blaðið


blaðið - 09.11.2006, Qupperneq 34

blaðið - 09.11.2006, Qupperneq 34
rWEMBER 2006 Ovandað I kvikmyndinni hryllilegu The Saw III sést í hljóö nemann 32 sinnum. Þrátt fyrir að áhorfendur reki augun í þessi mistök svo oft þá virðist þetta algjörlega hafa farið fram hjá kvikmynda- gerðarmönnunum. I nærmynd Leikkonan Kirsten Dunst sem fer með hlutverk drottn ingarinnar Marie Antoinette í samnefndri kvikmynd notaði augnlinsur viö gerð myndarinnar en í nokkrum nærmyndum sjást þær greinilega. blaöiö Við tökur á The Departed Kvikmyndin The Departed sem nýlega var tekin til sýninga í kvik- myndahúsum hér á landi hefur feng- ið afbragðsdóma erlendis. LeikstjórimyndarinnarMart- in Scorsese sem er einn af virtustu leikstjórum vest- anhafs og þekktur fyrir sögulegar stórmyndir hefur lýst því yfir að þetta verði siðasta stórmynd hans í bili. eru ■ Endurgerð Bandaríkjamenn mjög hrifnir af því að endur- gera kvikmyndir. Scorsese hefur þó aðeins endurgert eina kvikmynd áður, en það var Cape Fear sem var gerð 1992. Kvikmyndin The Departed er end- urgerð kínversku spennumyndarinn- ar Infernal Affairs eða WuJianDao frá árinu 2002. Þrátt fyrir að sögu- þráðurinn í The Departed sé sá sami og í WuJianDo hefur töluvert verið brugðið frá upprunalegu útgáfunni. Ástæðan er sú að Scorsese hefur ekki séð fyrri myndina. ■ Brad og Jen og Departed Eins og ekki hafi heyrst nóg af sam- skiptum Jennifer Aniston og Brad Pitt, þá er The Departed framleidd af fyrirtækinu sem þau stofnuðu sam- an, Plan B. Nú bíða menn spenntir ytra og vonast til þess að myndin hljóti Ósk- arsverðlaunin og þá sérstaklega fyrir leikstjórnina þar sem þá gefst mönn- um kannski tækifæri til þess að sjá Aniston og Pitt saman á ný og fagna með Scors- ese. Slúðurblöð ogpapa- rassar ytra þykja því líkleg til þess að halda The Departed á lofti í von um að ná heitum myndum af samskipt- um hjónanna fyrrver- andi og hinnar fögru Ang- elinu Jolie. ■ Robert De Niro afþakkar Stórstjarnan De Niro hefur verið í uppáhaldi leikstjórans um árabil en þeir hafa starfað saman í mynd- um á borð við Raging Bull (1980), Taxi Driver (1976) og GoodFellas (1990). Að þessu sinni hafnaði þó De Niro hlutverki mafíuforingjans Franks Costello og var Jack Nicholson því boðið hlut verkið. Leonardo DiCaprio leikur undir stjórn Martins Scorsese í þriðja skiptið og er ’ fjórða samstarfið áætlað 2008 með kvik- myndinni The Rise of Theodore Roosevelt. ■ Nicholson óviss Eftir að De Niro hafnaði hlutverk- inu í The Departed bauðst Nicholson það en hann hikaði við að taka það að sér. Nicholson hefur undanfarin ár aðallega verið í grínmyndum eins og As Good As It Gets (1997) og Something’s Gotta Give (2003). Hann hefur því ekki sést í hlutverki ill- mennis í dágóðan tíma og var hann að sögn hræddur um að finna sig ekki í því aftur. Breytti handritinu Jack Nicholson er stór stjarna og var hann sagður með stjörnustæla á tökustað þar sem hann breytti handritinu iðulega og krafðist þess svo að Scorsese prófaði að taka atriði upp í hans útfærslu. Leikstjórinn gerði það víst oftar en einu sinni tilneyddur til þess að halda stjörnunni góðri. ■ Stripparar á tökustað Leonardo DiCaprio hefur löngum verið dáður af kvenþjóðinni og þegar það fréttist af honum við tökur við hliðina á súlustað þustu út tugir g- strengsklæddra ungmeyja sem vildu óðar hitta