blaðið - 01.02.2007, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2007
blaðiö
VEÐRIÐ Í DAG Á MORGUN VÍÐA UM HEIM
Rigning
Suðvestanátt, víða 8 til 13 m/s
og rigning eða skúrir, en léttir til
norðaustan- og austanlands. Hiti 1
til 7 stig.
Slydda
Suðlæg átt, 15 til 20 m/s, en
hægari vindur á Norður- og
Austurlandi. Slydda og síðar
rigning, fyrst suðvestanlands
og hlýnandi veður.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
13
9
13
8
■8
11
8
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
10 New York
7 Orlando
■3 Osló
8 Palma
11 París
10 Stokkhólmur
-18 Þórshöfn
-2
10
-4
17
9
3
Forstöðumaður fangelsa:
Á ekki að
geta gerst
Þrjú ungmenni á tvítugsaldri
struku úr gæsluvarðhaldi á Akur-
eyri á þriðjudagskvöld. Héraðs-
dómur Norðurlands eystra hafði
úrskurðað þau í viku gæsluvarð-
hald fyrr um daginn en þau eru
grunuð um innbrot, bílþjófnað
og fjársvik með greiðslukortum.
„Þetta er ótrúlegt ólán sem
á ekki að geta gerst,“ segir
Guðmundur Gíslason, for-
stöðumaður fangelsa á höfuð-
borgarsvæðinu og á Akureyri,
um strok ungmennanna.
Einu þeirra tókst að komast út
úr klefanum en samkvæmt Guð-
mundi hafði hurðin líklega ekki
fallið nægilega að stöfum þegar
henni var lokað. Hurðir fanga-
klefanna eru ekki læstar með
lykli heldur með rennilokum.
ísraelsmenn:
Sækjast eftir
meira landi
Forsætisráðherra Israels, Ehud
Olmert, hefur samþykkt að flytja
megi hinn umdeilda múr, sem
skilur að Israel og svæði Palest-
ínumanna, lengra inn á Vestur-
bakkann þannig að tvær land-
nemabyggðir til viðbótar verði
ísraelsmegin. Þar með kynnu
um 20 þúsund Palestínumenn
að verða innlyksa milli múrsins
og landamæranna að ísrael.
Palestínskir embættismenn for-
dæma áætlunina og segja hana
tilraun til að ræna landi. Israelsk
yfirvöld segja nauðsynlegt að
færa múrinn til að stöðva sjálfs-
morðsárásir frá Vesturbakkanum.
Ölfusá Áin varisköld og
straumhörð og aðstæður
þvi erfiðar.
MytVJfÍAiit Bjcrnösop'
Bíll hafnaði í Ölfusá:
Blésu lífi í piltinn
■ Áin ísköld og straumhörö ■ Gúmmíbáturinn missti vélarafl
■ Óvíst um orsakir slyssins
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Mannbjörg varð þegar ungur
maður bjargaðist úr straumharðri
Ölfusánni á ellefta tímanum í fyrra-
kvöld. Bíll hans hafnaði í ánni og
flaut í hálfu kafi þar til hann festist
áskeri. Einungis stundarfjórðungur
leið þar til björgunarsveitarmenn
frá Björgunarfélagi Árborgar komu
á staðinn. Viðar Arason var einn
björgunarmanna sem sóttu mann-
inn f ána.
„Það gekk erfiðlega sökum klaka
að setja út bátinn í fyrstu. Við
höfðum heldur ekki nákvæma
staðsetningu á bílnum en fundum
hann fljótt þegar í ána var komið.
Við sjáum hann veifa á móti okkur
og reynum að spyrja hvort hann sé
einn í bílnum, en fáum ekkert svar.
Loks komumst við nógu nálægt til
þess að gá hvort einhver annar sé
í bílnum og sjáum að svo er ekki.
Sem betur fer er mjög grunnt í
ánni á þessu svæði því það auð-
veldaði flutning piltsins mjög yfir
Bíllinn upp úr ánni Bifreíð piltsins
var dregin úr ánni í gær.
Mynd/Ámmn lngi SigurtMon
í gúmmíbátinn. Þar missti hann
hinsvegar meðvitund og hætti að
anda. Skömmu síðar fáum við stein
eða klaka í skrúfuna og missum
vélarafl. Meðan okkur rekur niður
flúðirnar þá tekst okkur að blása lífi
í drenginn og hann byrjar að kasta
upp vatni sem hann hafði gleypt.
