blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 33

blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 33
blaftiA LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 33 inum var ég alltaf að hanna bakarí sem ég vildi opna. Ég var búinn að leita í nokkur ár að rétta staðnum þegar húsnæði á Kleppsveginum kom upp í hendurnar á mér. Ég var mjög ánægður með staðsetninguna því í dag er tími fólks af svo skornum skammti að það er best að vera við góða umferðaræð þannig að fólk geti stokkið inn,“ segir Jói og bætir við að velgengni sín sé tilkomin vegna þess að hann leggur metnað sinn i það sem hann er að gera. „Besta auglýs- ingin er þegar fólk fær góða vöru og langar í hana aftur. Það hjálpar líka til að ég og kona mín, Unnur Helga Gunnarsdóttir, erum bæði að vinna við fyrirtækið auk þess sem starfs- fólkið er frábært. Bróðir minn hefur líka staðið með mér allan tímann en hann er lærður bakari og sér um bak- aríið. Svo er ég voða duglegur að ýta sjálfum mér áfram. Þótt það sé mikið að gera í bakaríinu þá stendur konan við bakið á mér svo ég geti skrifað bækur og verið með sjónvarpsþætti." Alltaf haft áhuga á eldamennsku Eldsnöggt með Jóa Fel hefur verið á dagskrá í fjögur ár og fyrir jól var 51. þátturinn sýndur. „Ég er þannig að ég vil alltaf taka næsta skref, alveg sama í hverju það er og þegar ég byrj- aði með þættina var bakariið komið á gott ról. Ég vildi því gera þátt þar sem ég færi ekki beint inn á svið kokkanna heldur inn á það sem fólk væri að gera heima hjá sér í eldhús- inu. Ég ákvað að búa til mat sem ég geri dagsdaglega og ég held að þáttur- inn sé góður út af því að fólk horfir á hann, getur farið út í búð, keypt allt hráefnið og farið heim að elda án þess að þurfa að spá mikið í því. Ég hef alltaf haft áhuga á eldamennsku, ég er ekkert endilega góður kokkur en ég er góður að elda. Ég elda mikið heima hjá mér, konan er mjög góður kokkur og eldar stundum en ég er svo frekur að ég tek bara upp pottana og hnífana. Við eldum hollan, góðan og einfaldan mat á virkum dögum en svo leikum við okkur svolítið um helgar og þá leyfum við okkur hvað sem er,“ segir Jói og bætir við að þætt- irnir séu allir teknir á heimili hans og Unnar. „Ég er orðinn vanur því að vera með kvikmyndatökuvélar heima hjá mér og heimilið er algjör- lega undirlagt þegar verið er að taka upp. Við tökum upp einn þátt á dag og það er ekkert annað gert á heimil- inu þann daginn enda eru þetta um 8-9 klukkustunda tökur fyrir einn 30 mínútna þátt.“ Er svolítill sprellikarl Aðspurður hvort sólarhringurinn nægi honum til að gera allt sem þarf að gera segir Jói að svo sé. „Ég og konan skipuleggjum okkur saman. Allt sem við erum að gera gerum við saman, hvort sem það eru sjónvarps- þættirnir, bakaríið, heimilisstörfin eða maturinn. Við nýtum tímann mjög vel, ég vinn vel fram í tímann og er alltaf vel undirbúinn enda erum við skipulögð. Það er reyndar aðallega konan sem er vel skipulögð og hún skipuleggur þetta allt fyrir mig. Ég er svolítill sprellikarl, vil fara og gera allt og vera alls staðar en hún heldur okkur niðri á jörðinni,“ segir Jói sem viðurkennir að hann fái oft spurningar um hvernig sé að vinna saman allan daginn. „I dag gæti ég ekkert annað og ég gæti ekki hugsað mér að hafaþetta öðruvísi. Mér finnst þetta rosalega gott því við vinnum svo vel saman og höfum bæði áhuga á því sem við erum að gera. Auðvitað getur vinnan stundum verið erfið en hún er aðallega erfið þegar ég þarf að vinna mikið á nóttunni. Bakarar mæta kl. 3:30 að morgni, þótt ég sé hættur því í dag þarf ég stundum að gera það og þá get ég gleymt því að fara snemma að sofa. Það getur verið erfitt að halda utan um svona stórt batterí, við erum með tæplega 40 manns í vinnu en ef það er orðið of mikið að gera hjá okkur þá setjumst við niður og finnum út úr því.