blaðið - 06.01.2007, Page 16
16
LAUGARDAGUR 6. JANUAR 2007
blaöiö
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Konu sem forsætisráð-
herra í vor?
„Ég er alltaf fylgjandi góðum árangri kvenna þannig að það er allt
mögulegt í þessum efnum. En þetta er seinni tíma spursmál."
Katrín fakobsitóttir, varaformaður
Vinstrihreyfingarinnar — græns fratnboðs
Vinstri grænir boða kvenfrelsi sem eitt af sínum aðalstefnumálum. Hér á landi hefur kona aldr-
ei gegnt stöðu forsætisráðherra, en fari svo eftir kosningar næsta vor að stjórnarandstöðu-
flokkarnir myndi meirihluta, gerir Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, formaður Samfylkingarinnar,
tilkall til forsætisráðherrastólsins. I Kryddsíldinni síðastliðið gamlárskvöld vildi Steingrímur J.
Sigfússon, formaður VG, hins vegar meina að hann væri ekki síður vel að honum kominn.
hjmw
Inga María er nýráðin til starfa hjá
lögreglunni á Egilsstöðum.
Mest heillandi við lögreglustarfið er
hversu fjölbreytt það er.
Mynd/Steimmn Astmindsdóttir
Vv- ■ -
Jk "
T' * „
SÉsSIÉÍÍÍSlfg
„Langaði alltaf að verða lögga"
HEYRST HEFUR...
\T ý auglýsingaherferð
X N Kaupthings hefur verið
mikið í umræðunni síðustu
daga, meðal annars hafa
verið vangaveltur um hversu
marga peninga auglýsingin
með John Cleese kunni að
hafa kostað. Fólk virðist vera
orðið frekar
þreytt á
glansmynd-
arímynd-
arsköpun
bankanna
sérstaklega
í ljósi þess
að flestir eru hvort sem er
bundnir bankanum sínum
órjúfanlegum böndum í
formi skulda. Nú gengur
manna á milli kostulegur
fjöldapóstur þar sem búið er
að gera stílfæringar á annars
smekklegum auglýsingum
Kaupthings. Auglýsingarnar
sýna grátandi fólk og slag-
orðin segja til dæmis: Torfi
Halldórsson skuldar milljónir
hjá Kaupþingi. Grínið gerir
kannski skuldahala og þunga
vaxtabyrði eilítið léttari að
bera.
Eitt vinsælasta áramóta-
mótaheitið um þessi
áramót er eins og árin sem á
undan fóru:
Að taka heils-
una í gegn.
Þrátt fyrir að
Islendingar
séu alltaf
fleiri og fleiri
að gera heils-
una að „lífsstíl“ eru átökin
enn til staðar og janúarmán-
uður sá vinsælasti í þeim
efnum. Heilsuátakið teygir
sig yfir í netheima þar sem
vefritarar blogga um sigra og
vonir í tengslum við átökin.
Sigmar í Kastljósinu er meðal
þeirra sem eru í heilsuátaki og
er þegar farinn að finna mikla
breytingu á sér eftir fyrsta dag-
inn í átakinu og er það öðrum
mikil hvatning til að taka sig á
og setja heilsuna í fyrsta sætið.
Það er draumastarf margra í
æsku að verða lögga þegar þeir verða
stórir. Inga María Warén Arnadóttir
átti sér þann draum þegar hún var
lítil en lagði hann reyndar á hilluna
og lærði tækniteiknun og starfaði
við það. Það var síðan fyrir rúmu
ári að hún fann að draumurinn um
að starfa sem lögreglumaður blund-
aði enn með henni og hún dreif sig í
Lögregluskólann í byrjun árs 2006.
„Eg ákvað að prófa að fara í inn-
tökuprófið og komst inn og þá var
ekki aftur snúið. Námið er mjög
skemmtilegt og þetta var frábær
tími þar sem maður fær tækifæri
til að prófa ýmsa hluti sem maður
hefur aldrei fengið tækifæri til að
prófa áður,“ segir Inga María. I
sumar starfaði hún hjá lögreglunni
í Hafnarfirði í fjóra mánuði sem
hluta af námi sínu. Inga María segir
að það hafi einu sinni komið fyrir að
hún hafi efast um hvort starfið hent-
aði henni en það var þegar hún var,
nú í sumar, farþegi í lögreglubifreið
sem valt á leið í útkall. Inga María
ákvað þó að láta slíkt ekki á sig fá
og hún útskrifaðist 8. desember sl.
