blaðið - 09.11.2006, Side 12

blaðið - 09.11.2006, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 blaöiö UTAN ÚR HEIMI PAKISTAN U Á fjórða tug hermanna féll Að minnsta kosti 35 hermenn féllu í sjálfsmorösárás á herskóla I norðvesturhluta Pakistans í gær. Árásin er sú mannskæðasta sem pakistanski herinn hefur orðið fyrir eftir að hann hóf að berjast gegn tali- bönum og AI-Kaída-liðum við afgönsku landamærin. PAKISTAN (J Vopnahlé liðið undir lok Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas-samtakanna, segir að vopnahlé við (srael sé liðið undir lok og hvetur múslíma um heim allan að grípa til vopna gegn ísrael og bandarískum skotmörkum. Að minnsta kosti 18 óbreyttir borgarar féllu í aðgerðum Israela í gær. Meirihluti ríkisstjóra demókratar í fyrsta sinn siðan áriö 1994 eiga demókratar meirihluta allra rík- isstjóra Bandaríkjanna. í kosningunum á þriðjudag unnu frambjóö- endur þeirra sitjandi ríkisstjóra repúblikana í sex ríkjum. Kvikmynda- stjarnan Arnold Schwarzenegger, repúblikani og ríkisstjóri Kaliforníu, vann hinsvegar yfirburðasigur á frambjóðanda demókrata. 'w', ’ jj Útigangsfólk slóst við táninga: Sjálfsmorðstilraun leiddi til áfloga Mbl.is Undarleg uppákoma varð í bænum Lörrach í Þýskalandi í gær- morgun þegar ung kona ætlaði að fremja sjálfsmorð með því að stök- kva fram af þaki. Slagsmál brutust út meðal þeirra sem fylgdust með konunni, milli útigangsfólks sem reyndi að forða henni frá sjálfsvígi og táninga sem hvöttu hana til að stökkva. Konan var uppi á þaki ráðhúss- ins og segir lögregla unglingana hafa hagað sér með siðlausum hætti. Um 40 manns slógust og tókst lögreglu á meðan að ná kon- unni af þakinu, en hún hafði þá verið þar í þrjá og hálfan tíma. 35 lögreglumenn reyndu að skakka leikinn og meiddust sex þeirra. Átta voru handteknir, flestir þeirra á aldrinum 16 til 19 ára. býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 1 1 . i 1 .06 www.jongunnarsson.is KRAFTMIKINN MANN A ÞING! Jón Gunnarsson framkvstj. Slysavarnafélagsins Landsbjargar Tryggjum Jóni Gunnarssyni 4. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum) á laugardaginn. Oryggi okkar allra. „Bættar samgöngur í kjördæminu auka öryggi í umferðinni. Greiðari samgöngur eru forgangsmál og tvöföldun fjölfarinna þjóðvega stuðlar að fækkun slysa." Fyrsta rannsóknarlota hleranamálsins: Jón og fleiri yfirheyrðir ■ Enginn með réttarstöðu sakbornings Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Sýslumaðurinn á Akranesi, Ólafur Hauksson, sem rannsakar meintar hleranir í utanríkisráðuneytinu á tí- unda áratug síðustu aldar, yfirheyrði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver- andi utanríkisráðherra, og Árna Pál Árnason lögfræðing auk fleiri í fyrstu lotu rannsóknarinnar. Eng- inn var yfirheyrður með réttarstöðu sakbornings, heldur voru allir teknir fyrir sem vitni. Bogi Nilsson ríkissaksóknari taldi ekki eðlilegt að lögreglustjórinn í Reykjavík hefði með málið að gera vegna þess að utanríkisráðuneytið var í húsnæði lögreglustjórans á þeim tíma sem um ræðir. Þess vegna fól hann sýslumanninum á Akranesi rannsóknina. „Við vinnum eftir svokallaðri rann- sóknaráætlun sem er stigskipt. Það er reynt að ná utan um málið og tala við þá sem talið er þurfa í fyrstu at- rennu. Síðan metum við framhaldið út frá því sem fram er komið,” segir Ólafur. Hann segir allar skýrslutökur hafa verið teknar upp á hljóð- og myndband. „Það var ekki gert í leyni. Öllum var gerð grein fyrir því að sá háttur væri hafður á. Þetta er gert til að ekkert týnist niður og ekkert sé missagt í skýrslum. Síðan er allt vél- ritað upp og farið yfir það í kjölfarið.” Fáanleg í flestum stærðum fyrir 15,16,17 og 18" felgur Fjallasport ^4x4 specialist* Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.