“ Ást við fyrstu sýn Jói heldur glæsilega afmælisveislu í kvöld í World Class og þau hjónin hafa skipulagt heljarinnar dagskrá af því tilefni. „Alltaf þegar við höldum veislu þá gerum við það vel,“ segir Jói oghlær. „Þegar við kynntumst þávar að ást við fyrstu sýn af beggja hálfu. g opnaði bakaríið mitt á Kleppsvegi og hún kemur að versla á fyrsta degi. Ég fór strax að tala við hana, það hittist þannig á að við vorum bæði á lausu og upp frá því byrjuðum við að vera saman. Það má segja að þetta séu örlögin, ég opnaði bakarí til að finna konuna og í dag eigum við fjögur börn,“ segir Jói og bætir við að hann sé ekki viss um hvort eitthvert þeirra muni feta í fótspor hans. „Ég held að maður sjái þetta ekki alveg strax en ég vona það. Ég held að börnin muni örugglega mennta sig vel og fara í það sem þau langar að gera en svo munu þau vera hjá okkur með aðra höndina og vera okkur innan handar í þessu sem við erum að gera.“ Konan er besti vinur minn Jói segist því vera mjög vel giftur og einstaklega heppinn. „Eg var hepp- inn því ég fann konu af gömlu kynslóðinni. Eins og fólk hefur séð í þáttunum þá er alltaf hreint og fínt í kringum mig en það er ekki það að ég hafi þrifið heldur gerir konan það. Heimilishaldið er alveg í föstum skorðum og hún vill ekki sjá mig í þvottahúsinu. Það er orðið þannig í dag að sumt þarf ég ekkert að hugsa um, hún sér um þá hluti', hvort sem það er í bakarí- inu eða hér heima. Það sem ég er ánægðastur með er hvað við erum samstiga með það sem við erum að gera. Mér finnst það skipta mestu máli og ég finn það að konan mín er besti vinur minn,“ segir Jói og bætir við að lífið sé mjög gott. „Ég er með ákveðið mottó sem ég heyrði um dag- inn. Vinur minn Þráinn Bertelsson, leikstjóri og rithöfundur með meiru, spurði mig af hverju ég opnaði ekki veitingahús, pítsustað og fleiri bak- arí. Ég sagði að ég nennti því ekki, ég hefði það svo gott heima hjá mér og þyrfti ekkert meira. Þá sagði hann þessi fleygu orð: Ánægður er sá sem er glaður með það sem hann á. Allt sem við erum að gera í dag gengur mjög vel og við þurfum ekki meira því ég er svo ánægður með það sem égá.“ svanhvit@bladid. net Subaru er á sérlega gódu verdi þessa dagana og ad sjálfsögdu fylgja frí vetrardekk med. Komdu og reynsluaktu Subaru 1' dag! Sedan verd frá 2.490.000,- Wagon verd frá 2.640.000,- Cross Wagon verd frá 2.760.000,- SUBARU WKKk „Ég á ættingja út um allt land þannig ad madur er oft á ferdinni. Vegirnir geta verid svakalegir, ekki síst íjanúar og febrúar. Ég vil vera vid öllu búinn." Þeir sem kaupa sér Subaru einu sinni, halda áfram ad kaupa sér Subaru. Þeir vita ad hann er allt ödruvísi en adrir bílar. Boxer vélin liggur lárétt í vélarrýminu svo þyngdarpunktur bílsins er mjög lágur sem gerir hann miklu stödugari í öllum akstri. AWD sídrifid tryggir þad ad aflid dreifist jafnt og örugglega til hjólanna. „Ég vil hafa eins mikla stjórn á adstæd- um og hægt er. Madur rædur bara vid svo margt á Subaru." Subaru hefur verid seldur á Islandi í yfir 30 ár. Reynslan af bílnum vid þær erfidu og óvenjulegu adstædur sem hér eru hefur gert Subaru ad samnefnara fyrir endingu, hörku og úthald. Raunar er hvergi selt meira af Subaru midad vid höfdatölu en einmitt á Islandi. Þad ætti enginn ad kaupa sér bíl án þess ad koma fyrst og reynsluaka Subaru. Spyrdu bara Subarueigendur. Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega gáfu- legustu bílakaup sem þú gerir: „Hey, þetta er ísland!" Ingvar Helgason Sævarhöfða 2 Slmi 525-8000 Opið: Mán. - fös. kl. 9:00 - 18:00. Lau. 12:00 -16:00. Umboðsmenn Akureyri Njarðvík Höfn I Hornafirói Reyðarfirói um land allt 464-7940 | 421-8808 478-1990 474-1453 JÓNSSON S LE'MACKS • jl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.