blaðið - 01.02.2007, Page 1
MENNING
» síða 16
22. tölublað 3. árgangur
fimmtudagur
1. febrúar 2007
.... .. FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
. «1 1 1 1 HEILSA , ■ konur
stundað fjallamennsku um árabil og
segir það góða leið til að halda sér
í formi og stunda útivist |sIða27
enda ABC-barnahjálpar en samtökin
eru frá og með deginum í dag orðin
g
að alþjóðlegum samtökum | síða26
Fjármálaóreiða Byrgisins kynnt fyrir ríkisstjórninni 2002:
Vissi af Byrgisóreiðu
■ Með ólíkindum að allir vissu ■ Árni hefði átt að fylgjast með ■ Enginn ábyrgur
Selma leikstýrir '
Selma Björnsdóttir eignaðist sitt
annað barn fyrir viku en hún leikstýrir
söngleiknum Sextán sem Verzlun-
arskóli íslands frumsýnir í kvöld.
Eiginmaðurinn, Rúnar Freyr, samdi
handritið og systur
hennar sáu um
danslistina. „Það er
komin upp söngleikja-
kynslóð sem sækir
gjarnan skólann.
Þetta hefur
verið afar
skemmti-
legt ferli
alltfráþvíí
haust.“
FRÉTTIR » síða 4
§ | | 12.000 Y
^ O ») 2100 1.347 / « •
Frjálslyndir óvissir
um flokksúrsagnir
Eftir Trausta Hafsteinsson og Ingibjörgu Báru
Ríkisstjórninni var gerð grein fyrir fjármálaóreiðu
Byrgisins með minnisblaði sem sent var frá utan-
rikisráðuneytinu. Því fylgdi greinargerð þar sem
nánar var farið yfir innihald þess. Farið var yfir
málið á ríkisstjórnarfundi í kjölfar skýrslu sem
tekin var saman árið 2002 af aðstoðarmönnum fé-
lagsmála-, heilbrigðis- og utanríkisráðherra.
„Eins og málið er vaxið er með ólíkindum ef allir,
sem vitneskju höfðu um þessa fjármálaóreiðu og
aðhöfðust ekkert, komast undan ábyrgð," segir
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar. Hún hefur óskað eftir upplýsingum um
hvernig málið var afgreitt hjá ríkisstjórninni.
Páll Pétursson, félagsmálaráðherra á árunum
1995 til 2003, man ekki eftir þessum tiltekna fundi
ríkisstjórnarinnar en segir að ríkisstjórninni hafi
verið ráðlagt að veita Byrginu brautargengi þrátt
fyrir fjármálaóreiðuna vegna ógæfufólksins sem
þar var hjálpað. „En til að koma í veg fyrir að
óreiðan héldi áfram var ákveðið að gera samning
við Byrgið og gera það að sjálfseignarstofnun sem
væri rekin með eðlilegum hætti. Sett yrði sérstök
stjórn og upp á þessa skilmála fengu þeir inni á
Efri-Brú,“ segir hann og bætir við: „Þetta er gert
þegar ég er að fara úr ráðuneytinu. Þá lágu drög
að samningi fyrir. Ég taldi víst að Guðmundur
myndi skrifa undir og standa við hann.“ Hann
segir að Árni Magnússon hefði átt að fylgast með
því að samningurinn yrði undirritaður. Hann sé
hins vegar horfinn úr stjórnmálum. „Ég sé ekki
hvar sök liggur og hvern sé hægt að krossfesta,
jafnvel þó einhver vilji sá blóð renna.“
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í
ráðherrana.
Tg*' Bryndís Schrani áhyggjufull Varmár-
35? samtökin mótmæltu fyrirhugaöri tengibraut
WL um Álafosskvosina i gær. Bæjarstjóranum
r_v:. pótti timasetningin afleit. mynd/eyþór
•% ■ mj ■'«* *■ •• ■■ ¥ ‘ ■ * . > •ý.T*
mL MfS
Varmársamtökin drógu íslenska fánann í hálfa stöng:
Kref jast lögbanns á tengibraut
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net
Varmársamtökin í Mosfellsbæ hafa krafist lög-
banns á fyrirhugaðar framkvæmdir tengibrautar
um Álafosskvosina. Samtökin hafa kært fram-
kvæmdina til úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála og vilja hnekkja úrskurði um-
hverfisráðherra sem taldi ekki ástæðu til að fara
með lagningu vegarins í umhverfismat.
„Bæjarstjórnin hefur frá fyrsta degi hunsað
kröfur okkar um að láta meta umhverfisáhrif
þessa steinsteypuferlikis," segir Sigrún Páls-
dóttir, einn forsvarsmanna samtakanna. „Þessi
framkvæmd mun hafa gríðarleg áhrif á bæinn
okkar, sem er einstakur í sinni röð. Að tíu þús-
und bílar fari hér um á sólarhring er nokkuð sem
enginn hér í kring vill að verði að veruleika og
því mótmæltum við formlega með því að flagga
í hálfa stöng.“
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar, segist lengi hafa vitað af mótbárum
samtakanna. Hinsvegar hafi rétt verið staðið að
framkvæmdinni. „Við höfum reynt að taka mið
af þeim tillögum sem samtökin hafa lagt fram.
Framkvæmdin hefur farið í lögformlegt ferli frá
A til Ö og nú síðast fengum við úrskurð frá um-
hverfisráðherra. Við höfum bara unnið okkar
vinnu,“ segir Ragnheiður og bætir við: „Hins-
vegar þykir mér dapurlegt að Varmársamtökin
skuli mótmæla með þvi að flagga í hálfa stöng
þegar verið er að jarðsyngja tveggja ára stúlku
í bænum á sama tíma. Slíkt er bæði ósmekklegt
og alger vanvirðing við íslenska fánann sem og
minningu stúlkunnar. Þetta sýnir bara í hvaða
tengslum samtökin eru við bæinn og bæjarbúa,
sem eru greinilega ekki mikil.“
» siða 36
Flottar meö töskur
Allar konur elska töskurnar
sínar og Hollywoodstjörnurnar
eru þar engar undantekningar.
Sienna Miller elskar til dæmis
sína franskættuðu YSL-tösku.
VEÐUR
» síða 2 I SÉRBLAÐ
» síður 17-24
Áfram hiti
Suðvestanátt, víða 8-13
metrar á sekúndu og
rigning eða skúrir, en
léttir til NA- og A-lands.
Hiti 1 til 7 stig.
Sérblað um
viöskipti og
fjármál fylgir
meö Blaöinu
ídag
Félagsmenn Samfylkingarinnar eru
19.820 talsins. Þeim hefur fjölgaö um
610 manns síðastliðið ár.
Úrsagnir úr Framsóknarflokknum voru
innan við 100 í janúar á þessu ári. Sjálf-
stæðisflokkurinn gefur ekkert upp.
Renault -
öruggari notaðir bílar
Veldu 5 stjörnu öryggi
lífsins vegna!
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 06/2003, 2000cc„ 5 dyra,
Sjálfskiptur, Grár, Ek. 50.000 þ.
Verð: 1.920.000
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 05/2003,1800cc„ 5 dyra,
Sjálfskiptur, Grár, Ek. 55.000 þ.
Verð: 1.680.0W - Tilbod 1.290.000
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 11/2003, 1600cc„ 5 dyra,
Beinskiptur, Grár, Ek. 51.000 þ.
Verð: 1.430.000
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 09/2005, 2000cc„ 5 dyra
Beinkskiptur, Grár, Ek. 22.000 þ.
Verð: 2.090.000
L
Grjóthálsi 1
bilaland.is
1
,575 1230,