blaðið - 01.02.2007, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2007
blaðiö
INNLENT
SELFOSS
REYKJAVÍK
Var að fíflast
Lögréglumenn tóku eftir bíl sem ekið varfram úr stræt-
isvagni á gangbraut i Breiðholti á þriðjudag. Ökumaður
bílsins reyndist vera 18 ára gamall karlmaður sem
aldrei hafði öðlast ökuréttindi. Þegar hann var spurður
út í aksturslag sitt sagöist hann hafa verið að fíflast.
Mótmæla lokun leikskóla
Fulltrúar foreldra barna á leikskólanum Hulduheimum á Selfossi
afhentu í gær Ragnheiði Hergeirsdóttur, bæjarstjóra Árborgar,
undirskriftir 116 foreldra þar sem uþþsögnum fimm starfs-
manna leikskólans var mótmælt. Um 100 börn eru á Huldu-
heimum en bæjaryfirvöld gripu til þessa ráðs í sparnaðarskyni.
UMHVERFISRAÐHERRA
VIII svör vegna Sellafield
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hefur í bréfi
til umhverfisráðherra Bretlands, Davids Milliband,
óskað eftir skriflegum upplýsingum um hvaöa
rök hafi legið að baki því að veita kjarnorkuendur-
vinnslustöðinni I Sellafield starfsleyfi að nýju.
Hringrás við Klettagarða:
Öryggi bætt til muna
„Það er búið að gera heilmiklar
öryggisráðstafanir á svæði Hring-
rásar. Til dæmis er búið að bæta
aðgengi að slökkvivatni með
brunahana og koma fyrir skil-
veggjum sem tefja útbreiðslu
elds. Þannig hafa öll efni verið
aðskilin í bása sem auðveldar
störf slökkviliðs til muna,“ segir
Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri
forvarnadeildar slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins.
I nóvember 2004 varð stórbruni
á lóð Hringrásar við Klettagarða.
Fleiri hundruð tonn af hjólbörðum
urðu eldi að bráð og umtalsvert
magn spilliefna var á svæðinu.
Bjarni bendir á að almannahætta
sé iðulega til staðar vegna iðnaðar
Búið að gera
heilmiklarörygg■
ísráðstafanir á
svæðinu
Bjarni Kjartansson,
sviðsstjóri
í stórborgum en telur starfsemi
Hringrásar ekki lengur vera stórt
áhyggjuefni.
„Það mikilvægasta í þessu er að
magn efnis sem geymt er á lóð-
inni er ekki nema svipur hjá sjón
miðað við það sem var þegar brun-
inn kom upp. Á þeim tímapunkti
var fyrirtækið komið mílu vegar
umfram heimildir þess í starfs-
leyfi,“ segir Bjarni.
Lýsir undrun
Samtök norrænu blaðamanna-
félaganna hafa lýst undrun sinni
áframferðimenntamálaráðuneyt-
isins í garð Blaðamannafélags ís-
lands varðandi tilnefningar þess
til fulltrúa í samtökunum. Þetta
kemur fram í ályktun sem sam-
tökin sendu frá sér í gær.
Samtökin taka fram að ísland
sé eina landið sem ekki taki
ráðleggingum fagfélags í mál-
inu og harma þau vinnubrögð
sem ráðuneytið hafi í frammi.
Blaðamannafélagið hafði til-
nefnt Birgi Guðmundsson og
Svanborgu Sigmarsdóttur en
ráðuneytið tók ekki þeim tilnefn-
ingum og skipaði í stað þeirra
Ólaf Stephensen, aðstoðarrit-
stjóra Morgunblaðsins, og Elfu
Ýr Gylfadóttur, deildarstjóra í
menntamálaráðuneytinu.
„Mér var boðin staðan og hef
ég þegar tekið henni, enda er ég
áhugasamur um þessa vinnu sem
er framundan,“ sagði Ólafur að-
spurður hvort hann myndi þiggja
stöðuna í ljósi aðstæðna. Álykt-
unina má sjá á heimasíðu Blaða-
mannafélagsins á www.press.is.
veiá/utertwp. iá
Félagsmenn stjórnmálaflokka:
Inn og út úr flokkum
■ Sjálfstæöisflokkur gefur ekkert upp ■ Fjölgar í Samfylkingu
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Fjöldi félagsmanna í stjórnmála-
flokkum landsins breytist nú dag
frá degi þegar styttist í kosningar.
