutt á sjúkrahús. Þau dvelja
nú á gjörgæsludeild.
„Skyndilega var bankað kröftug-
lega á dyrnar hjá mér og þegar ég
opnaði blasti reykur við mér,“ segir
Björg en gangurinn var kolsvartur
af reyk að hennar sögn. Maður sem
bjó á móti henni lamdi á hurðina og
kallaði til hennar að koma sér út þvi
eldur væri laus í húsinu. Þá spurði
Björg hvar eldurinn væri og sagði ná-
granninn hennar að hann væri í íbúð
hjónanna á miðhæðinni.
„Sem betur fer bý ég á jarðhæð og
því kom ég mér og syni mínum út
um svalardyrnar í íbúðinni,“ segir
Björg en þegar mæðginin komust
út kom slökkviliðið aðvífandi. Hún
segir að íbúð hjónanna á miðhæð-
inni hafi skíðlogað og sá stofurúðuna
springa vegna hitans.
Slökkviliðsmennirnir bjuggu sig
undir að fara inn sótsvartan gang-
inn því fregnir bárust um að hjónin
væru þar enn.
„Það er áfall að horfa á nágranna
sína brenna inni,“ segir Björg sem
er mikið brugðið eftir reynsluna.
Slökkviliðsmönnunum tókst að
bjarga hjónunum út úr brennandi
húsinu. Farið var með þau á spítala
og þau lögð inn á gjörgæslu. Þeim er
haldið sofandi en þau eru illa haldin
og mikið brunnin.
Björg þekkir hjónin vel og segir
atburðinn skelfilegan með brostinni
rödd.
Ljóst er að atburðurinn hefur tekið
verulega á andlega líðan íbúa í blokk-
inni og um tugur þáði áfallahjálp
eftir atburðinn.
Þrír eldsvoðar hafa komið upp með
stuttu millibili úti um allt land. Kona
liggur á gjörgæslu eftir að maður
stakk hana með hnífi og kveikti svo
í húsi sem hún dvaldi í á Húsavík.
Konan hlaut mikil brunasár auk þess
að vera lífshættulega særð vegna
hnífstungunnar. Kona og tvö börn
hennar sluppu út úr logandi íbúð í
Reykjanesbæ á mánudagskvöld.
Akureyri vill ekki bonsai-tre Hafnfirðinga að gjöf:
Vinabær afþakkar dvergtré
„Dvergtrén eiga frekar heima hjá
grasafræðingum en hjá okkur,“ segir
Björn Hilmarsson, garðyrkjustjóri
Hafnarfjarðarbæjar, en bærinn bauð
vinabæ sínum Akureyri metnaðar-
fullan bonsai-garð að gjöf. Akureyri
afþakkaði gott boð.
Trén eru agnarsmá og ræktuð að
japanskri hefð. Hafnarfjörður keypti
trén af Páli Kristjánssyni árið 1999 og
gerði utan um þau veglegan garð í Hell-
isgerði. Trén eru í kringum hundrað
og var Páll 25 ár að rækta þær.
Heimilislaus dvergtré Hiimar
Björnsson, garðyrkjustjóri Hafnar-
Jjarðar, vill koma bonsai-trjám í hend-
ur grasafræðinga.
„Ég fékk nú óvænt boð um að kaupa
þessar plöntur á sínum tíma og lagði
það fýrir bæjarstjórn. Það kom mér
reyndar mest á óvart þegar stjórnin
féllst á boðið,“ segir Björn um tildrög
þess að bænum eignaðist plönturnar.
Trén og garðurinn fyrir þau kostuðu
þrjár milljónir króna.
Jón Erlendsson, nefndarmaður
Vinstri grænna í framkvæmdaráði
Akureyrar, segir Akureyringa eiga
nóg með sinn eigin garð. Því hafi þeir
ekki viljað taka boðinu.
Hreint ehf. var stofnaö áriö 1983 og er eitt elsta
og stærsta ræstingarfyrirtæki landsins.
Er HREINT hjá þínu fyrirtæki?
Hreint býður upp á ókeypis ráðgjöf
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is