blaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 blaöiö UTAN ÚR HEIMI MEXÍKÓ Farbann á forseta Neðri deild mexíkóska þingsins hefur samþykkt að þanna Vicente Fox að fara í opinþerar heimsóknir til Víetnams og Ástralíu sem hann ætlaði í síðar í mánuðnum. Ástæðan fyrir farbanninu er ótryggt ástand í Oaxaca-ríki í suðurhluta Mexíkó. Höfnuðu banni við fóstureyðingum Kjósendur í Suður-Dakóta höfnuðu fyrirhugaðri löggjöf um nánast algjört bann við fóstureyð- ingum í ríkinu. Kosið var um málið samhliða þing- kosningum á þriðjudag. Ríkisþingið samþykkti fóstureyðingabannið í mars. líliiiHilil Saddam tekinn af lífi fyrir árslok Nouri Maliki, forsætisráðherra (raks, býst við að dauðadómi yfir Saddam Hussein, fyrrum forseta, verði fullnægt fyrir áramót. Dóm- urinn yfir honum var kveðinn upp á dögunum. Nú er réttað yfir Hussein vegna þjóðarmorða á Kúrdum í írak en ekki er enn vitað hvort þeim réttarhöldun Ijúki áður en Hussein verður tekinn af lífi. ekki missa af okkar landsfræga og margrómaða jólahlaðborði. Síðast komust færri að en vildu. Fimmtudagskv. 30. nóv., 7. des., og 14 dés., skemmta óperu-ídívurnar Davíð og Stefán. Þeir hafa slegið gegn með glæsilegum söng og líflegri framkomu. Þeirsyngja ítalska gleðitónlist, íslenska slagara, Elvis, Abba og allt þar á milli. Stórgóð skemmtun fyrir alla Ib y aldurshópa. Tilvalið fyrir starfsmannahópa, ^ vinahópa, klúbba, félagasamtök . K og alla hópa sem vilja hafa gaman og láta dekra við sig í mat og drykk. %Já 1 \aus 4 giæsilegir salir • altt að 350 manns mumu kollurinn ýmsir litir Leitaðu frekari upplýsinga ontúra Húsgögn Sliílllisliúlillll I I ll’l'IIJlllillllll www.skidaskali.is - skidaskaiifé'skidaskali.is GENEHAL TIRE ©. Lyngás 11 //210 Garðabær// Sími 564 3456 Nancy Pelosi Pelosi leggur mikla áherslu á þverpólitíska sátt. Hún verður forseti full- trúadeildarinnar. \ Þingkosningarnar í Bandaríkjiinum: Demókratar endur- heimtu meirihluta ■ írak felldi repúblikana ■ Þverpólitísk sátt Pelosi Eftir Örn Arnarson orn@bladid.net ÞUNGAVIGTARKONUR TIL ÁHRIFA Þingkosningarnar á þriðjudag voru um margt sögulegar. Demókrata- flokkurinn endurheimti meirihluta sinn í fulltrúadeildinni og fer langt með að fella meirihluta repúblikana í öldungadeild. Demókratar bættu við sig fjórum af þeim sex sætum sem þeir þurftu en enn er ekki út- séð með niðurstöðu öldungadeild- arkosninganna í Virgíníu og Mont- ana. Hugsanlega munu atkvæði verða talin þar á ný og því verður bið á því að endanlega skýrist hvor flokkurinn nái meirihluta öldungadeildinni. Yfirburðir repú- blikana á enda Tíðindi kosninganna felast í því að demó- kratar hafa bundið enda á yfirburðastöðu repúblikana. Allt frá árinu 1994 hafa þeir haft tögl og hagldir í stjórnmálalífinu. Það ár unnu þeir frækilegan sigur í þingkosningum og hafa haldið meirihluta sínum í fulltrúadeild- inni og öldungadeildinni allar götur síðan. Árið 2000 féll svo forsetaemb- ættið í þeirra skaut. Þrátt fyrir þessi tíðindi er með öllu óljóst hvort sigur demókrata muni hafa í för með sér djúpstæðar breytingar í stjórnmála- lífi landsins. Hinsvegar blasir við að með sigri sínum og meirihluta í full- trúadeildinni geta þeir gert líf Bush ansi leitt. Mislit hjörð Þegar repúblikanar komust til valda í þinginu á tíunda áratug ný- liðinnar aldar var það á grundvelli stefnuskrár sem nefndist „samning- urinn við Bandaríkin”. Þrátt fyrir að sú stefnuskrá hafi aldrei verið fram- kvæmd til fullnustu hefur margt í henni skilað sér í lagasetningu og Þær Hillary Clinton og Nancy Pelosi munu verða fyrirferðarmiklar í banda- rískum stjórnmálum næsty árin. Yfirburðasigurfyrrverandi forsetafrúarinn- ar í öldungadeildarkosningum í New York-ríki eykur líkurnar á því að hún bjóði sig fram í forsetakosningunum árið 2008. Allar líkur eru á því að Pelosi verði forseti fulltrúadeildar þingsins og brjóti þar með blað en kona hefur ekki áður skipað embættið. starfinu fram til næstu kosninga árið 2008 fyrir utan eitt hitamál: Ástandið í írak. Sigur demókrata byggist á óánægju með stefnu forsetans í málefnum Iraks. Hinsvegar lagði flokkurinn ekki fram neina lausn á ástandinu þar. Ef til vill skiptir það ekki sköpum þar sem þingið hefur lítið umþau mál að segja. Hinsvegar geta demókratar beitt því dagskrár- og rannsóknarvaldi sem fylgir því að vera í meirihluta í fulltrúadeild- inni til þess að knýja fram stefnu- breytingu rikisstjórnarinnar. Þar sem Bandaríkjamenn standa nán- ast eingöngu frammi fyrir vondum kostum varðandi málefni íraks er ólíklegt að meiriháttar stefnubreyt- ing sé í vændum í bráð. Þingrannsóknir á ástandinu í írak eru líklegri og gætu komið rík- isstjórninni illa. Verðandi forseti fulltrúadeildarinnar, Nancy Pelosi, hefur reyndar lagt mikla áherslu á að þverpólitísk sátt náist um stefnu- breytingar í trak og störf þingsins eigi ekki að snúast um að koma höggi á pólitíska andstæðinga. andi hennar hefur haft mót- andi áhrif á stefnumál repú- blikana allar götur frá því að hún var lögð fram. Sigur demókrata í kosningunum nú byggir ekki á heildstæðri stefnu. Þeir unnu kosningarnar í íhalds- sömum ríkjum meðal annars með því að bjóða fram býsna íhaldssama demókrata og treystu á að almenn andúð kjósenda á stefnu ríkisstjórn- arinnar í veigamiklum málum myndi skila sér í kjörkassana. Þing- menn demókrata eru mislit hjörð í pólitískum skilningi og ósennilegt er að sigur þeirra marki sveiflu til vinstri. Geta þvingað Bush Með því að vera með meirihluta í fulltrúadeildinni geta þeir lagt fram lagafrumvörp sem forsetinn getur hinsvegar neitað að staðfesta. Þetta þýðir að þingmeirihluti demókrata þarf að vinna með George Bush til þess að ná fram samstöðu um laga- setningu - annars lamast stjórn- kerfið. Lognbeltisástand mun því að öllum líkindum ríkja í löggjafa-

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.