blaðið - 06.01.2007, Page 38
38 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007
blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Romario enn aö
Brasilíski sniliingurinn fornfrægi, Romario, er ekki dauður úr öllum æðum þrátt fyrir
að verða orðinn 41 árs. Hann gekk til liðs við sitt gamla féiag Vasco de Gama í gær og
ætlar sér að ná þúsund marka múrnum, en hann hefur að eigin sögn skorað 987 mörk á
litríkum ferlí sinum. Aðeins einn maður hefur afrekað að skora yfir 1000 mörk á ferlin-
um; landi hans, Pelé.
Skeytin inn
Alan Curbishley hefiir
keypt sinn fyrsta mann til
West Ham. Það er fyrrum
fyrirliði Fulham, Luis Boamorte,
en Eggert Magnússon og félagar
náðu að freista þessa 29 ára gamla
Portúgala með þriggja og háífs árs
samningi ásamt töluvert hærri
launum en hann fékk hjá Ful-
ham. Stjóri Fulham, Chris
Coleman, sagðist
ekkigetahaldið
leikmönnum sem
vilduekkivera
hjáliðinu:
Hinn gamalreyndi varnarjaxl
David Unsworth hefur
gengið til liðs við Wigan
eftir að hafa verið settur út í
kuldann af Neil Warnock, stjóra
Sheffield United. Unsworth, sem er
33 ára gamall, er greinilega inni í
framtíðarplönum Pauls Jewell hjá
Wigan, en lið hans berst hatramm-
lega við falldrauginn eftir að hafa
komið liða mest á óvart á síðustu
leiktíð. Þeir leika gegn Portsmouth
í ensku bikarkeppninni í dag og
verður spennandi að sjá hvernig
Unsworth tekur
sig út í hinum
bláabúningiWig-
an, en hann
lék lengst
afmeð
Ever-
ton'
Handhafi Gullskósins er eftirsóttur:
Hörð barátta
um Huntelaar
Hinn 23 ára Hollendingur Klaas
Jan Huntelaar er einn eftirsóttasti
framherjinn í boltanum þessa dag-
ana. Lið á borð við Manchester Un-
ited, Arsenal, AC Milan og Juventus
hafa öll augastað á þessari markama-
skínu Ajax frá Amsterdam.
Leikmaðurinn hefur sjálfur gefið
út að hann hrífist mikið af Manc:
hester-liðinu og gefur það Sir Alex
Ferguson eflaust forskot á önnur
lið. Huntelaar var keyptur til Ajax
fyrir síðasta tfmabil á 6,4 milljónir
punda frá Heerenveen og sló strax
í gegn. Hann skoraði 33 mörk sem
nægði til þess að hreppa Gullskó-
inn, afrek sem fyrirrennari hans hjá
Ajax og núverandi landsliðsþjálfari
Hollands, Marco Van Basten, vann
einnig. Huntelaar hefur einmitt
verið líkt við bæði Basten og Ruud
Van Nistelrooy, en þeir hafa allir
verið taldir í hópi hinna fullkomnu
framherja; hafa bæði styrk, tækni,
hraða og markheppni eins og best
verður á kosið.
□pnunartími
Mán - fös...
Laugardaga
Sunnudaga.
Hole in One • Bæjarlind 1-3 • 201 Kópavogur • Sími: 577 4040 • www.holeinone.is
Steven Gerrard skorar í úrslita-
leiknum gegn West Ham
Enski bikarinn fer aftur af stað:
Risaslagur á
Anfield
■ Heimavöllurinn gæti ráöiö úrslitum
■ Henry kominn úr meiðslum
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Bikarmeistarar Liverpool mæta Ar-
senal í þriðju umferð ensku bikar-
keppninnar í dag. Keppnin er elsta
og virtasta útsláttarkeppni heims
og má rekja hana til ársins 1871. Þar
mætast lið úr öllum stigum deilda-
keppna Englands og er keppnin hinn
fullkomni vettvangur óvæntra úr-
slita, þar sem minni spámenn hafa
ítrekað komið stærri liðum í opna
skjöldu.
