blaðið - 06.01.2007, Síða 27

blaðið - 06.01.2007, Síða 27
blaöiö LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 27 - Nú er runninn upp sá tími þegar fólk leggur mikið upp úr því að ná af sér aukakílóunum sem það nældi sér í yfir jól og áramót. Þessa dagana leggur þjóðin því í auknum mæli leið sína í lík- amsræktarstöðvar. „Það er kannski í eðli fslendingsins að taka allt með stæl, fara allt eða ekkert leiðina. Á þessum árstíma þegar fólk var kannski tvær vikur í veisluáti þarf breytingin hins vegar ekki að fel- ast í algjörum viðsnúningi heldur í varanlegum litlum breytingum hér og þar. Það þýðir ekkert að fara í skyndihjálp í janúar og slaka síðan á fram að næstu jólum," segir Ág- ústa fohnson, líkamsræktarþjálfari og framkvæmdastjóri líkamsrækt- arstöðvarinnar Hreyfingar. „Oft er það þannig að fólk týnir sér í góðgæt- inu og fer út yfir skynsamleg mörk. f kjölfarið fer því að líða illa og vill breyta mataræðinu. Þá fer það að fylla matarkörfuna af gulrótum og káli og ætlar að byrja nýtt líf en það gengur yfirleitt ekki því hið mikil- væga jafnvægi skortir. Það fer að síga á ógæfuhliðina og fólk fer aftur í sama farið. Ég boða hins vegar skynsömu leiðina því það er hún sem virkar til lengri tíma.“ Ertu ekki meinlœtakona í matarœði? „Nei, ég er alls ekki meinlætakona. Ég hef mikinn áhuga á hollustu í víðum skilningi. Það er lífsnauðsyn fyrir mig að hreyfa mig reglulega en ég hef ekki gaman af því að æfa á öfgafullan hátt þannig að ég sé sífellt undirlögð af strengjum og þreytu. Ég vil hreyfa mig fyrst og fremst til að mér líði vel. Ég hef haft að leiðarljósi að allt er best í hófi. Ég er hins vegar nautna- seggur og það er ekki síst þess vegna sem ég leiddist í upphafi út í líkamsræktina. Ég fann að ég varð að hreyfa mig til að geta borðað það sem mig langaði í. Á hverjum ein- asta degi fæ ég mér súkkulaðimola. Ég fæ mér dökkt súkkulaði sem mér finnst langbest og fæ mér lítið. Þegar ég var yngri átti ég til að klára allan nammipakkann. Svo eldist maður og þroskast og lærir að það er nóg að fá sér lítið til að líða vel. Maður finnur að maður getur ekki boðið líkamanum upp á hvað sem er.“ Jarðbundin kona Þú ert ekki bara líkamsræktar- þjálfari heldur líka framkvæmda- stjóri stórs fyrirtækis. Er viðskipta- heimurinn ekki harður heimur? „Harður heimur en skemmtilegur. Ég kenni tvisvar í viku þannig að aðalstarf mitt er sem framkvæmda- stjóri. Það á vel við mig. Ég er komin af viðskiptafólki, faðir minn er fyrr- verandi forstjóri Heimilistækja. Við- skiptaáhuginn er kannski svolítið í blóðinu. Ég stofnaði líkamsrækt- arstöð árið 1986 þegar sú starfsemi var að hefjast á íslandi. í dag er þessi vakning komin á mjög skemmtilegt stig og er orðin að alvöru bisness en þegar ég var að hefja starfsemina var litið á hana eins og kjánalegt sprikl hjá einhverjum stelpum.“ Við höfum verið að tala um mik- ilvægiþess að rækta líkamann en hvað með sálina? KAUPA 5ELJA GíEFA ÞIGGXA 5KJPTA blaöið'- SMAAUQLYSINQAR@8LAD1IXNET „Að rækta líkamann hjálpar sálar- ástandinu. Við hjá Hreyfingu höfum unnið með Geðrækt og öðrum sam- tökum þar sem fólk glímir við and- lega erfiðleika. Við sjáum hversu mikil áhrif líkamleg hreyfing hefur til batnaðar. Margir geðlæknar og sálfræðingar eru beinlínis farnir að beina því til skjólstæðinga sinna að hreyfa sig reglulega. Ég er sannfærð um að með því að hreyfa sig reglu- lega þá stuðlar maður að auknu andlegu heilbrigði. Sjálf hef ég alltaf verið mjög bjartsýn og í góðu and- legu jafnvægi. Ég held að hluti af því að ég er þannig sé vegna þess að ég hef alltaf hreyft mig mikið.“ Ertu mjögjarðbundin kona? „Já, ég er það. Ég á til mína róm- antísku hlið en mér finnst róman- tík ekki þurfa að vera í einhverjum ákveðnum búningi. Notalegar sam- „Þegar ég var að hefja starfsemina var litið á hana eins og kjánalegt sprikl hjá einhverjum stelpum." verustundir með þeim sem maður elskar finnst mér vera rómantík, hvar sem þær eru. Ég þarf ekki á því að halda að samverustundir séu fullkomnaðar með rósum og kerta- ljósi, þótt það geti auðvitað verið yndislegt." Vinátta sem varð að ást Þú ertgift Guðlaugi Þór Þórð- arsyni, alþingismanni Sjálfstæðis- flokksins. Hefurðu mikinn áhuga á stjórnmálum? „Já, ég hef mikinn áhuga á stjórn- málum sem þátttakandi í gegnum Gulla en ekki sem beinn þátttakandi. Ég var um tíma varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og uppgötvaði þá að þetta pólitíska pex átti ekki við mig. Þegar maður rekur fyrirtæki þá er maður í um- hverfi þar sem hlutirnar gerast hratt og lögð er áhersla á framkvæmdir. Þar er ekki staðið í pexi við stjórnar- andstöðu. Ég kæri mig ekki um að starfa í stjórnmálaumhverfi en mér finnst gaman að fylgjast með pólit- íkinni af hliðarlínunni. Ég sé hvað Gulli hefur ótrúlega gaman af þessu og fyrir vikið verður áhugi minn meiri.“ Það var mikið fjölmiðlafárþegar þið tókuð saman. Hvernigfannstþér sú umfjöllun? „Auðvitað hefði ég viljað losna við þá umfjöllun en hún hafði engin djúpstæð áhrif á okkur Gulla. Við tókum henni mátulega hátíðlega og vissum að hún myndi ganga yfir sem hún gerði. Þetta var ekkert sem við höfðum áhyggjur af.“ Vissirðu snemmaþegarþú kynnt- ist honum að hann væri maður fyrir þig? Nei, alls ekki. Við kynntumst fyrir löngu síðan og þá var ég gift kona. Við urðum góðir vinir og með tímanum þróaðist vináttan í ástar- samband. Ég kom með tvö börn inn í sambandið. Það hefur gengið vel og þau hafa náð mjög góðum tengslum við Gulla. Ég held að það gæti ekki gengið betur. Stelpan er 15 ára og er að ganga í gegnum gelgjuskeiðið og auðvitað koma upp minni háttar árekstrar en það er kannski ekkert öðruvísi en myndi vera hvort sem fósturpabbi eða alvörupabbi ætti í UTSALA UTSALA UTSALA UTSALA rafmagnsrúm dunsœngur & koddar z ► ? ^v nattbord 5"'.. eldhúsborð eldhússtólar barstolar borðstofa sjónvarpsherbergið stofa svefnsófar sofasett & hornsófar stolar / casper www.toscana.is Ui» OPIÐ mán - föst 10-18 laug 11-16 HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090 HÚSGÖGNIN FAST EINNIG IHÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.