blaðið - 01.02.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2007
blaöið
REYKJAVÍK
Keyrt á gangandi vegfaranda
INNLENT
Keyrt var á gangandi vegfaranda í miðbæ Reykja-
víkur síðdegis á mánudag. Hann var fluttur á slysa-
deild en slapp við alvarleg meiðsl, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu. Ökumaður stakk af en
lögreglan hafði uppi á honum.
HÓLMARDRANGUR
Lokun blasir við
Allt bendir nú til að hætta þurfi vinnslu hjá rækjuverksmiðj-
unni Hólmadrangi ehf. á Hólmavík í næstu viku vegna skorts
á hráefni. „Við sendum fólk ekki á atvinnuleysisskrá heldur
verður það á launum. Við fáum endurgreiðslu frá Atvinnuleys-
istryggingasjóði," segir framkvæmdastjórinn.
REYKJAVÍK
Handboitinn orsakaði hraðakstur
Sautján ára gömul stúlka mældist á 125 kílómetra
hraða á Vesturlandsvegi á þriðjudagskvöld. Skýr-
ing hennar á hraðakstri sínum var sú að hún var að
hlusta á lýsingu á viðureign fslands og Danmerkur
í útvarpinu og gleymdi sér.
Niðurstöður réttarkrufningar:
Áttu ekki þátt í
dauða mannsins
Mbl.is Samkvæmt niðurstöðu rétt-
arkrufningar, sem gerð var í kjöl-
far þess að karlmaður lést eftir að
hann var handtekinn í Reykjavík
á síðasta ári, bendir ekkert til þess
að lögreglumennirnir sem önnuð-
ust handtökuna hafi átt þátt í and-
láti hans.
Dánarorsök mannsins sam-
kvæmt krufningarskýrslunni er
svokallað æsingsóráðsheilkenni
og hefur neysla kókaíns og amfet-
amíns orsakað æsingsóráðið. Ekki
fannst hins vegar mikið magn af
efnunum í blóði hans. Talið er
að þetta óráð hefði ekki endað
jafn illa og það gerði ef maðurinn
hefði ekki verið með undirliggj-
andi hjartasjúkdóm.
Rannsókn málsins telst lokið og
hefur málið verið fellt niður því
ekkert kom fram við rannsóknina
sem þótti gefa tilefni til frekari að-
gerða af hálfu ríkissaksóknara.
Ríkislögreglustjóri vildi ekki
veita Blaðinu upplýsingar þegar
eftir þeim var leitað.
Greiðsludreifing — einföld og þægileg!
• engin stimpilgjöld
• engin lántökugjöld
• aðeins eitt símtal til útgefanda!
Láttu ekki áhyggjur af fjármálum íþyngja þér
að óþörfu - hringdu núna!
/
-------------V
ÚTSÖLULOK
GÖTUMARKAÐUR
Slökkviliðsstjóri um blandaða byggð í Orfirisey
fæstir
Hugmyndir að byggð við Órfirisey Þyrping vill
byggja á landfyllingu við olíubirgðastöðina í Örfirisey.
Alvarleg umhverfisslys hafa orðið við olíutanka.
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Það kom mönnum á óvart hversu
mikill skaði varð eftir brunann á
Bretlandi. Miklu máli skiptir hversu
þétt byggðin er og hvernig byggð
þetta verður. Það segir sig sjálft að
æskilegasta formið er byggð með sem
fæst af fólki í nágrenni stöðvarinnar
því stórskaði gæti orðið við bruna
þarna,“ segir Jón Viðar Matthíasson,
slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðis-
ins. Hann er formaður nefndar sem
metur áhættuna af þvi að reisa byggð
í kringum olíubirgðastöðina í Örfí-
risey og hvort hún geti farið saman
með íbúðabyggð. Þyrping hf. hefur
lagt fram tillögu fyrir borgaryfirvöld
um nýtt íbúðahverfi í Örfirisey fyrir
allt að 4.500 íbúa.
