blaðið


blaðið - 09.11.2006, Qupperneq 20

blaðið - 09.11.2006, Qupperneq 20
2 0 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 blaðið Óhefðbundnar og vafasamar aöferðir lögreglunnar kortlagðar: Mesti fíkniefnasali landsins vann í skjóli lögreglunnaf EKKI ÁKÆRT ÞRÁTT FYRIR AUGLJÓS BROT FJÖRUTÍU LÖGREGLUMENN í STÖÐU GRUNAÐRA NÝRRI GREININGARDEILD ÆTLAÐ AÐ BEITA ÓHEFÐBUNDNUM AÐFERÐUM Ný greiningardeild, sem hefur heimild til óhefðbundinna lögreglu- starfa, tekur til starfa um áramót við embætti ríkisslögreglustjóra. Hún mun meðal annars rannsaka landráð, grun um hryðjuverk og skipulagða glæpastarfsemi. Fyrir tíu árum fór fram ítarleg rannsókn á starfsemi lögregl- unnar í Reykjavík þar sem fjörutíu lögreglumenn fengu stöðu grun- aðra. Talið var að þeir hefðu gerst sekir um brot í opinberu starfi og brotlegir við refsilög. Rannsóknin beindist einkum að fyrrverandi yfirmönnum fíkniefnadeildar- innar, Arnari Jenssyni og Birni Halldórssyni. Þeir voru grunaðir um að hafa verið í upplýsinga- og trúnaðarsambandi við fíkniefna- salann Franklín K. Steiner og í skjóli þess hafi hann náð að verða umsvifamesti eiturlyfjasali lands- ins. Franklín er talinn hafa veitt fíkniefnalögreglunni í staðinn upplýsingar um aðra fíkniefnasala og náð þannig jafnframt að koma höggi á aðra fíkniefnasala. Fram- burður lykilvitna í rannsókninni staðfesti þetta samband. Að rannsókn lokinni var ekki ákært í málinu. Fóru ekki eftir starfsiýsingum Eftir ítarlega umfjöllun tíma- ritsins Mannlífs, undir ritstjórn Hrafns Jökulssonar, óskaði þáver- andi dómsmálaráðherra, Þorsteinn Pálsson, eftir því að ríkissaksókn- ari hæfi rannsókn. Honum varð að ósk sinni. Settur var sérstakur rann- sóknarlögreglustjóri, Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður, sem skilaði skýrslu til ríkissaksóknara. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Blaðsins fengust engin svör frá dómsmála- ráðuneytinu þegar óskað var eftir því að sjá skýrsluna og Atli vildi ekki tjá sig um málið. Trausti Hafsteinsson skriíar um vafasamar og óhefðbundnar ; aðferðir lögreglnnar. J&» Fréttaúttekt trausti@bladid.net Samkvæmt heimildarmönnum var þar greint frá því að háttsemi Iögreglunnar í Reykjavík í sam- skiptum hennar við Franklín hafi stangast á við hegningarlög. Ekki hafi verið farið eftir starfslýsingum og eftirlit með störfum lögregl- unnar hafi verið ófullnægjandi. Fjölmörg mál fengu ekki eðli- lega framhaldsmeðferð og yfirmenn fíkni- efnadeildar- UR NIÐURSTOÐUM RANNSOKNARINNAR: „Rannsóknin leiðir í Ijós að skipulagi lögreglunnar í Reykjavík gagnvart ávana- og fíkniefnadeild, yfirstjórn og starfsháttum deildarinnar er um margt ábótavant. Umsjón og eftirlit með störfum deildarinnar er ófullnægj- andi. Lögreglufulltrúar deildarinnar, deildarlögfræðingar, aðstoðaryfirlög- regluþjónar og yfirlögregluþjónar hafa ekki fylgt gildandi erindisbréfum og starfslýsingum í veigamiklum atriðum. Lögreglustjóri virðist ekki hafa haft vitneskju um eða yfirsýn yfir stöðu mála og ekki beitt sé fyrir nauðsyn- legum úrbótum." iffisr" Arnar og Björn, eru sagðir hafa gengið erinda Franklíns. Þannig hafi