Við sjáum aðra björgunarmenn við
bakkann og reynum að fá þá til að
kasta Iínu til okkar sem tekst ekki
fyrr en svolítið neðar á svæðinu þar
Áin varísköld
og straumhörð
i. og aðstæður því
erfiðar
A-/Æ Viöar Arason, björgunarsveitarmaður.
sem kirkjan er. Annars þurftum við
að róa bátnum sem var ekki heiglum
hent í straumhörku árinnar. Einnig
þurfti að halda stráknum stöðugum
því hann hefði getað hlotið hrygg-
áverka við það að keyra út í ána.
Þegar við loks komumst að bakk-
anum tók um 8 mínútur að hlúa að
honum og koma honum úr bátnum
í sjúkrabílinn sem brunaði með
hann suður.“
Vafi leikur á orsök slyssins. Mikil
hálka var á svæðinu og er talið að
bíllinn hafa runnið út í ána. „Ég veit
ekkert hvernig þetta gerðist og hef
ekkert um það að segja. Ég er bara
feginn að pilturinn dragi ennþá and-
ann í dag,“ sagði hinn vaski Viðar
Arason, björgunarsveitarmaður
Árborgar.
Þýskur saksóknari:
Krefst töku
CIA-manna
Saksóknari í Múnchen í Þýska-
landi krafðist í gær handtöku
þrettán starfsmanna bandarísku
leyniþjónustunnar CLA. Leyni-
þjónustumennirnir eru grunaðir
um að hafa gripið og flutt á brott
meintan þýskan hryðjuverka-
mann á gamlárskvöld árið 2003.
Hinn gripni, Khaled E1 Masri,
sem er þýskur ríkisborgari, var
tekinn höndum í Makedóníu og
fluttur til yfirheyrslu í Afganist-
an. Honum var síðar sleppt og
hann fluttur aftur til Þýskalands.
Leyniþjónustumennirnir
þrettán eru samkvæmt þýskum
fjölmiðlum í Siorður-Karólínu
í Bandaríkjunum þar sem
þýsk lög ná ekki yfir þá.
Bamaperrar í Kompási:
Hafa allir
gefið sig fram
Kynferðisbrotadeildin
yfirheyrir nú alla þá menn
sem bitu á agn fréttaþáttarins
Kompáss og gerðu tilraun til
að nálgast þrettán ára tálbeitur
sem gáfu kost á sér á Netinu.
„Þeir hafa allir gefið sig fram
og yfirheyrslur standa nú yfir.
Brotaviljinn er augljós þar sem
þeir mættu á staðinn. Það verður
hins vegar ríkissaksóknara að
taka ákvörðun um aðgerðir gegn
þeim,“ segir Björgvin Björgvins-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn
höfuðborgarlögreglunnar.
Það kemur til kasta ríkis-
saksóknara að ákveða hvort
þeir verða ákærðir eða ekki.
Ódýrasti sjálfskipti dísel
jeppinn og sá best útbúni.
Nýr Land Rover Freelander TD4, eyðsla 8,6 i blöndu&um
akstri, leður og alcantara innrétting, rafdrifnar rúður,
álfelgur, bakkskynjari, 6 diska CD, ofl.
4 litir i boði. Sýningarbíll á staðnum.
Verð: með topplúgu 3.590 þús. án lúgu 3.490 |>ÚS.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17
Sími: 577 3344
Forstjóri Fangelsismálastofnunar:
Lögmæti uppsagna skoðað
Fangelsið á
Fjöldauppsagnir fangavarða gætu
talist ólöglegar, segir Valtýr Sigurðs-
son, forstjóri Fangelsismálastofn-
unar. Fjöldi fangavarða hefur þegar
sagt upp störfum sökum óánægju
með launakjör sem eru um 30 pró-
sentum lægri heldur en lögreglu-
manna, sem eru sú stétt sem fanga-
verðir hafa borið sig saman við.
„Verið er að athuga lagalegan grund-
völl fyrir uppsögnunum. Fangaverðir
samþykktu kjarasamning á síðasta
ári sem er enn í gildi. Því er engin
kjaradeila í gangi. Hinsvegar þarf að
grípa til aðgerða til að leysa þetta mál
því annars kemur upp erfið staða.
Þetta er meðal erfiðustu starfa í op-
inberri þjónustu og þvi mikilvægt að
halda í þá góðu starfskrafta sem fyrir
eru,“ segir Valtýr.
Samkvæmt fangaverði á Litla-
Hrauni sömdu fangaverðir af sér í
fyrra. Hann segist vel skilja þá sem
vilja komast á betri laun annars
staðar. Hann treysti sér ekki til að
vinna áfram því það raski kynjajafn-
vægi vinnustaðarins en starfið sé
þess eðlis að of hátt kvennahlufall
starfsfólks sé óviðunandi.
Uppsagnirnar taka gildi nú um
mánaðamótin og er uppsagnar-
frestur þrír mánuðir. Því hafa yfir-
völd þrjá mánuði til þess að semja
við fangaverði.