I framhaldinu réð hún sig til starfa
hjá lögreglunni á Egilsstöðum.
„Ég hóf formlega störf 3.janúar og
er búin að vinna tvær vaktir. Mér
líst mjög vel á starfið og það er bæði
fjölbreytt og spennandi auk þess
sem samstarfsfólk mit.t er einstak-
lega hjálplegt og skemmtilegt.“
Hnífstunga á fyrsta degi
Inga María hefur þegar fengið
að kynnast ýmsu í nýja starfinu
og á sinni fýrstu vakt má segja að
hún hafi stokkið beint í djúpu laug-
ina. „Ég tók að mér aukavakt á
gamlársdag og fyrsta útkallið sem
ég sinnti var hnífstungumál á Kára-
hnjúkum. Það hafði orðið rifrildi
á milli tveggja manna sem endaði
með hnífstungu. Við fórum fjögur
á vettvang, þannig að ég fékk að
fylgjast með, enda erfitt að takast
á við svona alvarleg mál. Þetta er
nú ekki daglegt brauð þegar kemur
að löggæslu í umdæminu en lær-
dómsríkt og verður sennilega til
þess að fyrsta vaktin verður þeim
mun minnisstæðari í mínum huga,“
segir Inga María.
Rannsóknarstörf heilla
Inga María segir að það sem sér
hafi fundist einna mest heillandi
við lögreglustarfið væri hversu fjöl-
breytt það er. „Þú veist aldrei hvað
hver dagur ber í skauti sér. Starfið
hér á Egilsstöðum er frekar ólíkt
því sem gengur og gerist í Reykjavík
til að mynda, þar sem umdæmið er
mjög stórt og lögreglan sinnir fjöl-
breyttum verkefnum, meðal annars
í tengslum við tollgæslu.“
Hjá lögreglunni á Egilsstöðum
starfa þrjár konur og sex karlar
þannig að hlutfall kvenna í umdæm-
inu er frekar hátt og Inga María segir
að það sé hæsta hlutfall kvenna í lög-
regluumdæmi sem þekkist á landinu.
Inga María hlær þegar hún er
spurð að því hvort draumurinn sé
ekki að verða rannsóknarlögregla
í framtíðinni og hvort það sé ekki
draumur sem blundi í öllum lögreglu-
mönnum. „Það er aldrei að vita hvað
maður gerir þegar fram líða stundir.
Rannsóknir eru mjög heillandi en
fyrst um sinn ætla ég að einbeita
mér að þessu nýja starfi. Ég er enn
að læra þannig að allt getur breyst."
Hvað bar hæst
í vikunni?
Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður
TV /Tér þótti niðurstaða Hér-
1.VI. aðsdóms Reykjavíkur í
Kjarvalsmálinu vera stórmerki-
leg. Þarna er verið takast á um
athyglisverða hluti og grunnur
heils listasafns stendur og fellur
með þessum dómi. Þetta er stórt
mál og það verður athyglisvert
að fylgjast með framhaldinu."
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri
Skjás eins
Hæst hjá mér hefur borið að
síðustu útvarpsstöðvarnar
sem reyndu að þrífast fyrir utan
365 voru keyptar af veldinu. Eina
ferðina enn hefur 365 keypt upp
alla samkeppni á markaðinum.
Að öðru leyti var vikan nokkuð
tiðindalaus hvað mig varðar."
Örn Árnason, leikari og flugeldasali
Mér fannst stórmerkilegt að
þeim skyldi takast að klára
að dæla olíunni úr flutningaskip-
inu Wilson Muuga. Þegar maður
sá skipið á strandstaðnum var
erfitt að ímynda sér að það
væri hægt. En þeim tókst það
og afstýrðu með þvi gríðarlegu
umhverfisslysi."
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
7 9 5
5 6 9 1
9 2 3
7 8 2 6
2 5 1
6 8 4 5
6 2 3 7 4
3 7 9
5 2 4 6
4 6 1 3 7 2 5 8 9
5 2 8 4 6 9 3 7 1
7 9 3 5 8 1 6 2 4
2 5 4 9 1 3 8 6 7
3 7 6 2 4 8 9 1 5
8 1 9 7 5 6 4 3 2
9 4 2 6 3 7 1 5 8
1 3 5 8 2 4 7 9 6
6 8 7 1 9 5 2 4 3
eftir Jim Unger
3-17__________________© LaughingStock Intemational Inc./dist. by Uniled Media, 2004
Ég er löngu buinn að gleyma hversu
gamall ég er, held ég sé um 22 ára.