Stærstu slagirnir eru vafalaust
milli stórliðanna í úrvalsdeildinni
en þeir eru fjórir að þessu sinni:
Portsmouth - Wigan, Everton - Black-
burn, Manchester United - Aston
Villa og stórleikur umferðarinnar, Li-
verpool - Arsenal.
Liverpool er núverandi handhafi
titilsins og krafan frá stjóra liðsins,
Rafael Benitez, er að vinna hann
aftur. Rauði herinn mun njóta stuðn-
ings áhorfenda á Anfield Road sem
getur skipt sköpum enda Liverpool-
liðið með frábæran heimavallarár-
angur í gegnum tíðina; hefur ekki
tapað gegn ensku liði síðan í október
2005, þá gegn Chelsea 1-4. Síðasti tap-
leikur liðsins gegn Arsenal á heima-
velli var í október 2003 og því úr
vöndu að ráða fyrir Skytturnar.
Leikmenn Arsenal eru þó skeinu-
hættir enda altalað að á góðum degi
spili þeir besta fótboltann á Englandi
og þó víðar væri leitað. Fransmað-
urinn fótfrái, Thierry Henry, hefur
náð sér að fullu eftir hálsmeiðsli og
mun leiða sókn Arsenal i leiknum,
en hann er leikmaður sem getur og
hefur unnið leiki nánast upp á
sitt eindæmi. „Henry er frábær
leikmaður sem er okkur mikils
virði. Hann hefur náð ótrúlega vel
saman með Robin Van Persie sem
er sífellt að bæta sig og því von-
andi að þeir nái að stríða vörn
Liverpool í leiknum,“ sagði
knattspyrnustjóri Arsenal,
Arsene Wenger.
Stjórar liðanna
berjast báðir við
meiðsli leikmanna í
herbúðum sínum. Hjá
Liverpool eru Zenden,
Sissoko og Harry Ke-
well frá en Craig Bellamy
mun verða klár í slaginn eftir
að hafa tognað á hásin. Af
SIGURSÆLUSTU LIÐIN
Lið Sígrar
Manchester United 11
Arsenal 10
Tottenham Hotspur 8
Liverpool 7
Aston Villa 7
SIGURVEGARAR
SÍÐUSTU 19 ÁRA
2005-06 Liverpool
2004-05 Arsenal
2003-04 Manchester United
2002-03 Arsenal
2001-02 Arsenal
2000-01 Liverpool
1999-2000 Chelsea
1998-99 Man Utd
1997-98 Arsenal
1996-97 Chelsea
1995-96 Manchester United
1994-95 Everton
1993-94 Manchester United
1992-93 Arsenal
1991-92 Liverpool
1990-91 Tottenham Hotspur
1989-90 Manchester United 1
1988-89 Liverpool
1987-88 Wimbledon
1986-87 Coventry
Arsenal-leikmönnum er helst að telja
Emmanuel Adebyor, Johan Djourou,
Emmanuel Eboue, Freddie Ljung-
berg og Willliam Gallas, en þeir
Julio Baptista og Theo Walcott verða
að öllum líkindum í hópnum eftir
minniháttar meiðsli. Það er ljóst að
Arsenal líður meira fyrir meiðsl leik-
manna, sérstaklega í vörninni. Li-
verpool getur þó stillt upp sínu
j sterkasta liði þó margir gráti
fjarveru Sissoko sem hefur
verið vinnusamur fyrir liðið.
Benitez þarf þó ekki að kvíða
miklu enda ekki amalegt að
geta stillt þeim Steven Gerr-
ard og Xabi Alonso saman
á miðjunni: „Þeir búa
báðir yfir frábærum
skotum og send-
ingum og munu
leitast við að mata
framherjana í sókn-
inni,“ sagði Benitez
á blaðamannafundi.
Leikurinn hefst
klukkan 17:15 í dag að ís-
lenskum tíma.