þeir til dæmis barist fyrir reynslulausn hans og mælt með byssuleyfi fyrir hann. Skýrslum stungið inn í skáp I svarbréfi Arnars svarar hann því til að annir deildarinnar hafi verið miklar. Af þeim sökum hafi ekki verið hægt að rannsaka öll mál til hlítar. „Mjög algengt var að skýrslur sem innihéldu upplýsingar um alvarleg brot, jafnvel stóran inn- flutning eða dreifingu fíkniefna, hafi verið lagðar í skjalaskáp án nokkurrar rannsóknar vegna anna við aðrar rannsóknir, fjárskorts eða mannfæðar.“ I svörum Arnars er ekki skýrt nánar hvers vegna fjölda ábendinga um fíkniefnaviðskipti Franklíns var ekki sinnt, hvernig frumgögn í málum ________________ hurfu sporlaust og hvort hann hafi gengið erindaFranklíns. Hann vísaði jafnframt ábyrgð- inni frá sér, þar sem yf- irmaður fíkniefnadeild- arinnar sé lágt settur í valdastiga lögreglunnar, og benti á að milli sín og lögreglustjórans hafi verið fjórir aðrir yfirmenn. Húsleit hjá Franklín Steiner Vopn og fikniefni fundust við húsleit og Franklín Steiner var handtekinn en sleppt eftir yfirheyrslur. TIMABILIÐ SEM VAR RANNSAKAÐ 1988-1997 ■ Yfirmenn deildarinnar: Arnar Jensson 1985 til 1990 Björn Halldórsson 1990 ti! 1997 Ekki nægar sannanir Háttsettur heimildarmaður Blaðsins, sem vegna trúnaðarstöðu sinnar getur ekki komið fram undir nafni, segir Ijóst að tilefni var til ákæru í málinu. „Brotin voru framin og vitað hverjir tengd- ust þeim. Sönnun fyrir þessum tengslum við Franklín Steiner var fyrir hendi. { ljós iív komu til- vik sem gáfu til kynna að svo væri, meðal annars mál er vörðuðu fíkni- efnabrot, en ekkert meira varð úr. Síðan höfðu horfið frumskjöl úr gagnabönkum, sem aldrei hafa fundist þrátt fyrir ítarlega leit,“ segir heimildarmaður- inn. „í mörgum trúriað- arsamtölum við vitni málsins fékkst þetta samstarf stað- fest en þegar á hólminn var komið þorðu menn ekki að koma fram undir nafni. Af þeim sökum þóttu ekki nægar sannanir fyrir hendi.“ Lögreglan brýtur lög f ferilskýrslu Franklíns koma fram fjölmargar vísbendingar um umsvif hans í fíkniefnaheiminum. Þrátt fyrir það liggur fyrir að mál hans voru lítt rannsökuð eða hlutu ekki eðlilega framhaldsmeð- ferð hjá fíkniefna- deildinni. Heim- ildarmaður Blaðsins í fíkniefnaheiminum fullyrðir að starfhættir fíkniefna- lögreglunnar i gegnum tíðina hafi verið vafasamir. Hann segir það fásinnu þegar lögreglan heldur því fram að hún brjóti ekki lög. „Á sínum tíma var vitað mál að í fíkniefnaheiminum varð maður að varast ákveðna fíkniefnasala sem unnu í skjóli fíkniefnadeild- arinnar. Þeir voru einfaldlega notaðir til að koma upp um starfs- bræður sina, og jafnframt sam- keppnisaðila. Þetta er vitað og allir í bransanum vita þetta.