hann, hrópandi nafn hans í örvæntingu. WJ\MJ AFSLÁTTUR af valdri vöru Rýmum fyrir Allt ao Pils kr. 5.990 næs connection HÆOASMÁRA 4 SlMI S44 5959 Mottur .. .næstum því flottar Það er heldur langt síðan mottur (þykk yfirvaraskegg) voru móðins. Ef þær voru það þá einhvern tímann! Mottutískan er nokkurskonar andtíska. Skeggtíska sem er svo hrikalega hallærisleg að það þykir költað, fyndið og hugrakkt að safna í mottu. Earl í þáttunum My Name is Earl sportar þykkri mottu sem og frétta- maðurinn hjákátlegi Borat, Morgan Spurlock (sem gerði Super-size Me) og auðvitað fyrirmynd þeirra allra, Tom Selleck í Magnum Pl. Mottur hafa lengi verið tengdar við karlmennsku og völd þótt flestum finnist þær vera svo hrikalega hallærislegar að þeir hrein- lega finna til þegar þeir sjá karlmann með þykka mottu. Hvað þá setjist hann til snæðings og brauðmolar, sósa og bjórfroða festast svo pínlega í skegghárinu. HVAÐ SÁSTU Horfir helst á heimildamyndir „Síðasta mynd sem ég sá var Incon- venlent Truth heimildarmyndina með Al Gore sem var á kvikmynda- hátíð,“ segir Svala Björgvins tónlistarkona. ,Mérfannst hún æðisleg, ég var búin að bíða eftir henni og langaði mjög að sjá hana þar sem ég hef kynnt mér efnið og hef mikinn áhuga á því. Þetta kom mér í raun ekkert á óvart sem kom fram þar en ég hef fylgst með þessu í nokkurn tima og hef áhuga málefninu þannig að ég vissi hverju ég átti von á,“ segir hún. „Ég er annars mjög mikið fyrir heim- ildarmyndir og horfi meira á þær en kvikmyndir. Ef ég horfi á kvikmyndir þá finnst mér skemmtilegast ef þær eru sannsögulegar. Annars tek ég aldrei spólur er eiginlega alveg hætt því, það eru örugglega mörg ár síðan ég gerði það síðast.“ Fór siðást á Scary Movie í bíó „Það er langt síðan ég hef farið í bló, svo langt að síðasta mynd sem ég sá var Scary Movle 4,“ segir Daddi Disco plötu- snúður. „Hún varsvo hrikalega glötuð að hún var skemmtileg. Við vorum eina fólkið í bíó en skemmtum okkur stórkostlega yfir aulahúmornum. Mig langar að sjá Mýrina næst. Það er alveg bráðnauðsynlegt og frábært að heyra hvað hún gengur vel. Departed er einnig ofarlega á listanum. Hún lítur vel úr,“ segir Daddi og að hann sé laumuaðdáandi Martin Scorcese. „Ég er farinn að nota bíó sem púra afþreyingu, en þær myndir sem ég vill virkilega horfa á vil ég kaupa eða horfa heima hjá mér. Shawshank Re- demption hefur verið mín uppáhalds- mynd í mörg, mörg ár. Ég og frúin gistum einu sinni á afar skemmtilegu hóteli í London, þar var lúxusbíósalur og frábær veitingastaður. Úr varö að við sáum þá mynd i bíósalnum eftir velheppnaðan málsverö og hálfa rauðvínsflösku. Ég mæli hiklaust með því en hótelið heitir Covent Garden Hotel og er vinsælt hjá fólki í. bíóbransanum." Ætlar á Borat og Mýrina „Síðast sá ég myndina Börn og fannst hún mjög góð,“ segir IsgerðurElfa Gunnarsdóttir leikkona. „Leikurinn fannst mér sterkur, hann er eðlilegur og ekki ber áhonum sviðsleik sem stundum einkennir ís- lenskar kvikmyndir. Næst á döfinni er að fara og sjá Borat og Mýrina,“ segir Isgerður sem gerði tilraun til þess að fara á Borat um daginn en þá var uppselt. „Ég á mér engar uppáhalds- myndir en mér finnst annars myndir Kevin Smith skemmtilegar sem og Martin Scorcese þannig að ég mun væntanlega einnig gera mér ferð á nýjustu mynd hans Departed.“

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.