blaðið - 06.01.2007, Síða 45

blaðið - 06.01.2007, Síða 45
blaðið LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 45 Á Skjá einum mánu- dag klukkan 21.00 Hikandi hetjur Bandarísk þáttaröð sem hefur slegið í gegn og er vinsælasta nýja þáttaröðin í bandarísku sjónvarpi í vetur. Hún hefur fengið frábæra dóma og gríð- arlegt áhorf. Heroes er fersk og spennandi þáttaröð um venjulegt fólk með óvenjulega hæfileika. Aðalsöguhetjurnar héldu að þær væru eins og allir aðrir þar til þær vöknuðu einn daginn með yfirnáttúrlega hæfileika. í fyrstu virðist fátt sem tengir þetta fólk en smám saman tvinnast sögur þess saman. Þetta er þáttaröð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara og er óhætt að lofa spennu strax frá fyrsta þætti. Sýn laugardagur klukkan 17.10 Meistaraslagur á Anfield Bein útsending frá sannköll- uðum stórviðburði í ensku bikarkeppninni þar sem Liverpool tekur á móti Arsenal á Anfield Road. Sjaldan eða aldrei hefur verið boðið upp á slíkan stórleik strax í 3. umferð en Liverpool er handhafi bikars- ins og Arsenal vann keppnina árið áður. Liverpool-menn hafa verið að rétta úr kútnum eftir slaka byrjun og sitja nú í þriðja sæti ensku deildarinnar en Arsenal-menn eru í því fjórða. Það er því von á hörkuleik í Liverpool. RÚV sunnudag kl. 15.20 Fróðleikur um astma og ofnæmi Mynd þessi er framleidd af Astma- og ofnæmisfélaginu en mikill skortur hefur verið á myndrænu fræðsluefni um astma og ofnæmi hér á landi. I myndinni er fjallað um eðli og einkenni astma og ofnæmis og hvernig helst er hægt að draga úr áhrifum þessara sjúkdóma. [ myndinni svara læknarnir Davíð Gíslason og Gunnar Jónasson nokkrum áleitnum spurningum um þessa sjúk- dóma. A undanförnum árum hafa fullkomnari lyf komið á markað og ýmis önnur með- ferðarúrræði. Rob Schneider: Vingjarnlegi aulabárðurinn Grínistinn Rob Schneider er orð- inn flestum vel kunnur þó svo að hans sérstæði húmor eigi ekki við alla. Hann hóf feril sinn eins og flestir aðrir bandarískir grínistar í uppistandinu. Um siðir vakti hann athygli stjórnenda hins vinsæla sjón- varpsþáttar Saturday Night Live og hóf hann störf þar árið 1989. Fyrst um sinn vann hann einvörðungu sem brandarasmiður en á skömm- um tíma tókst honum að vinna sér inn fast sæti í leikarahópnum og á árunum 1990 til 1994 var hann ein aðaldriffjöðrin íþáttunum. Persónu- sköpun hans þar vakti mikla athygli og sérstaklega varð skrifstofumað- urinn Rich vinsæll en hans atriði var að hitta hina frægu gestaleikara þáttarins við ljósritunarvélina og finna upp fáránleg gælunöfn fyrir þá Árið 1994 yfirgaf Schneider her- búðir þáttarins og tók til við að byggja upp kvikmyndaferil sinn. Fyrst um sinn lék hann hin ýmsu smáhlutverk í bíómyndum á borð við Judge Dredd, Down Periscope og Muppets in Space. Það var síð- an árið 1998 sem Schneider lék í myndinni Waterboy ásamt öðrum fyrrum Saturday Night Live-leik- ara, Adam Sandler. Sú mynd mark- aði viss tímamót á ferli hans því Rob Schneider hefur birst í nánast hverri einustu Adam Sandler-mynd eftir það. Ári seinna lék hann sitt fyrsta aðalhlutverk í kvikmynd- inni Deuce Bigalow: Male Gigolo þar sem hann fór með hlutverk mis- heppnaða fylgdarsveinsins Deuce. Eftir þá mynd hafa aðrar vinsælar myndir fylgt í kjölfarið á borð við The Animal og The Hot Chick. Þó svo að Rob Schneider njóti mikilla vinsælda meðal almennings falla kvikmyndir hans yfirleitt ekki í kramið hjá kvikmyndagagnrýn- endum. Hann mun því seint hljóta Óskarsverðlaun en hann getur þó huggað sig við það að hafa unnið hin frægu Razzie-verðlaun árið 2005 fyrir leik sinn í myndinni Deuce Bi- galow: European Gigolo. Þess ber þó að geta að Razzie-verðlaunin voru í flokknum versti leikarinn.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.