Getur vonandi farið saman
Fyrir rúmu ári urðu miklar spreng-
ingar í Buncefield-olíubirgðastöðinni
í útjaðri London. í nágrenni stöðv-
arinnar voru fjölmennar skrifstofu-
byggingar og mikil mildi var talin
að bruninn varð um helgi þegar fáir
voru við störf í hverf-
inu. Þrátt fyrir það slösuðust fjörutíu
manns, þar af tveir alvarlega.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs og formaður starfshóps
um framtíð Orfiriseyjar, segir ljóst
að atburðurinn muni hafa áhrif víða
í veröldinni á skipulag hverfa nærri
olíustöðvum. „Við erum að skoða það
hvort og hversu nálægt tönkunum
íbúðabyggðin getur verið. Sérfræð-
ingar á okkar vegum þekkja mjög vel
brunann á Bretlandi og að sjálfsögðu
skoðum við þær niðurstöður alveg
sérstaklega. Það liggur fyrir að við
ætlum að skipuleggja íbúðabyggð í
eyjunni og vonandi getur þetta allt
farið saman,“ segir Björn Ingi.
Faglegt mat
Dönsk verkfræðistofa hefur verið
fengin til að meta áhættuna og jafn-
framt áhættuna við reglulegan akstur
olíuflutningabíla í gegnum hverfið.
Jón Viðar segir ýmsa aðra mögu-
leika koma til greina ef flytja þurfí
olíustöðina en segir það ákvörðun
borgaryfirvalda.
„Við munum meta áhættuna á fag-
legan hátt. Við erum lika að skoða
lausnir og
Stórskaði gæti
orðið 1rið bruna
þama
Jón Viðar Matthfasson,
slökkviliðsstjóri
kostnað við aðra möguleika, ef nið-
urstaðan verður sú að olíustöðin og
byggðin geti ekki farið saman. Lagðar
hafa verið fram hugmyndir um fjölda
annarra staðsetninga 1 nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins," segir Jón Viðar.
Eftirsótt hverfi
Björn Ingi bendir á að verið sé að
þróa blandaða byggð í Færeyjum
nærri oliubirgðastöð og bruninn í
Buncefield hafi ekki komið i veg fyrir
nálægð við stöðina. Hann segir meg-
ináhersluna vera blandaða byggð í
Örfirisey.
„Margt í hugmyndum Þyrpingar
finnst mér vera skemmtilegt og í
anda þess sem við höfum verið að
kynna okkur erlendis, vatnabyggðir
með síkjum og ekki of þétt byggð,“
segir Björn Ingi.
Bl
Tankarnir í Örfirisey Ljóster að íbúðabyggð verður
skipulögð í Örfirisey og áhætta vegna nálægðar oliu-
stöðvarinnar er nú metin og von er á niðurstöðum í vor.
Fræðsla í öllum árgöngum Laugarnesskóla:
Dömuskór, barnaskór, töskur og belti,
mikið úrval og enn meiri verðlækkun.
Ekki missa af þessum síðustu og bestu dögum
opiðtilkl. 21
rPo/mM
skóverslun
Kringlunni 8-12* sími 5532888
\_________________________-____________/
Varaðir við barnaperrum
„Það þarf auðvitað að fræða
börnin og eðlilegt að við brýnum
þetta fyrir börnunum þegar svona
kemur upp. Við itrekuðum fyrir
kennurum að taka þetta upp með
nemendum í lífsleiknitímum. Enn
fremur hvetjum við foreldra til að
ræða málin með börnum sínum,“
segir Vilborg Runólfsdóttir, aðstoð-
arskólastjóri Laugarnesskóla.
ÁgústMagnússon.dæmdurbarna-
níðingur, sýndi nýverið einlægan
brotavilja gegn ungum tálbeitum
á Netinu á meðan hann afplán-
aði fimm ára fangelsisdóm fyrir
gróf kynferðisbrot gegn ungum
Varað við perrum Nemendur Laug-
arnesskóla hafa verið varaðir við
barnaníðingum.
drengjum. Hann var vistaður á
áfangaheimilinu Vernd í Laugar-
neshverfinu og kennarar Laugar-
nesskóla hafa undanfarið varað
nemendur sína við barnaníðingum.
Vilborg ítrekar að einstaklingar
hafi hvorki verið nafngreindir né
sýndar af þeim myndir.
Tinna B. Guðmundsdóttir, for-
maður foreldrafélags Laugarnes-
skóla, tekur undir mikilvægi þess
að fræða nemendur um málið. Að
hennar mati er eðlilegt að vara
við mönnum sem hætta stafar af.
„Mér finnst reyndar allt í lagi að
birta myndir og nöfn á svona fólki.
Það hefur ekki verið gert, ekki í
skólanum að minnsta kosti,“ segir
Tinna.