blaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 10
blaðið
Verkefni
næstu
ríkisstjórnar
Hádegisfundur með
Össuri Skarphéðinssyni
á Sólon, föstudaginn
10. nóvember.
Prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík er haldið laugardag-
inn 11. nóvember, í Þróttar-
heimilinu frá kl. 10 til 22.
Össur Skarphéðinsson hefur
gefið kost á sér í 2.-3. sæti.
Össur áfram til forystu
Chan nýr forstjóri WHO
Alþjóðaheilbrigðismálaþingið staðfestir væntanlega tilnefn-
ingu Margaret Chan í embætti nýs forstjóra Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO) í dag. Chan, sem er 59 ára
læknir frá Kína, fékk flest atkvæði þeirra sem framkvæmda-
stjórn WHO tilnefndi í embættið. Hún er yfirmaður hjá WHO.
Deilt um dýr á Indlandi:
Apar í hæstarétti
Örlögin ráðast í dómsal Aparnir í
Nýju-Delí hafa medal annars ráðist
inn i varnarmálaráðuneyti landsins.
Hæstiréttur Indlands mun skera
úr um örlög þrjú hundruð apa sem
borgaryfirvöld í Nýju-Delí hafa
handsamað að undanförnu. Upp-
haflega átti að flytja apana til frum-
skógar í miðhluta landsins en íbú-
arnir á svæðinu vilja ekki sjá þá og
hafa sent formlegt erindi til stjórn-
valda um að þeir verði fluttir annað.
Fyrir eru 250 apar frá Nýju-Delí í
skóginum og segja íbúar í nærliggj-
andi þorpum þá vera bæði óalandi
og óferjandi.
Þúsundir apa ganga lausir í
Nýju-Delí og af þeim hlýst töluvert
ónæði. Þeir flækjast um opinberar
byggingar og hafa meðal annars
ráðist inn á skrifstofur forsætisráð-
herrans, þingsins og rifið og tætt
leyniskjöl í varnarmálaráðuneyti
landsins. Ekki er gerlegt að taka ap-
ana af lífi þar sem margir Indverjar
telja þá heilaga. Vegna úrræðaleysis
gagnvart vandanum hefur verið
ákveðið að fremstu lögspekingar
indversku þjóðarinnar finni lausn
sem geri mönnum og öpum kleift
að lifa saman í sátt og samlyndi.