“ Ríki í ríkinu Gunnleifur Kjartansson, fyrrver- andi rannsóknarlögreglumaður, telur vafasamt að stofna slíka grein- ingardeild því að rannsóknin hafi sýnt fram á vafasamar aðferðir lögreglunnar. Meginspurningin að hans mati sé hverjir eigi síðan að hafa eftirlit með deildinni. „Ég trúi því varla að verið sé að stofna þessa greiningardeild. Lögreglan hefur áður legið undir grun um að hafa beitt aðferðum á vægast sagt gráu svæði og því spyr maður hver muni fylgjast Þorsteinn Páfsson Hann var dómsmálaráðherra þegar Franklín Steiner fékk byssuleyfi þrátt fyrir glæpaferilinn Atli Gíslason Hæstaréttarlögmaðurinn var fenginn til að rannsaka störf iögreglunnar. MANNLIF 2. TBL. 1997. Háttsettur heimildarmaður: | „Ég veit þaö hafa verið fjölmörg tækifæri til að taka Franklín með fangið fullt af fíkniefnum. Ástæðan fyrir því að þetta hefur gengið svona lengi er að hann er í beinu sambandi við lögregluna og gefur þeim upplýsingar sem þykja svo verðmætar að það sé ástæða til að láta hann í friði.“ Arnar Jensson Beitti þáverandi dómsmála- ráðherra þrýstingi til að Franklín Steiner fengi reynslulausn. r V l Halldór Björnsson Undirritaði heimild fyrir eyðingu fikniefna sem fundust á Franklín Steiner. Engar aðrar skrár var að finna um málið eða rannsókn þess. Vil=r. blaðið FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 29 - HORFNAR SKRÁR, DÓMSMÁLARÁÐHERRA BEITTUR ÞRÝSTINGI OG BYSSULEYFI TIL FÍKNIEFNASALA: ■ Arnar Jensson: FURUGRUNDARMÁLIÐ 15. febrúar 1988 var gerð húsleit heima hjá Franklín Steiner þar sem fundust 134 grömm af hassi og 4 grömm af amfetamíni. Við yfirheyrslur viðurkenndi hann að eiga efnin. Málið var hins vegar ekki sent til framhaldsmeðferðar. (rannsókn kom fram magpa sem tengdist málinu en í hana vantaði skjöl í númera- röð. Frumgögn málsins hafa aldrei fundist þrátt fyrir ítarlega leit. Við yfirheyrslur þvertók Arnar Jensson fyrir að hafa haft áhrif á málið og sagöist engar skýr- ingar hafa á því hvers vegna ekki hafi komið til frekari rannsóknar og refsingar. Málið týndist í kerfinu. ÁRANGURSLAUSAR HÚSLEITIR 28. júlí 1989 og 28. mars 1990 voru gerðar húsleitir hjá Franklín Steiner eftir ábendingar sem tengd- ust öðrum málum. I skýrslum kom fram að engin fíkniefni hafi fundist á heimili hans. Heimildarmenn Mannlífs og Blaðsins fullyrða að allt hafi verið vað- andi í fíkniefnum á heimili hans og því sé útilokað að engin efni hafi fundist. Arnar Jensson hélf því fram við yfirheyrslur að málin hafi verið eðlilega rannsökuð og fengið eðlilega meðferð. HEGNINGARHÚSSMÁLIÐ Árið 1990 sat Franklfn Steiner í fangelsi vegna fíkni- efnabrots. Á meðan hann var í vistun í hegningarhús- inu við Skólavörðustíg var hann tekinn með fíkniefni í fórum sínum. Arnar Jensson annaðist sjálfur yfirheyrslur. Fangelsisstjórn beitti agaviðurlögum i málinu en X málið hlaut ekki framhaldsmeðferð hjá fíkniefnadeildinni. REYNSLULAUSNiN Árið 1990 var Franklín dæmdur til 29 mánaða fang- elsisvistar. Ólíkt því sem lög gerðu ráð fyrir, að fangar dæmdir fyrir fíkniefnabrot skyldu afplána að minnsta kosti tvo þriðju dómsins, var honum sleppt lausum að hálfri afplánun lokinni. Þáverandi dómsmálaráðherra, Óli Þ. Guðbjartsson, hefur staðfest opinberlega að Arnar Jensson hafi beitt sig miklum þrýstingi til að fá Franklín lausan úr fangelsi. af Birni Halldórssyni þar sem veitt var heimild fyrir eyðingu efnanna. Flest gögn vantar í málið til þess að viðhlítandi hugmynd um málavexti fáist. KÓPAVOGSMÁLIÐ 13. apríl 1996 fór fram húsleit hjá Franklín Steiner og hann handtekinn í kjölfarið. (lok