blaðið - 01.02.2007, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2007
blaöið
Ég hræðist ekki stor-
ma því ég er að iæra
að sigla skipi mínu.
Louisa May Alcott
kolbrun@bladid.net
Metsölulistinn - innlendar bækur
VefurinnhennarKarlottu
E.B.White
j H.C. Andersen pakki
H.C. Andersen
3 Sagnfræöingurinn
Elizabeth Kostova
Asíuréttir
PPforlag
, Tertur
PPforlag
fslensk orðabók l-ll
Edda útgáfa
Breytingaskeiðið
PPforlag
g Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseiniy
Meðlæti
PPforlag
10 Konungsbók
Arnaldur Indríðason
Listinn var gerður út frá sölu dagana 24.01 - 30.01 í Pennan-
um Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar.
Metsölulistinn - erlendar bækur
TwoLittle Girlsln Blue
Mary Higglns Clarks
The Alchemist - Gift Edition
Paulo Coelho
On the Run
Iris Johansen
The Husband
Dean R. Koontz
5 TheTemplarLegacy
Steve Berry
, Valley of Silence (Cirde Trilogy 3)
Nora Roberts
Sea Change
Robert B. Parker
GraveTattoo
Val McDermid
5 WhattoWeartoaSeduction
Sari Robins
3U AThousandSuns
Alex Scarrow
Listinn vargerður út frá sölu dagana 24.01.07 - 30.01.07 /
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar.
Tími - Afstæði
- Gildi
Laugardaginn 3. febrúar kl.
13:30 verður haldið Sjónþing um
myndlistarmanninn Rúrí
í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Stjórnandi Sjónþingsins
er Laufey Helgadóttir listfræð-
ingur, en spyrlar
Gunnar J. Árnason listheimspek-
ingur og Halldór Björn Runólfs-
son listfræðingur.
Að Sjónþingi loknu kl. 16 verður
opnuð sýning á sýnishornum
verka frá 33 ára listferli Rúríar.
Sýningin stendurtil 15. apríl
2007.
Síðasta sýning-
arhelgi hjá Hildi
Nú um helgina, á sunnudag,
lýkur sýningu myndlistarkon-
unnar Hildar Bjarnadóttur;
„ígildi” í Safni, samtímalistasafni
við Laugaveg 37. Hildur sýnir
þar textílverk, sem hún vefur
úr akrýlmáluðum strigaþráðum
og veltir þannig upp áleitnum
spurningum um málverkið
sem slíkt, um opinbera listhefð,
flokkun í handverk og fagurlistir,
hámenningu og lágmenningu.
Selma Björnsdóttir
,Þetta varmikill skóli og
mjög skemmtileg vinna
en um leið erfið.“
Mynd/Frikki
Gleði, grín, söngur og dans
kvöld verður nemendasýning
Verzlunarskólans, söngleik-
urinn Sextán frumsýndur í
Austurbæ. Nemendur skólans
fara með öll hlutverk, handrits-
höfundur er Gísli Rúnar Jónsson og
leikstjóri er Selma Björnsdóttir en
þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni
hennar.
„Ég var í Verzlunarskólanum á
sínum tíma og þar er leiksýningin
stærsti viðburður félagslífsins. Nokk-
uð sem maður fór að hlakka til strax
fýrsta skóladaginn. Ég ákvað að
taka að mér leikstjórn þessa söng-
leiks því þetta er leikhúsform sem
ég þekki mjög vel. Þarna er gleði og
grín, söngur og dans,“ segir Selma.
Hún segir það hafa verið ákaflega
skemmtilega reynslu að vinna með
nemendum skólans. „Sumir þessara
krakka eru á atvinnumælikvarða og
jafnvígir á söng, dans og leik. Það er
komin upp söngleikjakynslóð sem
sækir gjarnan í Verzlunarskólann.
Þetta hefur verið afar skemmtilegt
ferli allt frá því í haust.“
Barnsfæðing fyrir frumsýningu
Selma var ófrísk þegar vinna að
sýningunni fór af stað og eignaðist
dóttur fyrir viku. „Þar sem ljóst var
að barnið myndi fæðast fyrir frum-
sýningu fór ég að vinna að sýning-
unni fremur snemma og hún var
nokkurn veginn tilbúin snemma
í janúar, fyrir utan tæknileg atriði
sem þurfti að útfæra. Ég fékk mann-
inn minn, Rúnar Frey, og Nönnu
Kristínu Magnúsdóttur leikkonu til
að hlaupa í skarðið fyrir mig síðustu
dagana,“ segir Selma. Systur Selmu,
Birna og Guðfinna, eru danshöfund-
ar sýningarinnar. „Það er frábært
að fá að vinna með systrum sínum
og það má segja að við bætum hver
aðra upp. Þær koma með reynslu úr
dansheiminum og ég hef mína leik-
húsreynslu."
Nútímaástarsaga
Þegar Selma er spurð hvernig sýn-
ingu hún hafi viljað búa til segir hún:
,Fyrst og fremst sýningu sem nem-
endur gætu náð sambandi við því
þetta er fyrst og fremst sýning fyrir
þá. Reynslan hefur þó sýnt að þessar
sýningar hafa notið vinsælda út fyrir
raðir skólans og grunnskólanemend-
ur hafa til dæmis sótt þær. Við töluð-
um okkur saman um efnið ég, Gísli
Rúnar og krakkarnir og ákváðum
að hafa íslenskt þema. íslensk tónlist
leikur stóran þátt í sýningunni, allt
frá Björgvini Halldórssyni til Tra-
bants. í grunninn er þetta nútíma-
ástarsaga í Verzlunarskólanum en
þarna er líka verið að leika sér með
staðalímyndir sem fólk hefur haft af
Verzlunarskólanemum í gegnum tíð-
ina og þær færðar upp á ýkt plan.“
Um leikstjórastarfið segir Selma:
„Þetta var mikill skóli og mjög
skemmtileg vinna en um leið erfið.
Ég hef komið að mörgum þáttum í
söngleikjagerð en aldrei verið með
alla ábyrgðina. Ég held að ég hafi
lært mjög mikið af þessu en ég var
líka að vinna með mjög flinkum
krökkum."
menningarmolinn
Sluðurdrottning
kveður
Á þessum degi árið 1966 lést Hedda
Hopper, slúðurdrottningin í Holly-
wood. Hún hóf feril sinn sem leik-
kona í þöglu myndunum og lék í um
120 myndum á tveimur áratugum. Ár-
ið 1938 hóf hún að skrifa slúðurdálka
um Hollvwoodstjörnur í Los Angeles
Times. Ári seinna hóf hún eigin út-
varpsþætti þar sem slúður var sett á
oddinn. Hún varð á skömmum tíma
þekkt og reyndar alræmd því hún
sveifst einskis til að ná fréttum og
var þekkt fyrir að rægja þær stjörnur
sem henni þóttu ekki nægilega sam-
vinnufúsar. Á McCarthy-tímanum
var hún dugleg við að saka frjálslynt
fólk í Hollywood um kommúnisma.
Hopper auðgaðist mjög af vinnu sinni
sem slúðurdrottning og var stolt af
áhrifum sínum. Hún kallaði húsið
sem hún byggði sér í Hollywood „hús-
ið sem var byggt úr óttanum“.