Blaðið tók stöðuna hjá Samfylk-
ingunni, Framsóknarflokknum,
Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði, Frjálslynda flokknum
og Sjálfstæðisflokknum í gær.
Framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins vildi hins vegar ekki
veita neinar upplýsingar.
Vinstri grænir
í Vinstrihreyf-
ingunni - grænu
framboði fjölgaði
um 700 manns
fyrir forval
flokks-
Samfylkingin
ms sem
fór fram
2. desember
síðastliðinn,
samkvæmt Drífu
Snædal fram-
kvæmdastjóra, en
svipaður fjöldi gekk
hins vegar úr hon-
um. Ríflega 2.700
manns eru nú skráð-
ir í flokkinn og
sagðist hún hafa átt
von á fleiri úrsögn-
um en raunin varð.
Félagsmenn Samfylking-
arinnar eru 19.820 talsins,
samkvæmt Skúla Helgasyni,
framkvæmdastjóra flokksins, og
hafði þeim fjölgað um 610 manns
síðastliðið ár. Frá því í desember eru
nýskráningar umfram úrsagnir 200 talsins.
Framsóknarflokkurinn
Samkvæmt Sigfúsi Inga Sigurðssyni,
framkvæmdastjóraFramsóknarflokksins,
voru úrsagnir úr flokknum innan við 100
í janúar á þessu ári. Flokksmenn eru núna
um 12.000 en ef allt síðasta
ár er skoðað fjölgaði flokks-
mönnum um tæplega 1.000
manns. Sigfús segir að allt
bendi til þess að félagsmönn-
um eigi eftir að fjölga meira.
Frjálslyndi flokkurinn
Síðdegis í gær voru 1.547
manns skráðir í Frjálslynda
flokkinn, samkvæmt
Ragnheiði Ármanns-
dóttur á skrifstofu
flokksins, en 50
manns skráðu sig
úr floklcnum í gær og
fyrradag. Ekki var hins
vegar búið að vinna úr öllum
umsóknum og úrsögnum. Hjá
flokknum voru 1.092 manns á
skrá 16. janúar síðastliðinn.
Sjálfstæöisflokkurinn
Andri Óttarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, vildi
hvorki gefa upp fjölda flokks-
manna né fjölda þeirra sem hafa
skráð sig í eða
úr flokkn-
um síðustu
mánuði.
Sagði hann að
þessar upplýs- ^ /-
ingar væru trúnað- A í
armál flokksins.
Skipulagsbreytingar hjá 365 ljósvakamiðlum:
Sirkus færð undir Stöð 2
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Þeim starfsmönnum, sem séð hafa
um þróun sjónvarpsstöðvarinnar Sir-
kuss, hefur verið sagt upp og þeirra
á meðal er forstöðumaður stöðvar-
innar, Árni Þór Vigfússon. Stöðin
verður færð undir stjórn Pálma
Guðmundssonar, nýráðins sjónvarps-
stjóra Stöðvar 2, og aðrir miðlar
tengdir stöðinni hafa einnig verið
færðir undir annarra stjórn.
„Það er orðum aukið að öllum starfs-
mönnum stöðvarinnar hafi verið
sagt upp. Það verður engin breyting
á starfsemi Sirkus sjónvarps heldur
er aðeins um skipulagsbreytingar að
ræða,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365
ljósvakamiðla.
Aðspurður segir Ari að óhjákvæmi-
legt hafi verið að gera mannabreyt-
Engin breyting
á starfsemi
Sirkuss
Ari Edwald,
forstjóri 365
ingar í því skyni að breyta skipulagi
rekstrarins og samþætta stjórnun.
„Árni Þór hverfur á önnur mið og
með honum þeir starfsmenn sem
hafa sinnt dagskrárstjórn og mark-
aðsmálum fyrir stöðina. Eftir verður
enginn sjálfstæður starfsmaður á
vegum stöðvarinnar," segir Ari. „Sir-
kus hefur verið að gera mjög góða
hluti og á því verður engin breyting."
Sirkus fær nýja stjórn Árni
Þór Vigfússon er ekki lengur
forstööumaður Sirkuss. Stööin
hefur veriö færö undir Stöö 2.