apríl var rannsókn lokið af hálfu fíkniefnadeildarinnar en Björn Halldórs- son sendi málið ekki áfram til ríkissaksóknara fyrr en löngu síðar. Engar skýringar hafa fengist á þvi hvers vegna hinn mikli dráttur varð á rannsókn málsins og því að áframsenda erindið. BYSSULEYFIÐ Árið 1994 skrifaði Björn Halldórsson meðmæli til dómsmálaráðuneytisins með byssuleyfisumsókn Franklíns Steiners. Á þeim tíma hafði hann hlotið dóma fyrir smygl og sölu fíkniefna í þremur löndum. Yfirmenn lögreglunnar neituðu viðtölum við fjölmiðla vegna málsins. ■ Björn Halldórsson: TUNGUVEGSMÁLIÐ 15. apríl 1992 var Franklín Steiner handtekinn af lögreglumönnum úr almennri deild. Á honum fundust . fíkniefni en engar skrár um málið finnast hjá fíkni- efnadeildinni og því ekki útlit fyrir að málið hafi fengið eðlilega framhaldsmeðferð. Hvorki finnast frumgögn í málinu né af- LvyvyÚ' ' rit hjá fíkniefnadeildinni. Hins vegar {ga0ffi§^■eru til eyðingarskýrslur undirritaðar með starfsemi og aðferðum þessarar greiningardeildar,'1 segir Gunnleifur. „Rann- sóknin sýndi að lögreglan fór út fyrir það sem lög heimiluðu á þeirn tíma. Ég er hræddur um að greiningardeildin endi uppi sem eftirlitslaust ríki í ríkinu.“ Stöðvaði ekki framgöngu Þrátt fyrir að Franklín Steiner væri einn umsvifa- mesti eiturlyfjasali landsins hafði fíkniefnadeildin lítil af- skipti af honum. Það var ekki fyrr en 13. apríl 1996 þegar lög- reglumenn í almennri deild handtóku Franklín, með tölu- vert magn fíkniefna í fórum sínum, sem hann var dæmdur í fangelsi. Við rannsókn á starfsemi lögreglunnar voru gerðar alvarlegar athugasemdir en ákveðið að ákæra ekki. Hún leiddi hins vegar til róttækra skipulagsbreytinga hjá lög- reglunni. Arnar og Björn fengu nýjar yfirmannastöður hjá embætti ríkislögreglu- stjóra, sem stofnað var stuttu áður en rannsókn lauk. Þrátt fyrir grunsemdir um brot í starfi hlutu þeir framgang í starfi innan lögreglunnar. Arnar Jensson er einn þeirra sem nefndur hefur verið sem yfirmaður nýstofnaðrar greiningardeildar, sem hefur heimild til að beita óhefð- v bundnum aðferðum ijNv. við störf sín. Stuðningsmenn Ragnheiðar Ásdís Halla Bragadóttir forstjóri BYKO Anna Þórunn Reynisdóttir sérfræðingur hjá Landsbanka íslands Anna jeppesen kennari Betzý ívarsdóttir stuðningsfulltrúi Gunnar Valur Gíslason forstjóri Eyktar Gylfi Dalmann Aðalsteinsson Vinnumarkaðsfræðingur Hafsteinn J. Reykjalín bifreiðastjóri Haraldur Sverrisson formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar Hjörleifur Pálsson fyrrverandi formaður Hugins í Garðabæ Ólafur G. Einarsson fyrrverandi ráðherra Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri á Seltjamarnesi Salome Þorkelsdóttir fyrrverandi forseti Alþingis Sigríður Rósa Magnúsdóttir bæjarfulltrúi á Álftanesi Sigríður Anna Þórðardóttir alþingismaður Sigurgeir Sigurðsson fyrrverandi bæjarstjóri Seltjamamesi öFsjáÍfstæðismanna í sudvestur- :raíh ii.lnómnber næstkomandi Kosningaskrifstofa Ragnheiðar er að Háholti 14. Opið virka daga 17 -20 og um helgar 12-17. Sfmi: 5 66 77 99 » www.ragnheidurrikhardsdottir.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.